Fréttir

true

Heimamenn fararstjórar á sunnudaginn í gönguför um Reykholt

Snorrastofa býður til útivistar í Reykholti sunnudaginn 26. júní næstkomandi kl. 15 þar sem gengið verður um staðinn með nokkrum áningum. Það eru þeir sr. Geir Waage og Óskar Guðmundsson rithöfundur sem leiða gönguna og rekja sögu mannlífs og mannvirkja um aldir. Að undanförnu hefur að margra mati verið lyft Grettistaki í hirðu og uppbyggingu…Lesa meira

true

Skagamenn unnu KR á lokasekúndu leiksins

Fyrr í kvöld mættust lið ÍA og KR á KR-velli. Bæði lið hafa farið illa af stað í deildinni og leikurinn því mikilvægur fyrir bæði lið. Fyrir leikinn var KR í áttunda sæti með níu stig en Skagamenn voru í næst neðsta með fjögur stig. Skagamenn unnu leikinn á dramatískan hátt á lokasekúndunni með rosalegu…Lesa meira

true

Göngumaðurinn á Arnarvatnsheiði fundinn

Björgunarsveitir á Vesturlandi og Húnavatnssýslum hafa verið kallaðar út til leitar að ferðalangi á Arnarvatnsheiði. Viðkomandi skilaði sér ekki til samferðarmanna sinna á umræddum tíma og tilkynntu þeir um málið til lögreglu sem óskaði eftir liðsinni björgunarsveita. Nú á níunda tímanum í kvöld eru björgunarsveitir á leið á staðinn. Uppfært 22:28 Göngumaðurinn sem leitað var…Lesa meira

true

Nýtt skapgerðarmat vegna innflutnings hunda

Árlega eru um 160 hundar fluttir til Íslands víðs vegar að úr heiminum. Skilyrði til innflutnings eru m.a. bólusetning og sýnatökur auk fjögurra vikna einangrunar. Tilgangurinn er að draga úr líkum á að til landsins berist nýir dýrasjúkdómar. Samkvæmt lögum um innflutning dýra skal ekki heimila innflutning á gæludýrum sem hætta getur stafað af og…Lesa meira

true

Sveitakeppni GSÍ fer fram um helgina

Íslandsmót golfklúbba hefst á morgun, föstudaginn 24. júní, en keppnin fékk nýtt nafn í vor og heitir mótið nú Sveitakeppni GSÍ. Flestir af bestu kylfingum landsins verða í eldlínunni með sínum klúbbum og að venju má búast við hörkuviðureignum. Keppt er í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki. Í karlaflokki hefur Golfklúbbur…Lesa meira

true

Faxaflóamót kjölbáta og fjöldi báta því væntanlegur

Faxaflóamót kjölbáta verður haldið um helgina, dagana 24. til 26.júní. Keppnin hefst kl. 17.00 á morgun þegar siglt verður frá Reykjavík til Akraness. Þar munu félagar í Sjósportfélaginu Sigurfara taka á móti keppendum og grillað verður í hafnarhúsinu. Á laugardeginum verða teknir nokkrir leggir um flóann og endað svo aftur í grillveislu í hafnarhúsinu um…Lesa meira

true

Hannaði göngustíg eftir strandlengju Borgarness

Vivica Anna Gardarsson kom frá Danmörku í febrúar og hefur verið í starfsþjálfun hjá teiknistofunni Landlínum í Borgarnesi, en hún á ættir sínar að rekja í Borgarfjörðinn. Vivica er að ljúka bachelor námi í landslagsarkitektúr við Háskólann í Kaupmannahöfn. Samhliða starfsnáminu hefur hún verið að vinna að lokaverkefni þar sem viðfangsefnið er göngustígur meðfram strandlengjunni…Lesa meira

true

Góðir vegir og kyrrð sem fyrr á Arnarvatnsheiði

Opnað var fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði um miðja síðutu viku. Sama dag var talsverður straumur veiðimanna á heiðina enda höfðu margir beðið þess með óþreyju að komast af stað. Vegurinn er í góðu ástandi allt frá Kalmanstungu og greiðfært í vötnin. Einungis vaðið á Norðlingafljóti hamlar því að annað en vel búnir jeppar eigi…Lesa meira

true

Brákarhátíð í Borgarnesi um helgina

Brákarhátíð verður haldin næstkomandi laugardag í Borgarnesi. Að sögn skipulagsaðila verður nóg um að vera og höfðað til allra aldurshópa. Að venju hefst hátíðin klukkan 9:00 að morgni á Brákarhlaupi, frá Granastöðum niður að Landnámssetri. Þess má geta að Þorgerður Brák hljóp á sínum tíma, með Skallagrím á hælunum, frá Granastöðum við Sandvík niður að…Lesa meira

true

Áhugi fyrir sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Snæfellsnesi

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur lýst yfir áhuga á að efna til viðræðna um hugsanlega sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Snæfellsnesi. Um er að ræða sveitarfélögin Stykkishólmsbæ, Helgafellssveit, Eyja- og Miklaholtshrepp og Grundarfjarðarbæ. Með slíkri sameiningu yrði til sveitarfélag með um 2.200 íbúa. Að sögn Sturlu Böðvarssonar bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar hefur síðustu misseri verið unnið skipulega að því í…Lesa meira