Fréttir

true

Mótmæla frestun vegagerðar um Kjalarnes

„Byggðarráð Borgarbyggðar gerir alvarlegar athugasemdir við að teknar hafi verið ákvarðanir um að flytja fjármagn frá fyrirhugaðri uppbyggingu vegarins á Kjalarnesi til annarra verkefna eins og fréttir hafa borist af í fjölmiðlum.“ Í ályktun byggðarráðs frá því fyrir helgi segir að slík ákvörðun muni þýða mikla og óásættanlega seinkun á nauðsynlegum samgöngubótum milli höfuðborgarsvæðisins og…Lesa meira

true

Metnotkun heits vatns á höfuðborgarsvæðinu

“Aldrei áður hefur verið notað meira af heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu en síðastliðinn sólarhring. Síðustu klukkustundina var metrennsli þegar íbúar og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu nýttu tæplega 17.000 rúmmetra af heitu vatni og met fyrir meðalrennsli á sólarhring hefur einnig verið slegið,” sagði í tilkynningu frá Veitum í gær, laugardaga. “Í dag lítur út fyrir að…Lesa meira

true

Auknar tafir verða á vegabótum á Kjalarnesi

Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes hefur verið frestað og verður eins milljarðs króna fjárveiting sem ætluð var til verksins næstu tvö ár skorin niður í 400 milljónir króna. Bylgjan og Vísir.is greindu fyrst frá. Ástæðan er sögð tafir við verkhönnun og að samningar hafi ekki náðst við landeigendur. Sjá nánar frétt Vísis um málið.Lesa meira

true

Uppbygging hyggst reisa líkamsræktarstöð á Akranesi

Uppbygging ehf. hefur náð samningum um að byggja Reebok Fitness líkamsræktarstöð og heilsulind á Smiðjutorgi á Akranesi. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Uppbyggingar. Líkamsræktarstöð og heilsulind Reebok Fitness verður um 1800 fermetrar að flatarmáli og stefnt er að opnun hennar um mitt ár 2020. „Í boði mun verða allt það nýjasta sem í boði…Lesa meira

true

La Colina opnuð að nýju

Veitingastaðnum La Colina neðan við vatnstankinn í Borgarnesi var lokað tímabundið um miðjan desember en var opnaður að nýju í dag, föstudaginn 1. febrúar. Staðurinn er þekktur fyrir úrvals pitsur og eru margir Borgnesingar sem taka því fagnandi að staðurinn hefur nú verið opnaður að nýju.Lesa meira

true

Matvælastofnun kærir líkamsárás sem starfsmaður varð fyrir

Líkamsárás sem starfsmaður Matvælastofnunar varð fyrir í eftirliti hefur verið kærð til lögreglu. „Við komu á eftirlitsstað hrinti viðkomandi aðili starfsmanni stofnunarinnar og barði í höfuð og herðar með plastíláti,“ segir í tilkynningu. Matvælastofnun hefur ítrekað haft afskipti af hundahaldi mannsins, en tilefni heimsóknar var hins vegar eftirlit með nágrönnum hans. Tveir aðrir starfsmenn stofnunarinnar…Lesa meira

true

Skagamenn sterkari allan tímann

Skagamenn unnu góðan sigur á Ármanni í 2. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi, 106-89. Leikið var í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Skagamenn voru sterkari í upphafsfjórðungnum og leiddu með 14 stigum að honum loknum, 31-17. Ármenningar komu aðeins til baka í öðrum leikhluta áður en Skagamenn tóku góða rispu og leiddu með 15…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst 8. febrúar

Ný styttist í að keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum 2019 hefjist, en sem fyrr verður keppt í Faxaborg í Borgarnesi. Ný lið taka þátt að þessu sinni með fullt af nýjum þátttakendum. Hefur deildin aldrei verið sterkari, að sögn mótshaldara. Byrjað er að kynna liðin inn á Facbook síðu deildarinnar. „Skorum við á fólk að…Lesa meira

true

Snæfellskonur fundu aldrei taktinn

Snæfell heimsótti KR í toppslag átjándu umferðar Domino‘s deildar kvenna á miðvikudagskvöld. Skemmst er frá því að segja að Snæfellskonur áttu ekki góðan dag. Þær fundu aldrei taktinn og töpuðu að lokum stórt, 90-54. Snæfellskonur byrjuðu leikinn illa og skoruðu aðeins níu stig allan fyrsta leikhlutann. Á meðan skoraði KR 19 stig og var komið…Lesa meira

true

Leggja til að böndum verði komið á kennitöluflakkara

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, tók í gær við skýrslu samstarfshóps um undirboð og brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði sem starfað hefur undir forystu Jóns Sigurðssonar fyrrverandi ráðherra og skólastjóra. Í skýrslunni leggur samstarfshópurinn áherslu á að stöðva tafarlaust brotastarfsemi á vinnumarkaði hvort sem um er að ræða félagsleg undirboð eða annars konar brot í…Lesa meira