Fréttir

true

Fyrsti vísir að vita

Í tilefni af hundrað ára afmæli gamla vitans á Breiðinni á Akranesi verður minnisvarði um fyrsta vísi að vita á Akranesi formlega vígður á Akurshóli fimmtudaginn 20. desember klukkan 17:00. Að athöfn lokinni er gestum boðið til móttöku í Akranesvita þar sem hljómsveitin Ylja mun flytja ljúfa tóna. Opið verður í Gamla vitann og gestum…Lesa meira

true

Náði að flytja inn fyrir jól eftir að hafa lent í húsbruna síðasta sumar

Föstudagskvöldið 29. júní síðastliðinn lentu mæðgurnar Jóhanna Kristín Þorsteinsdóttir, Dalrós Líf og Friðmey Dóra í því að missa allar eigur sínar í húsbruna við Skagabraut á Akranesi. Á afmælisdegi Dalrósar föstudaginn 14. desember síðastliðinn, um fimm og hálfum mánuði eftir húsbrunann, fengu þær húsið sitt afhent á ný eftir viðgerðir og fluttu þær inn á…Lesa meira

true

Nýr bústjóri tekur við á Hesti í janúar

Snædís Anna Þórhallsdóttir og Helgi Elí Hálfdánarson búfræðingar frá Hvanneyri tóku við rekstri tilraunabúsins á Hesti í Borgarfirði árið 2015. Nú hafa þau látið af störfum og Logi Sigurðsson verið ráðinn nýr bústjóri og tekur hann við um miðjan janúar. Logi er fæddur í Reykjavík en flutti í Borgarfjörðinn sex ára gamall, þá fyrst að…Lesa meira

true

Reykkofinn á Kvíabryggju brann

Slökkvilið Grundarfjarðar var í kvöld kallað út vegna bruna á Kvíabryggju. Þar hafði glóð náð að læsa sig í reykkofa staðarins þar sem jólahangikjetið hékk í súð. Slökkvistarfi er nú lokið og gekk það vel. Reykkofinn er hins vegar ónýtur.Lesa meira

true

Ferðamenn á Kirkjufellinu fundnir

Björgunarsveitir af Snæfellsnesi fóru síðdegis í dag til aðstoðar tveimur mönnum sem lent höfðu í ógöngum á Kirkjufelli við Grundarfjörð. Höfðu þeir villst af slóða og að auki orðið viðskila við hvorn annan. Hvasst var á fjallinu og hált og auk þess tekið að rökkva þegar útkallið barst. Leit að mönnunum og björgun tókst prýðilega,…Lesa meira

true

Ferðamönnum komið til aðstoðar í Kirkjufelli

Björgunarsveitir á Snæfellsnesi eru nú farnar af stað til björgunar á Kirkjufell. Þar lentu tveir ferðamenn í ógöngum síðdegis í dag og óskuðu eftir aðstoð. Kváðust þeir hafa farið út af slóð og treystu sér ekki lengra. Að sögn björgunarsveitarmanna eru aðstæður á fjallinu ekki sérlega góðar, hvasst og blautt færi. Þá er myrkur auk…Lesa meira

true

Aðgangur að dvalarrými eða dagdvöl óháð aldri

Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum sem lagt var fram í því skyni að jafna aðgang þeirra sem þurfa á dvalarrými eða dagdvöl að halda, þannig að ekki sé lengur horft til aldurs heldur byggt á mati á þörf fólks fyrir þessi úrræði. Lögin öðlast þegar gildi. Í lagabreytingunni felst að heimilt…Lesa meira

true

Fyrirlestur og fræðsla um afleiðingar fikts með flugelda

Undanfarna daga hefur Bjarni Kr Þorsteinsson slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar farið í árlegar heimsóknir til til barna í sjöunda bekk grunnskóla á starfssvæði slökkviliðsins. Þetta eru Laugargerðisskóli og Grunnskóli Borgarfjarðar. Nú síðast fimmtudaginn 13. desember var röðin komin að nemendum í Grunnskóla Borgarness. Meðfylgjandi mynd var einmitt tekin í Gamla Mjólkursamlagshúsinu við Skúlagötu þar sem bekknum er…Lesa meira

true

Bikarhelgi að baki

Leikið var í 16 liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik um helgina. Snæfell og Skallagrímur komust bæði áfram í bikarkeppni kvenna, Skallagrímur fór áfram í bikarkeppni karla en ÍA féll úr leik. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 20. og 21. janúar næstkomandi.   Snæfell rústaði Þór Ak. Snæfellskonur rústuðu Þór Ak.…Lesa meira

true

Kvenfélagskonur úr Hvítársíðu komu færandi hendi

Kvenfélög í Borgarbyggð eru dyggir styrktaraðilar Brákarhlíðar í Borgarnesi. Í síðustu viku komu félagskonur í Kvenfélagi Hvítársíðu færandi hendi í Brákarhlíð og afhentu heimilinu ríflega þrjú hundruð þúsund krónur að gjöf. Peningur sá safnaðist á 90 ára afmæliskvöldvöku kvenfélagsins sem haldin var í Brúarási 9. nóvember síðastliðinn. Björn Bjarki Þorsteinsson framkvæmdastjóri í Brákarhlíð vill koma…Lesa meira