
Um áramótin hætti Vegagerðin að halda úti mannaðri vakt í fyrrum gjaldskýli við norðurenda Hvalfjarðarganganna. Þar hafa ljósin því verið slökkt, utan aðventuljóss sem væntanlega mun loga þar skært næstu misserin. Eftir að ríkið eignaðist göngin og yfirtók rekstur þeirra var ákveðið að manna skýlið fyrst um sinn, án þess að viðkomandi starfsmenn innheimtu gjald.…Lesa meira








