Fréttir

true

Bílasalan Bílás boðin til sölu

Fasteignamiðlun Grafarvogs hefur fengið til sölumeðferðar Bílasölu Akraness ehf., eða hina rótgrónu bílasölu Bílás sem bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir hafa átt og rekið í 35 ár. Í auglýsingu kemur fram að fyrirtækið er í fullum rekstri og lagt er upp með að selja rekstur og um 600 fermetra fasteign að Smiðjuvöllum 17 sem eina…Lesa meira

true

Halla Margrét Jónsdóttir dúxaði í FVA

Halla Margrét Jónsdóttir útskrifaðist föstudaginn 21. desember síðastliðinn af náttúrufræðabraut frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Halla Margrét var dúx skólans með rúmlega 9,6 í lokaeinkunn. Hún segist þakka velgengninni að hún hafi haft gaman af náminu en sé þó líka dugleg að gera fleira en einungis að læra. „Námið liggur þokkalega fyrir mér en ég…Lesa meira

true

Anna Lilja Ásbjarnardóttir dúxaði við FSN

Laugardaginn 15. desember síðastliðinn útskrifaðist Anna Lilja Ásbjarnardóttir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Anna Lilja var dúx skólans að þessu sinni með 8,3 í meðaleinkunn. Aðspurð hvort nám hafi alltaf legið vel fyrir henni segir hún svo ekki vera. „Þegar ég var yngri var ég ekkert sérstaklega góður námsmaður. Ég hætti í menntaskóla þegar ég…Lesa meira

true

Fyrsta barn ársins fæddist á Akranesi

Fyrsta barn ársins er stúlka sem kom í heiminn á Akranesi laust eftir kl. 6:00 á nýársmorgun. Stúlkan vó 3.654 grömm og er 51 sentímetri að lengd. Foreldrar stúlkunnar eru Sigríður Hjördís Indriðadóttir frá Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit og Hannes Björn Guðlaugsson, búsett í Reykjavík. Stúlkan er ekki aðeins fyrsta barn ársins heldur einnig fyrsta barn…Lesa meira

true

Jafnvel met í fjölda flugelda á gamlárskvöld

Miklu var skotið upp af flugeldum á gamlárskvöld í Ólafsvík á Snæfellsnesi, en blíðskaparveður var í bænum og þriggja stiga frost svo allar aðstæður til þess að skjóta upp flugeldum voru eins og best verður á kosið. Það var greinileg að nú var keypt mikið af flugeldum og fróðir menn telja að flugeldafjöldinn hafi jafnvel…Lesa meira

true

Blautt og hvasst í kortunum

Veðurstofan spáir sunnan 10-15 m/sek, en vaxandi vindi síðdegis í dag og 15-23 m/sek í nótt, hvassast verður um landið norðvestanvert. Hægari vindur austantil á landinu, lengst af suðvestan 8-15 m/s. Rigning eða súld með köflum og hiti 4 til 10 stig, en þurrt norðaustan- og austanlands. Lægir annað kvöld.Lesa meira

true

Síðasta lestrarátak Ævars vísindamanns

Lestrarátak Ævars vísindamanns hóf göngu sína í fimmta og síðasta skiptið á nýársdag og stendur til 1. mars næstkomandi. Eins og áður geta allir nemendur í 1. – 10. bekk grunnskóla tekið þátt en einnig geta íslenskir krakkar erlendis verið hluti af átakinu. Þá er sú nýlunda í ár að nú geta foreldrar og forráðamenn…Lesa meira

true

Hálka á fjallvegum

Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði, Fróðárheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi. Vegagerðin segir aðrar leiðir á Vesturlandi greiðfærar.Lesa meira

true

Tveir nýir togarar í flota Fisk Seafood

Fisk Seafood ehf. gekk í lok árs frá kaupum á tveimur skipum af Gjögri hf. á Grenivík. Um er að ræða skuttogarana Vörð EA-748 og Áskel EA-749. Einnig keypti Fisk Seafood tæplega 660 tonn af aflaheimildum Gjögurs. Aflaheimildir Fisk Seafood verða eftir kaupin tæplega 23 þúsund tonn eða um 6% af úthlutuðum aflaheimildum fiskveiðiársins 2018/2019.…Lesa meira

true

Skessuhorn kemur út í fyrramálið

Gleðilegt ár kæru lesendur! Starfsfólk Skessuhorns er nú mætt til vinnu að nýju og undirbýr útgáfu á fyrsta blaði nýs árs. Hægt er að senda inn efni og panta auglýsingar framyfir hádegi í dag, en blaðið verður sent í prentun fyrir kvöldmat og borið út til áskrifenda í fyrramálið, fimmtudaginn 3. janúar. Útgáfan verður svo…Lesa meira