Fréttir

true

Frumsýna í kvöld Fullkomið brúðkaup í Lyngbrekku

Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms frumsýnir í kvöld gamanleikinn Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon í þýðingu Arnar Árnasonar í félagsheimilinu Lyngbrekku. Verkið er eftir sama höfund og skrifaði leikgerðina á Sex í sveit sem er ein fjölsóttasta leiksýning hér á landi frá upphafi. Verkið Fullkomið brúðkaup var fyrst fært á fjalirnar í Menningarhúsinu Hofi 2005 og naut…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast á Dalbrautarreitnum á Akranesi

Í morgun var fyrsta skóflustungan tekin að fimm hæða íbúða- og þjónustuhúsi við Dalbraut 4 á Akranesi. Verður það fyrsta húsið af fjórum sem byggingafélagið Bestla ehf. mun byggja á Dalbrautarreit. Í húsinu verður 1270 fm fjölnota salur á neðstu hæð í eigu Akraneskaupstaðar sem m.a. Félag eldri borgara á Akranesi og nágrenni fær til…Lesa meira

true

Gengnir í Miðflokkinn

Þingmennirnir Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson, sem kosnir voru á þing fyrir Flokk fólksins, voru eins og kunnugt er reknir úr flokki sínum í kjölfar Klaustursmálsins svokallaða í lok nóvember. Hafa þeir verið utan flokka síðan en hafa nú ákveðið að ganga til liðs við Miðflokkinn. „Við teljum að á vettvangi Miðflokksins styrkjum við…Lesa meira

true

Rannsaka andlát í kjölfar notkunar á efninu tianeptine

Matvælastofnun og Lyfjastofnun vara við neyslu á tianeptine og annarra efna sem seld eru á netinu undir heitinu Nootropics og hafa mörg hver lyfjavirkni. Nootropics eru efni sem sögð eru örva heilastarfsemi og eru algeng í netsölu erlendis frá. Þau innihalda í sumum tilvikum lyfjavirk efni sem geta verið hættuleg heilsu ef þau eru notuð…Lesa meira

true

Hótelþernur fara fyrstar í verkfall náist ekki samningar áður

Drífa Snædal forseti ASÍ boðar í föstudagspistli sínum fyrstu vinnustöðvun aðildarfélaga ASÍ þegar hótelþernur fara í verkfall föstudaginn 8. mars næstkomandi. „Á mánudaginn hefst atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hótelþerna, sem ráðgert er að hefjist á baráttudegi kvenna 8. mars, til að knýja á um mannsæmandi laun. Að vera þerna á hóteli er eitt erfiðasta starf sem…Lesa meira

true

Þrumur og eldingar í gærkvöldi

Óvenju öflugt eldingaveður gekk yfir suðvesturhorn landsins í gærkvöldi. Íbúar á svæðinu urðu margir hverjir varir við kröftugar eldingarnar, mikla blossa og þungar drunur sem þeim fylgdu. Eldingarnar voru í um 250 km skúragarði sem lá frá Snæfellsnesi til suðausturs að Vestmannaeyjum um kl. 20:00 í gær. Veðrið gekk frekar hratt yfir, að því er…Lesa meira

true

Fundur um hrossarækt haldinn í Borgarnesi í næstu viku

Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda, og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur eru um þessar mundir á ferð um landið og halda fræðslufundi um málefni hrossaræktarinnar. Helstu málefni sem ber á góma eru þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt, dómsskalinn, þ.e. þróun og betrumbætur, nýir vægisstuðlar eiginleikanna auk málefna Félags hrossabænda. Fundur verður haldinn í Borgarnesi miðvikudaginn 27. febrúar klukkan…Lesa meira

true

Pepsi deildin verður Pepsi Max deildin

Sýn hf., fyrir hönd Stöðvar 2 Sport og Ölgerðin Egill Skallagrímsson, hafa samið um nafnarétt efstu deilda Íslansmóts karla og kvenna í knattspyrnu. Breytt verður um nafn og munu deildirnar heita Pepsi Max deildirnar næstu þrjú árin í stað Pepsi deildanna áður. Haft er eftir Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar, að þar á bæ hafi…Lesa meira

true

Sannkölluð vertíðarstemning í Snæfellbæ

Sannkölluð vertíðarstemning er í Snæfellsbæ þessa dagana. Mikill afli hefur borist að landi og veiðst vel í öll veiðarfæri, að sögn Þórðar Björnsson hafnarvarðar í Ólafsvík. Netabáturinn Bárður SH landaði til dæmis 40 tonnum á einum og sama deginum en þann dag var tvílandað. Einnig hefur netabáturinn Arnar SH fengið góðan afla og síðasta laugardag…Lesa meira

true

Tæpur helmingur notar snjalltæki við akstur

Í síðustu viku var skoðanakönnun hér á vef Skessuhorns um snjalltækjanotkun samhliða akstri. Spurt var hvort fólk hefði freistast til að nota snjalltæki við akstur bíls. Niðurstaðan var sláandi. Af 360 einstaklingum sem tóku þátt í könnuninni sögðust 10% oft freistast til að nota snjalltæki við akstur og 39% segjast einstaka sinnum hafa gert það,…Lesa meira