Fréttir

true

Skessuhorn kemur út í fyrramálið

Gleðilegt ár kæru lesendur! Starfsfólk Skessuhorns er nú mætt til vinnu að nýju og undirbýr útgáfu á fyrsta blaði nýs árs. Hægt er að senda inn efni og panta auglýsingar framyfir hádegi í dag, en blaðið verður sent í prentun fyrir kvöldmat og borið út til áskrifenda í fyrramálið, fimmtudaginn 3. janúar. Útgáfan verður svo…Lesa meira

true

Tækjuðu sig upp fyrir snjómoksturinn

Bræðurnir Vigfús og Guðmundur Bjarnasynir hjá B.Vigfússyni ehf. í Snæfellsbæ festu nýverið kaup á Valtra T214, 230 hestafla dráttarvél árgerð 2017 með ámoksturstækjum, en fyrirtækið flutti tækin sjálft inn. Pronar fjölplógur verður tengdur framan á vélina en að aftan er Dalen blásari. Fyrir voru þeir búnir að festa kaup á traktorsgröfu af gerðinni Cat 444F…Lesa meira

true

Loka þurfti Holtavörðuheiði

Í gær, gamlársdag, gerði stórhríð á Holtavörðuheiði með tilheyrandi ófærð á fjallinu. Björgunarsveitir úr Húnavatnssýslu og Borgarfirði fóru til aðstoðar fólki í föstum bílum. Björgunarsveitarmenn komu ferðalöngum til aðstoðar og könnuðu um leið hvort fleiri bílar væru fastir á heiðinni. Aðgerðir gengu vel samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu.Lesa meira

true

Í kvöld hvessir og hlánar á Vesturlandi

Vegagerðin vekur athygli á að í kvöld hvessir og hlánar um vestanvert landið og gæti orðið flughált um tíma. Ekki síst á norðanverðu Snæfellsnesi þar sem gera má ráð fyrir hviðum 30-35 m/s þvert á vegi frá um klukkan 16 og fram á kvöld. Færð á vegum á nýársdags: Hálka er á fjallvegum, á norðanverðu…Lesa meira

true

Strætó á hliðina í Dölum

Síðdegis í dag valt lítil hópferðabifreið á vegum Strætó bs. út af Vestfjarðavegi skammt frá afleggjaranum að Stóra Skógi í Dölum, sunnan við afleggjarann þar sem beygt er inn á Skógarstrandarveg. Bíllinn hafnaði á hliðinni. Bílstjóri og fjórir farþegar voru í bílnum og sluppu allir án teljandi meiðsla. Áætlunarbíllinn var á leið frá Hólmavík áleiðis…Lesa meira

true

Sótti tvö tonn af nýársþorski á Breiðafjarðarmið

Þeir voru nokkrir snæfellskir sjómenn sem nýttu gott veður nú milli hátíðanna og réru til fiskjar. Flestir taka þó langt frí framyfir áramót. Víða erlendis er sterk hefð fyrir því að fólk borði fisk um áramót eftir mikla kjötneyslu um jólin og má þá vænta góðs verðs á mörkuðum. Viðskiptavinir íslenskra sjómanna og útgerða í…Lesa meira

true

Reglugerð um hvenær skjóta má upp flugeldum

Vakin er athygli á því að í reglugerð um skotelda er leyfilegur skottími skemmri en áður. “Almenn notkun flugelda er leyfð frá 28. desember til 6. janúar frá kl. 10:00 til 22:00 og alla nýársnótt. Mikilvægt er að virða þessi takmörk til að gefa dýraeigendum kost á að viðra dýr sín án hættu á ofsahræðslu…Lesa meira

true

Varað við stormi á Breiðafjarðarsvæðinu og stórhríð á Vestfjörðum

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt norðan,- austan- og sunnanvert landið í kvöld og nótt. Fyrir Breiðafjarðarsvæðið gildir meðfylgjandi viðvörun: Það verður norðan stormur eða rok, 20-28 m/s og búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 30 m/s, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi, í Dölum og á Barðaströnd. Varasamt fyrir ökutæki…Lesa meira

true

Jarðskjálfti átti upptök sín í Skálafelli

Jarðskjálfti af stærðinni 4,4 á Richtersskala varð laust fyrir klukkan þrjú í nótt og átti upptök sín skammt vestur af Skálafelli á Hellisheiði, um átta kílómetra vest-suðvestan við Hveragerði. Margir vöknuðu við sjálftann og samkvæmt heimildum Skessuhorns fannst hann greinilega víða á Vesturlandi, meðal annars á Akranesi, Borgarnesi og í uppsveitum Borgarfjarðar, en einnig á…Lesa meira