Fréttir

true

Tuttugu ár í dag frá flutningi LMÍ á Akranes

Í dag eru rétt tuttugu ár síðan Landmælingar Íslands hófu starfsemi sína með formlegum hætti á Akranesi. Stofnunin hafði á þeim tíma verið starfrækt frá árinu 1956 í Reykjavík en var flutt á Akranes eftir að nefnd á vegum forsætisráðuneytisins hafði tekið ákvörðun um að flytja nokkrar ríkisstofnanir út á land. Í tilefni afmælisins verður…Lesa meira

true

Laxeldisfyrirtæki á Vestfjörðum hljóta umhverfisvottun

Laxeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic Sea Farm hafa fengið ASC umhverfisvottun á framleiðslu sína. ASC (Aquaculture Stewardship Counsel) er ein strangasta umhverfisvottun þegar kemur að fiskeldi og þekkt um allan heim. Allur lax sem framleiddur verður á Vestfjörðum árið 2019 verður vottaður en bæði Arnarlax og Arctic Sea Farm eru staðsett þar. „Við erum mjög ánægð…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á Holta/Kjörfuglskjúklingi með rekjanleikanúmeri 005-18-48-3-01 vegna gruns um salmonellu sem fannst í reglubundinni sýnatöku við slátrun. Reykjagarður, sem framleiðir vöruna, hefur innkallað hana af markaði. Viðvörunin/innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu: Vörumerki: Kjúklingurinn er seldur undir merkjum Holta og Kjörfugls Vöruheiti: Ýmis Rekjanleikanúmer: 005-18-48-3-01 Framleiðandi: Reykjagarður Dreifing: Verslun Krónunnar í…Lesa meira

true

Heldur áfram allri framköllun á stafrænu efni

Í fréttaviðtali í Skessuhorni í desember síðastliðnum var sagt frá breytingum sem framundan eru í rekstri Framköllunarþjónustunnar í Borganesi. Þeir sem eingöngu lásu fyrirsögn fréttarinnar misskildu hins vegar innihald hennar. Hið rétta er að einungis stendur til að leggja einni vél, þeirri sem framkallar gömlu filmurnar. Rekstur hennar er of dýr miðað við fjölda filma…Lesa meira

true

Hollvinasamtökin færðu Brák björgunarvesti

Hollvinasamtök Borgarness afhentu á þrettándanum Björgunarsveitinni Brák björgunarvesti að gjöf sem þakklætisvott fyrir þátttöku sveitarinnar og fleiri bátaeigenda sem koma með bátana sína á Brákarhátíð og leyfa þeim sem vilja að fara í bátsferð. Hefur þessi viðburður ávallt slegið í gegn hjá öllum aldurshópum. „Stjórn Hollvinasamtaka Borgarness er Brák mjög þakklát fyrir þetta góða samstarf…Lesa meira

true

Framhaldsskólakeppnin Gettu betur hafin á Rás-2

Spurningakeppni framhaldsskólanna; Gettu betur hófst á mánudaginn á Rás-2. Spurningahöfundar og dómarar í Gettu betur eru að þessu sinni Ingileif Friðriksdóttir og Vilhelm Anton Jónsson auk Sævars Helga Bragasonar sem er þeim til aðstoðar. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður. Umsjón með Gettu betur hefur Elín Sveinsdóttir. Keppnin hvert kvöld er í beinni útsendingu á Rás…Lesa meira

true

Umhleypingar í kortunum

Í dag spáir Veðurstofan vaxandi suðlægri átt og fer að rigna hér um landið vestanvert samhliða hlýnandi veðri. Það bætir í vind af suðvestri í kvöld og nótt, og verður hvassviðri eða stormur norðan heiða á morgun en hægari vindur syðra. Hlýtt verður í veðri og er jafnvel búist við að hiti á Austurlandi fari…Lesa meira

true

Gamli þjóðvegurinn vart fær

Gamli þjóðvegurinn austan við Akranes, frá hringtorginu sem nefnist Kalmanstorg og að hesthúsahverfinu við Æðarodda er vart fær bílum og hvað þá fótgangandi. Einkum á tveimur köflum er hann sokkinn ofan í jörðina, alsettur holum og ofaníburður horfinn. Við veginn er meðal annars svæði þar sem hundeigendur geta viðrað sig og hunda sína, nokkur hesthús…Lesa meira

true

Atvinnuleysi að aukast

Áætlað er að 204.700 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í nóvember 2018, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands, en það jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 198.800 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,7% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 2,9%. Atvinnulausir í nóvember…Lesa meira

true

Meistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Skallagrímur tók á móti Íslandsmeisturum KR í Domino‘s deild karla í körfuknattleik að kvöldi þrettándans. Var það fyrsti leikur Skallagríms í deildinni eftir jólafrí og máttu Borgnesingar sætta sig við tap, 78-94. Skallagrímsmenn áttu erfitt uppdráttar í fyrsta leikhluta. KR-ingar mættu hins vegar ákveðnir til leiks og tóku öll völd á vellinum strax í upphafi.…Lesa meira