Fréttir

true

Hestur sparkaði í konu

Kona hlaut skurð á höfði síðastliðinn sunnudag þegar hestur sparkaði í hana. Tildrög slyssins voru þau að konan var að skoða hóf á afturfæti hrossins. Þegar hún kraup niður á hnén sparkaði hesturinn í hana svo hún skarst á enni og hlaut áverka á hönd. Konan fékk aðhlynningu á heilsugæslunni í Borgarnesi.Lesa meira

true

Síðasti gæslumaðurinn hefur lokið vakt í skýli Hvalfjarðarganga

Um áramótin hætti Vegagerðin að halda úti mannaðri vakt í fyrrum gjaldskýli við norðurenda Hvalfjarðarganganna. Þar hafa ljósin því verið slökkt, utan aðventuljóss sem væntanlega mun loga þar skært næstu misserin. Eftir að ríkið eignaðist göngin og yfirtók rekstur þeirra var ákveðið að manna skýlið fyrst um sinn, án þess að viðkomandi starfsmenn innheimtu gjald.…Lesa meira

true

Færri nemendur tóku þátt í edrúpottinum

Um árabil hefur tíðkast að bjóða þeim nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands, sem sækja dansleiki á vegum skólans, að blása í áfengismæli og taka um leið þátt í happadrætti, svokölluðum edrúpotti. Þeir sem standast edrúprófið geta síðan unnið til verðlauna í lok skólaárs. Þátttaka í blæstri hefur undanfarin ár verið um 50%. „Á síðasta dansleik var þátttaka…Lesa meira

true

Jón Gísli Eyland til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA samdi í gær við Jón Gísla Eyland Gíslason. Gengur hann til liðs við ÍA frá Tindastóli. Jón Gísli er fæddur árið 2002 og hefur spilað 37 leiki með meistaraflokki Tindastóls og skorað í þeim eitt mark. Þá á hann að baki 13 leiki með U17 ára landsliði Íslands og þrjá leiki með U16.…Lesa meira

true

Aðstoðaryfirlögregluþjónn tekinn til starfa

Ásmundur Kristinn Ásmundsson er nýr aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Hann var skipaður til embættisins frá 1. janúar og verður með aðalskrifstofu sína á Akranesi, en starfið felur í sér viðveru um allan landshlutann. „Um er að ræða nýtt starf í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Hér áður fyrr voru þrír yfirlögregluþjónar. Nú er búið að…Lesa meira

true

Suðvestan strekkingur í dag

Í dag er spáð suðvestan 18-25 m/s á norðanverðu landinu í dag og gildir gul viðvörun Veðurstofunnar um allt norðanvert landið frá Vestfjörðum og austur á firði. Hvassast verður á Ströndum og Tröllaskaga, en mun hægari vindur hér syðra. Rigning eða súld verður vestantil, en þurrt að kalla eystra. Styttir upp og kólnar á Vestfjörðum…Lesa meira

true

Þorrablót Skagamanna framundan

Þorrablót Skagamanna verður haldið með pompi og prakt laugardaginn 26. janúar næstkomandi í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Venju samkvæmt er það Club 71 sem sér um blótið. Að sögn Guðráðs Sigurðssonar eins skipuleggjanda verður blótið hið glæsilegasta og búast þeir við um 750 manns. Það er því mikilvægt að hafa hraðar hendur að næla sér í…Lesa meira

true

Íbúafundur á Reykhólum í dag

Vegagerðin hefur boðað til íbúafundar á Reykhólum í dag, miðvikudaginn 9. janúar kl. 16:30. Fundurinn verður haldinn í matsal Reykhólaskóla. Þar ætla fulltrúar Vegagerðarinnar að upplýsa íbúa hreppsins og aðra um afstöðu stofnunarinnar til veglagningar um Gufudalssveit. Munu fulltrúar Vegagerðarinnar kynna vinnu sína og sjónarmið varðandi málið og ástæður fyrir niðurstöðu stofnunarinnar á vali á…Lesa meira

true

Gabríel Sindri til Skallagríms

Skallagrímur samdi á dögunum við hinn unga og efnilega leikstjórnanda Gabríel Sindra Möller. Hann er 19 ára gamall og kemur frá Njarðvík. Fyrir áramót lék hann með Hamri í 1. deild karla á venslasamningi frá Njarðvík, þar sem hann skoraði 10,9 stig að meðaltali í leik. Gabríel á að baki fjölmarga leiki með yngri landsliðum…Lesa meira

true

Tuttugu ár í dag frá flutningi LMÍ á Akranes

Í dag eru rétt tuttugu ár síðan Landmælingar Íslands hófu starfsemi sína með formlegum hætti á Akranesi. Stofnunin hafði á þeim tíma verið starfrækt frá árinu 1956 í Reykjavík en var flutt á Akranes eftir að nefnd á vegum forsætisráðuneytisins hafði tekið ákvörðun um að flytja nokkrar ríkisstofnanir út á land. Í tilefni afmælisins verður…Lesa meira