Fréttir

true

Nýtt skapgerðarmat vegna innflutnings hunda

Árlega eru um 160 hundar fluttir til Íslands víðs vegar að úr heiminum. Skilyrði til innflutnings eru m.a. bólusetning og sýnatökur auk fjögurra vikna einangrunar. Tilgangurinn er að draga úr líkum á að til landsins berist nýir dýrasjúkdómar. Samkvæmt lögum um innflutning dýra skal ekki heimila innflutning á gæludýrum sem hætta getur stafað af og…Lesa meira

true

Sveitakeppni GSÍ fer fram um helgina

Íslandsmót golfklúbba hefst á morgun, föstudaginn 24. júní, en keppnin fékk nýtt nafn í vor og heitir mótið nú Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins verða í eldlínunni með sínum klúbbum og að venju má búast við hörkuviðureignum. Keppt er í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Í karlaflokki hefur Golfklúbbur…Lesa meira

true

Faxaflóamót kjölbáta og fjöldi báta því væntanlegur

Faxaflóamót kjölbáta verður haldið um helgina, dagana 24. til 26.júní. Keppnin hefst kl. 17.00 á morgun þegar siglt verður frá Reykjavík til Akraness. Þar munu félagar í Sjósportfélaginu Sigurfara taka á móti keppendum og grillað verður í hafnarhúsinu. Á laugardeginum verða teknir nokkrir leggir um flóann og endað svo aftur í grillveislu í hafnarhúsinu um…Lesa meira

true

Hannaði göngustíg eftir strandlengju Borgarness

Vivica Anna Gardarsson kom frá Danmörku í febrúar og hefur verið í starfsþjálfun hjá teiknistofunni Landlínum í Borgarnesi, en hún á ættir sínar að rekja í Borgarfjörðinn. Vivica er að ljúka bachelor námi í landslagsarkitektúr við Háskólann í Kaupmannahöfn. Samhliða starfsnáminu hefur hún verið að vinna að lokaverkefni þar sem viðfangsefnið er göngustígur meðfram strandlengjunni…Lesa meira

true

Góðir vegir og kyrrð sem fyrr á Arnarvatnsheiði

Opnað var fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði um miðja síðutu viku. Sama dag var talsverður straumur veiðimanna á heiðina enda höfðu margir beðið þess með óþreyju að komast af stað. Vegurinn er í góðu ástandi allt frá Kalmanstungu og greiðfært í vötnin. Einungis vaðið á Norðlingafljóti hamlar því að annað en vel búnir jeppar eigi…Lesa meira

true

Brákarhátíð í Borgarnesi um helgina

Brákarhátíð verður haldin næstkomandi laugardag í Borgarnesi. Að sögn skipulagsaðila verður nóg um að vera og höfðað til allra aldurshópa. Að venju hefst hátíðin klukkan 9:00 að morgni á Brákarhlaupi, frá Granastöðum niður að Landnámssetri. Þess má geta að Þorgerður Brák hljóp á sínum tíma, með Skallagrím á hælunum, frá Granastöðum við Sandvík niður að…Lesa meira

true

Áhugi fyrir sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Snæfellsnesi

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur lýst yfir áhuga á að efna til viðræðna um hugsanlega sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Snæfellsnesi. Um er að ræða sveitarfélögin Stykkishólmsbæ, Helgafellssveit, Eyja- og Miklaholtshrepp og Grundarfjarðarbæ. Með slíkri sameiningu yrði til sveitarfélag með um 2.200 íbúa. Að sögn Sturlu Böðvarssonar bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar hefur síðustu misseri verið unnið skipulega að því í…Lesa meira

true

Gömlu stórveldin KR og ÍA mætast á morgun

Skagamenn leika sinn áttunda leik í Pepsi deildinni á morgun, fimmtudag. Leikurinn er gegn KR og spilaður í Vesturbænum í Reykjavík og hefst klukkan 19:15. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið; Skagamenn eru komnir í erfiða stöðu og sigur í leiknum myndi gera mikið fyrir liðið en það situr í næstsíðasta sæti með fjögur stig.…Lesa meira

true

Fjölmargir loka um nónbil í dag

Sífellt bætast við fyrirtæki sem leggja niður starfsemi síðdegis í dag vegna landsleiks Íslands og Austurríkis á EM sem hefst klukkan 16:00. Þar á meðal er ritstjórn Skessuhorns sem biður fólk um að virða það að ekki verður svarað í síma eftir klukkan 15.00. Góða skemmtun – og áfram Ísland!  Lesa meira

true

Steini Eyþórs nálgast lokamarkið

Borgnesingurinn Þorsteinn Eyþórsson hefur undanfarnar tvær vikur hjólað hringinn umhverfis Ísland. Hann lætur 62 ára aldur ekki aftra sér, enda ungur í anda og eldsprækur. Steini lagði af stað miðvikudaginn 8. júní frá Borgarnesi og mun enda för sína á sama stað og hún hófst klukkan 18:30 í kvöld, við Geirabakarí. Nú rétt í þessu…Lesa meira