Fréttir

true

Söngvaka fyrirhuguð til minningar um Bjarna Valtý

Vinir og söngfélagar Bjarna Valtýs Guðjónssonar organista frá Svarfhóli á Mýrum, hafa ákveðið að standa fyrir söngvöku í anda félaga síns. Verður hún í Lyngbrekku sunnudaginn 17. febrúar næstkomandi kl. 15 – 17. Þann dag verða 90 ár liðin frá fæðingu Bjarna Valtýs, en hann lést 28. júní 2015. Bjarni Valtýr var bóndi á Svarfhóli…Lesa meira

true

Skafrenningur og vetrarfærð víða

Vetrarfærð er nú á öllu landinu; hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Snjókoma og éljagangur er á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Norðausturhorninu. Á Vesturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum og sumsstaðar skafrenningur. Þungfært er í Álftafirði og á Skarðsströnd. Éljagangur er í Dölum og snjókoma við Hafursfell. Skafrenningur er á stöku stað. Meðfylgjandi…Lesa meira

true

Efla samkennd og auka samvinnu

Boðskapurinn um Fríðu og Dýrið er sögusvið í Grundaskóla þessa vikuna Hefðbundið skólastarf í Grundaskóla á Akranesi var brotið upp í þessari viku. Áttu bæði nemendur og starfsfólk skólans samstarf þvert á skólastig og hefðbundnar bekkjardeildir urðu hluti af sögusviði Disney ævintýrsins um Fríðu og Dýrið, þar sem allir eru jafnir. Ævintýrið samdi upphaflega franski…Lesa meira

true

Byrjað að rífa Skeiðfaxa

Í dag var byrjað að rífa Skeiðfaxa, hið gamla en sérhæfða efnisflutningaskip Sementsverksmiðjunnar. Á síðasta ári auglýsti verksmiðjan skipið til sölu, en vænleg tilboð bárust ekki. Skipið hefur staðið undanfarið ár á búkkum á hafnarsvæðinu á Grenjum á Akranesi en nú er byrjað að búta það niður og járnið selt í endurvinnslu.Lesa meira

true

Byggðarráð skorar á heilbrigðisráðherra að fjölga hjúkrunarrýmum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í morgun var lagt fram erindi framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar um viðbrögð við svari heilbrigðisráðuneytisins við erindi stjórnar Brákarhlíðar, dags. 13. febrúar 2017. Stjórn heimilisins hafði óskað eftir fjölgun hjúkrunarrýma annarsvegar og hinsvegar breyttri samsetningu rýma í Brákarhlíð. Neikvætt svar ráðuneytisins barst þann 11. janúar 2019, tæpum tveimur árum eftir að erindið…Lesa meira

true

Fjölmiðlafrumvarp til kynningar í Samráðsgátt

Frumvarp um opinberan fjárstuðning við öflun og miðlun frétta og fréttatengds efnis var kynnt á blaðamannafundi í menntamálaráðuneytinu í morgun. Frumvarpið er unnið á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að bæta þurfi rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla og því meginmarkmiði stjórnvalda að efla lýðræðislega umræðu og lýðræðisþátttöku. Frumvarpsdrögin má nú finna í Samráðsgátt stjórnvalda þar sem áhugasamir eru…Lesa meira

true

Umferð til fyrirmyndar við leikskóla í Borgarnesi

Lögreglan á Vestulandi sinnti eftirliti við leikskólum í umdæminu í vikunni sem leið. Fylgst var með við leikskólana Klettaborg og Ugluklett í Borgarnesi. Í bókun lögreglu segir að þar hafi allt verið með sóma, öll börn spennt í bílstóla og lögregla er að vonum ánægð með það. Þá segir í dagbók lögreglu að Þorrablótið í…Lesa meira

true

Sigruðu á rafíþróttamóti

Íþróttafólk úr Snæfellsbæ lætur að sér kveða á ýmsum sviðum íþrótta þessa dagana. Um síðustu helgi tók Marteinn Gíslason, sem fæddur er í Ólafsvík, þátt í Reykjavík International Games í rafíþróttum. Þar keppti hann ásamt liði sínu í tölvuleiknum League of Legends. Gerðu þeir sér lítið fyrir og unnu á mótinu en sigur færði þeim…Lesa meira

true

Bökuðu sólarpönnukökur fyrir íbúa Snæfellsbæjar

Þær tóku daginn snemma konurnar í Kvenfélagi Ólafsvíkur á þriðjudag í liðinni viku. Þá bökuðu þær 2.070 sólarpönnukökur ýmist með sykri eða rjóma. Hófust þær handa við að baka um hálf fimmleitið um morguninn en deigið höfðu þær útbúið daginn áður að hluta til. Fyrirtæki og stofnanir sem höfðu pantað pönnukökur ýmist sóttu eða fengu…Lesa meira

true

Dönsuðu til sigurs á Reykjavíkurleikunum

Skagastúlkurnar og frænkurnar Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Demi van den Berg dönsuðu til verðlauna ásamt dansfélögum sínum á Reykjavík International Games um helgina. Rósa Kristín og Aron Logi Hrannarsson, sem dansa fyrir Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar, sigruðu í latindönsum í flokki unglinga II – meistaraflokki og þau Demi og Aldas Zgirskis úr Dansfélagi Bíldshöfða, höfnuðu þar í…Lesa meira