Fréttir

true

Handteknir fyrir meðferð og sölu fíkniefna

Þrír voru handteknir á Akranesi fyrir vörslu og meðferð fíkniefna og einn fyrir sölu og dreifingu síðastliðinn laugardag. Lagt var hald á kannabisefni og líklegt amfetamín sem fannst í fórum mannanna. Um meira en einungis vörsluskammta var að ræða. Játning liggur fyrir að sögn lögreglu og málið telst upplýst. Tveir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi…Lesa meira

true

Þrjú hálkuslys í umdæminu á liðnum dögum

Fimm minniháttar umferðarhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar á Vesturland í liðinni viku og þrjú hálkuslys. Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi rétt vestan við Borgarnes aðfararnótt mánudags. Bíllinn fór utan vegar og hafnaði á hvolfi úti í skurði. Hálka var á veginum þegar slysið varð. Tveir voru í bílnum en sluppu þeir báðir með minniháttar meiðsli. Nokkurn…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns er komið í dreifingu

Jólablað Skessuhorns kom út í dag. Blaðið er að vanda stærsta tölublað ársins og jafnframt það síðasta. Næsta blað kemur út fimmtudaginn 3. janúar. Í efnistökum Jólablaðs er víða komið við. Rætt er við áhugavert fólk víðsvegar um landshlutann, farið yfir fréttir líðandi árs, kveðjur úr héraði eru á sínum stað, lagðar fyrir getraunir í…Lesa meira

true

Tafir á umferð um Hvalfjarðargöng í kvöld og nótt

Í kvöld, aðfararnótt miðvikudagsins 19. desember frá klukkan 22 til 07, verður fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum vegna þrifa. Umferð er stöðvuð við gangnamunna uns fylgdarbíll kemur. Áætlað er að brottför frá hvorum enda sé á ca. 20 mínútna fresti. „Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og tillitsemi,“…Lesa meira

true

Hildur Björg er körfuknattleikskona ársins

Hildur Björg Kjartansdóttir, leikmaður Celta de Vigo á Spáni, er körfuknattleikskona ársins 2018. Er þetta í annað skiptið og jafnframt annað árið í röð sem hún er sæmd þessari heiðursnafnbót. Hildur Björg kemur frá Stykkishólmi og lék upp alla yngri flokka Snæfells. Hún þreytti frumraun sína með meistaraflokki liðsins haustið 2009 og lék með liðinu…Lesa meira

true

Sér fyrir endan á rekstri Sjávarsafnsins í Ólafsvík

Sjávarsafnið á Norðurtanga í Ólafsvík mun innan skamms verða lagt niður en lítil starfsemi hefur verið undanfarin ár og var ljóst fyrir nokkru að ekki yrði áfram rekið safn í húsinu. Þótti stjórn safnsins því eðlilegt að hluti  þeirra fjármuna sem eftir stóðu þegar búið verður að greiða skuldir safnsins og kostnað við að loka…Lesa meira

true

Fyrsti vísir að vita

Í tilefni af hundrað ára afmæli gamla vitans á Breiðinni á Akranesi verður minnisvarði um fyrsta vísi að vita á Akranesi formlega vígður á Akurshóli fimmtudaginn 20. desember klukkan 17:00. Að athöfn lokinni er gestum boðið til móttöku í Akranesvita þar sem hljómsveitin Ylja mun flytja ljúfa tóna. Opið verður í Gamla vitann og gestum…Lesa meira

true

Náði að flytja inn fyrir jól eftir að hafa lent í húsbruna síðasta sumar

Föstudagskvöldið 29. júní síðastliðinn lentu mæðgurnar Jóhanna Kristín Þorsteinsdóttir, Dalrós Líf og Friðmey Dóra í því að missa allar eigur sínar í húsbruna við Skagabraut á Akranesi. Á afmælisdegi Dalrósar föstudaginn 14. desember síðastliðinn, um fimm og hálfum mánuði eftir húsbrunann, fengu þær húsið sitt afhent á ný eftir viðgerðir og fluttu þær inn á…Lesa meira

true

Nýr bústjóri tekur við á Hesti í janúar

Snædís Anna Þórhallsdóttir og Helgi Elí Hálfdánarson búfræðingar frá Hvanneyri tóku við rekstri tilraunabúsins á Hesti í Borgarfirði árið 2015. Nú hafa þau látið af störfum og Logi Sigurðsson verið ráðinn nýr bústjóri og tekur hann við um miðjan janúar. Logi er fæddur í Reykjavík en flutti í Borgarfjörðinn sex ára gamall, þá fyrst að…Lesa meira

true

Reykkofinn á Kvíabryggju brann

Slökkvilið Grundarfjarðar var í kvöld kallað út vegna bruna á Kvíabryggju. Þar hafði glóð náð að læsa sig í reykkofa staðarins þar sem jólahangikjetið hékk í súð. Slökkvistarfi er nú lokið og gekk það vel. Reykkofinn er hins vegar ónýtur.Lesa meira