Fréttir

true

REKO Vesturland með vöruafhendingu á föstudaginn

Næsta afhending REKO Vesturlandi á mat verður við Matarbúr Kaju, Stillholti 23 á Akranesi, milli kl. 17 og 18, föstudaginn 8. febrúar. Inn í þennan viðburð á Facebook setja framleiðendur upplýsingar um vöruframboð sitt og verð og þar geta neytendur pantað beint af þeim. „Athugið að einungis er um afhendingu að ræða þennan dag og…Lesa meira

true

Vel á þriðja þúsund eiga enn inni hjá Speli

Rétt fyrir mánaðamót póstlögðu starfsmenn Spalar 2.600 bréf til viðskiptavina sem enn hafa ekki skilað veglyklum og eiga inni peninga á áskriftarreikningum vegna veglykla í Hvalfjarðargöng. Frá þessu er greint á heimasíðu fyrirtækisins. Viðtakendur fá tíu daga frest til að bregðast við erindinu með því að nálgast inneign sína og skila veglyklum og afsláttarmiðum. „Þeir…Lesa meira

true

Taka höndum saman í baráttu fyrir bættri stöðu hjúkrunarheimila

Forsvarsmenn hjúkrunar- og dvalarheimilanna Höfða á Akranesi og Brákahlíðar í Borgarnesi hafa ákveðið að taka höndum saman við að berjast fyrir bættri stöðu þessara hjúkrunar- og dvalarheimila. Bæði heimilin hafa eins og kunnugt er óskað eftir fjölgun á hjúkrunarrýmum en hefur verið hafnað af núverandi heilbrigðisráðherra og rökstuðningurinn er sá sami að bæði heimilin séu…Lesa meira

true

Áræðni og yfirvegun á lokamínútum skilaði Borgnesingum sigrinum

Skallagrímur sigraði Hauka með einu stigi, 80-79, þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi og var þetta annar sigur Skallagríms í vikunni. Haukar höfðu yfirhöndina í upphafi leiks en Borgnesingar voru aldrei langt undan. Þeir komu sér þétt upp að hlið gestanna seint í fyrsta leikhluta og…Lesa meira

true

Ráðherra ítrekar að vegur um Kjalarnes verður lagður á tilsettum tíma

„Í ljósi umræðu um Vesturlandsveg um Kjalarnes átti ég fund með meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar og fulltrúum Vegagerðarinnar [síðdegis í gær, innsk. blm.] vegna álitamála sem hafa verið í umræðunni. Tilefnið var að tryggja að þau áform, að þrátt fyrir minniháttar breytingar á samgönguáætlun, myndu verklok ekki tefjast og að framkvæmdirnar yrðu boðnar út á…Lesa meira

true

Ekki búist við lokunum á Kjalarnesi í dag

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú rétt í þessu segir að hlánað hafi í veðri og því eru minni líkur á skafrenningi og að loka þurfi vegum um vestanvert landið, eins og búist hafði verið við í gærkvöldi. Það hvessir hins vegar sunnan til í dag.  „Austan 23-28 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdal.  Hviður allt…Lesa meira

true

Bókað vegna vegaeftirlits

Nokkuð er um það að höfð séu afskipti af atvinnutækjum við vegaeftirlit lögreglu. Við vegaeftirlit hafa eftirlitsmenn auga með því hvernig gengið er frá farmi og fylgjast með hvíldarákvæðum atvinnubílstjóra. Þrjú lögregluumdæmi annast eftirlitið í sameiningu fyrir landið allt; Lögreglan á Vesturlandi, Lögreglan á Norðurlandi eystra og Lögreglan á Suðurlandi. Eitt mál kom upp á…Lesa meira

true

Frumvarp um burðarpoka

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem varðar notkun burðarpoka. Lagt er til í frumvarpinu að frá og með 1. júlí á þessu ári verði óheimilt að afhenda alla burðarpoka, þar með talið burðarpoka úr plasti, án endurgjalds á…Lesa meira

true

Hálkuvörn fýkur burt

Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur einnig fram að vetrarfærð er víðast hvar á landinu, hálka,…Lesa meira

true

Verklokum seinkar ekki að sögn Vegagerðarinnar

„Framkvæmdir við breikkun Vesturlandsvegar hefjast í haust og mun þeim ljúka á árinu 2022 eins og til hefur staðið. Þrátt fyrir tilfærslur á fjárveitingum í verkið milli ára mun verklokum ekki seinka,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni nú síðdegis. Deiliskipulag vegarins um Kjalarnes, sem var samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar, var staðfest síðastliðið sumar. „Síðan hefur…Lesa meira