
Tónlistarskólinn á Akranesi býður til hádegistónleika á bóndadaginn í skólanum. „Hvernig væri að bjóða bóndanum á hádegistónleika föstudaginn 25. janúar klukkan 12.10? Nemendur í tónlistarskólanum töfra fram ljúfa tóna og konur úr kvennakórnum Ymi bera fram heita og góða súpu sem seld er á 1000 krónur. Allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá Tónlistarskólanum á Akranesi.Lesa meira








