Fréttir

true

Meiri kjörsókn á Akranesi en fyrir fjórum árum

Á hádegi í dag höfðu 769 kosið í stærstu kjördeildinni í Norðvesturkjördæmi, á Akranesi. Kosið er í Brekkubæjarskóla. Það jafngildir 15,57% atkvæðisbærra. Í kosningunum fyrir fjórum árum höfðu á sama tíma 13,56% kosið. Kjörsókn er því töluvert meiri. Ágætt veður er á Vesturlandi, hlýtt en skýjað.Lesa meira

true

Hægt að fletta upp kjördeildum og lögheimilum

Kosið verður til embættis forseta Íslands í dag, laugardaginn 25. júní. Víðast hvar verða kjörstaðir opnaðir klukkan 9:00, en þó eru undantekningar frá reglunni. Til dæmis hefjast kjörfundur ýmist klukkan 10 eða 11 í kjördeildum í Snæfellsbæ. Níu frambjóðendur eru í kjöri til forseta. Þeir eru:  Andri Snær Magnason, Karfavogi 16, Reykjavík Ástþór Magnússon, Bretlandi, dvalarstaður Vogasel…Lesa meira

true

Fjöldi íbúða Háskólans á Bifröst settur á sölu

Háskólinn á Bifröst skrifaði nýverið undir samning við Íbúðalánasjóð um fjárhagslega endurskipulagningu vegna íbúða á Bifröst. Í framhaldinu voru auglýstar til sölu tvær eignir á Bifröst. Um er að ræða rétt tæpar hundrað íbúðir, annars vegar í Sjónarhól og hins vegar að Hamragörðum 1. Sjónarhóll er fjölbýlishús sem stendur vestan við skólahúsin en Hamraborg 1 hýsir…Lesa meira

true

Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum haldið í Borgarnesi

Hestamannafélagið Skuggi heldur Íslandsmót yngri flokka í Borgarnesi dagana 14. – 17. júlí n.k. Svanhildur Svansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mótsins. „Mótsnefnd mun kappkosta að mótið verði hið glæsilegasta og fari fram við bestu aðstæður sem svæðið býður upp á. Boðið verður upp á hesthúspláss og hey og einnig verður seldur spænir á svæðinu. Tjaldsvæði…Lesa meira

true

Umferðarslys skammt frá Stykkishólmi

Umferðarslys varð á þjóðveginum skammt frá Stykkishólmi í morgun. Samkvæmt heimildum lögreglunnar á Vesturlandi fór bíllinn fjölmargar veltur. Maðurinn, sem var einn í bílnum, er lítið meiddur og þykir það ótrúlegt miðað við þær veltur sem hann fór. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur.  Lesa meira

true

Upplýsingaskilti og áningarstaður við Hausthúsatorg

Þessa dagana er verið að ljúka framkvæmdum við Hausthúsatorg á Akranesi þar sem ekið er inn í bæinn að norðanverðu. Þegar framkvæmdum lýkur mun eftir standa upplýsingaskilti og nýr ániningarstaður. Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að á skiltinu verði götukort af Akranesi ásamt texta um sögu og afþreyingu í bænum auk ljósmynda. Á skiltinu mun einnig vera auglýsingar…Lesa meira

true

Myndasýning í Óðali af leikstarfi í hundrað ár

Í tilefni aldarafmælis Ungmennafélagsins Skallagríms sem er á þessu ári mun Leikdeild Umf. Skallagríms verða með myndasýningu í Samkomuhúsinu Óðali á Brákarhátíð nú um helgina. Opnun sýningarinnar verður kl. 10:00 á laugardagsmorgni. Klukkan 11:00, 12:00 og 13:00 bresta meðlimir í söng og taka nokkur lög úr leikritum liðinna ára. „Allir eru velkomnir og er ókeypis…Lesa meira

true

Brákarhátíð um helgina

Brákarhátíð í Borgarnesi verður haldin nú um helgina. Eins og venjulega verður fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna. Formleg dagskrá hefst á morgun, laugardaginn 25. júní. Íbúar í Borgarbyggð hefja gleðina þó í kvöld þegar allir hittast í götugrillum. Líkt og fyrri ár er búið að skipta Borgarbyggð upp í litasvæði. Borgarnesi hefur verið skipt…Lesa meira

true

Nýtt bílastæði verður gert í Jörundarholti

Á næstunni verður unnið við að gera bílastæði í Jörundarholti á Akranesi. Planið verður í vestur hluta götunnar, þar sem nú er malarplan. Grafið verður fyrir nýju bílastæði og það fyllt upp með malarfyllingu. Bílastæðið verður malbikað, kantsteinn steyptur og yfirborðið í kringum svæðið jafnað og þökulagt. Þá verður komið fyrir niðurföllum og lögnum. Akraneskaupstaður…Lesa meira

true

Búið að innleiða noktun Hreyfiseðla um allt land

Í frétt frá velferðarráðuneytinu kemur fram að innleiðingu hreyfiseðla er nú lokið um allt land. Hreyfiseðlum er nú ávísað í meðferðarskyni á öllum opinberum heilbrigðisstofnunum, sjúkrahúsum, stofnunum utan spítala, þ.e. á Reykjalundi og Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands, hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum og hjá sjálfstætt starfandi heilsugæslulæknum. Notkun hreyfiseðla eykst hratt. Hreyfiseðill er meðferðarúrræði sem læknir skrifar…Lesa meira