Fréttir

true

Ölver leitar til velunnara að hópfjármagna leiðslu frá nýrri vatnslind

Ölver, sumarbúðir KFUM og KFUK, eru mörgum að góðu kunnar en þær hafa verið starfræktar í 76 ár. Í Ölveri er unnið mikið kristið mannræktarstarf sem þúsundir barna hafa notið góðs af. Undanfarin ár hefur vatnslind sumarbúðanna reynst stopul og var sett á laggirnar vatnsöflunarnefnd sem starfaði í sjálfboðavinnu og tók ákvörðun í samráði við…Lesa meira

true

Flugdrekasmiðja í Búðardal

Á Jónsmessu var haldið námskeið í flugdrekasmíði í Búðardal fyrir börn fædd á árunum 2006-2009.  Námskeiðið var haldið með styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands og leiðbeinandi var Arite Fricke iðnhönnuður. Mikill áhugi var á námskeiðinu og var sætapláss fljótt að fyllast. Til að byrja með gerðu börnin einfalda flugdreka úr gömlum símaskrám, grillpinnum og trélími og…Lesa meira

true

Lúðrasveit Stykkishólms komin úr Englandsferð

Lúðrasveit Stykkishólms kom heim frá Englandi um liðna helgi helgi. Sveitin dvaldi í Scarborough og tók þar þátt í Scarborough Music Festival. Lúðrasveitin kom víða fram á hátíðinni og spilaði meðal annars í skrúðgöngu, miðbænum og á ströndinni. Sveitin hitti fyrir aðrar lúðrasveitir, fór á tónleika og kynnti sér þá menningu sem Scarborough hefur upp…Lesa meira

true

Vegurinn um Húsafellsskóg lagfærður til muna

Þessa dagana vinna starfsmenn Borgarverks að breikkun vegarins í gegnum Húsafellsskóg, frá þjóðnustumiðstöðinni og upp að Hvítá. Vegurinn var mjór og víða í kröppum beygjum og því víða blindhorn á honum og erfitt fyrir stóra bíla að mætast. Þá náði birkikjarr víða að blinda sýn ökumanna. Fjölmargar hríslur voru færðar af þeim sökum. Mikil og…Lesa meira

true

Landsmót hestamanna hafið á Hólum

Landsmót hestamanna hófst í dag á Hólum í Hjaltadal. Keppni hófst á B-flokki gæðinga og í kjölfarið og næstu daga fylgir hver viðburðurinn á fætur öðrum. Hámarki nær mótið á laugardaginn þegar öll úrslit verða. Á sunnudeginum verða þó ýmsir hestatengdir viðburðir í gangi en mótinu lýkur síðar þann dag. Mótshaldarar búast við allt að…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaup við erfiðar aðstæður

Sjötta Snæfellsneshlaupið fór fram á laugardaginn. Líkt og áður var hlaupið ræst frá Arnarbæ á Arnarstapa, hlaupið yfir Jökulháls og endað í Ólafsvík. Alls eru hlaupnir um 22 kílómetrar við misjafnar aðstæður, að sögn Fannars Baldursson sem sér um hlaupið ásamt konu sinni Rán Kristinsdóttur. Fannar sagði að aðstæður hafi veirð erfiðar á Jökulhálsinum en…Lesa meira

true

Bláfáninn kominn á loft við Langasand

Í liðinni viku var Bláfáninn við Langasand á Akranesi dreginn að húni fjórða árið í röð. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki og tákn um markvissa og skilgreinda umhverfisstjórnun. Til að öðlast Bláfánann þarf baðströndin á Langasandi að uppfylla 32 skilyrði sem lúta að vatnsgæðum, umhverfisstjórnun, upplýsingagjöf og öryggi. Aðeins tvær aðrar íslenskar baðstrendur hafa fengið Bláfánann;…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir komst upp um deild í karla- og kvennaflokki

Íslandsmót golfklúbba 2016 fór fram um liðna helgi. Mótið hófst á föstudegi og lauk í gær. Mótið hlaut nýtt nafn í vor en áður hét það Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins kepptu á mótinu og margar hörkuviðureignir litu dagsins ljós. Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Golfklúbbur…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í fyrsta leik Domino‘s deildar kvenna

Leikjaröð liða í Domino‘s deild karla og kvenna auk fyrstu deildar karla er orðin ljós. Það er þó enn langt í mót en fyrsti leikur Domino‘s deildar karla verður spilaður 5. október en hjá konunum og fyrstu deild karla hefst mótið degi síðar. Nýliðarnir í Domino‘s deild kvenna, Skallagrímur í Borgarnesi, mæta meisturunum í Snæfelli…Lesa meira