
Fisk Seafood ehf. gekk í lok árs frá kaupum á tveimur skipum af Gjögri hf. á Grenivík. Um er að ræða skuttogarana Vörð EA-748 og Áskel EA-749. Einnig keypti Fisk Seafood tæplega 660 tonn af aflaheimildum Gjögurs. Aflaheimildir Fisk Seafood verða eftir kaupin tæplega 23 þúsund tonn eða um 6% af úthlutuðum aflaheimildum fiskveiðiársins 2018/2019.…Lesa meira








