Fréttir

true

Aðgangur að dvalarrými eða dagdvöl óháð aldri

Alþingi hefur samþykkt frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum sem lagt var fram í því skyni að jafna aðgang þeirra sem þurfa á dvalarrými eða dagdvöl að halda, þannig að ekki sé lengur horft til aldurs heldur byggt á mati á þörf fólks fyrir þessi úrræði. Lögin öðlast þegar gildi. Í lagabreytingunni felst að heimilt…Lesa meira

true

Fyrirlestur og fræðsla um afleiðingar fikts með flugelda

Undanfarna daga hefur Bjarni Kr Þorsteinsson slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar farið í árlegar heimsóknir til til barna í sjöunda bekk grunnskóla á starfssvæði slökkviliðsins. Þetta eru Laugargerðisskóli og Grunnskóli Borgarfjarðar. Nú síðast fimmtudaginn 13. desember var röðin komin að nemendum í Grunnskóla Borgarness. Meðfylgjandi mynd var einmitt tekin í Gamla Mjólkursamlagshúsinu við Skúlagötu þar sem bekknum er…Lesa meira

true

Bikarhelgi að baki

Leikið var í 16 liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik um helgina. Snæfell og Skallagrímur komust bæði áfram í bikarkeppni kvenna, Skallagrímur fór áfram í bikarkeppni karla en ÍA féll úr leik. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 20. og 21. janúar næstkomandi.   Snæfell rústaði Þór Ak. Snæfellskonur rústuðu Þór Ak.…Lesa meira

true

Kvenfélagskonur úr Hvítársíðu komu færandi hendi

Kvenfélög í Borgarbyggð eru dyggir styrktaraðilar Brákarhlíðar í Borgarnesi. Í síðustu viku komu félagskonur í Kvenfélagi Hvítársíðu færandi hendi í Brákarhlíð og afhentu heimilinu ríflega þrjú hundruð þúsund krónur að gjöf. Peningur sá safnaðist á 90 ára afmæliskvöldvöku kvenfélagsins sem haldin var í Brúarási 9. nóvember síðastliðinn. Björn Bjarki Þorsteinsson framkvæmdastjóri í Brákarhlíð vill koma…Lesa meira

true

Móta nýja menntastefnu til ársins 2030

Um 1800 þátttakendur tóku þátt í fundaröð sem nýlokið er um mótun menntastefnu til ársins 2030. Alls voru haldnir 23 fræðslu- og umræðufundir haldnir út um allt land. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sótti marga fundina og þar fór yfir sýn og áherslur er koma að mótun nýrrar menntastefnu: „Það var frábært að fá tækifæri…Lesa meira

true

Jólasveinar Bridgefélags Borgarfjarðar

Áratugalöng hefð er fyrir því að eftir að fyrstu jólasveinarnir mæta til byggða, spila félagar í Bridgefélagi Borgarfjarðar jólasveinatvímenning. Í gærkvöldi fór jólasveinatvímenningur félagsins fram. Sem fyrr voru pör dregin saman. Niðurstaðan eftir kvöldið var afgerandi. Logi Sigurðsson bústjóri og Sigríður Arnardóttir bóndi stóðu uppi sem sigurvegarar, með 61,8% skor. Sigríður sló um leið nýtt…Lesa meira

true

Verðlaunað fyrir Sögu Borgarness

Verðlaunanefnd sjóðs sem kenndur er við Gjöf Jóns Sigurðssonar hefur tilkynnt um úthlutanir sjóðsins fyrir þetta ár. Sjóðurinn var stofnaður samkvæmt erfðaskrá Ingibjargar Einarsdóttur, ekkju Jóns Sigurðssonar forseta, árið 1879 og hefur með hléum veitt fræði- og vísindamönnum viðurkenningu fyrir vel samin rit og styrkt útgáfu þeirra og merkra heimildarrita. Úthlutað er úr sjóðnum annað…Lesa meira

true

Boða til íbúafundur um valkostagreiningu

Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur boðað til íbúafundar í Reykhólaskóla næstkomandi þriðjudagskvöld, 18. desember, kl. 16:40. Þar mun Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur hjá Viaplan, kynna valkostagreiningu sína á mögulegum leiðum Vestfjarðavegar um Reykhólahrepp. Að svo búnu taka við almennar umræður.Lesa meira

true

Þingsályktun sem boðar stórsókn í eflingu íslenskunnar

Þingsályktunartillaga um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi hefur verið lögð fram á Alþingi. Þar er lagt til að Alþingi álykti um mikilvægi íslenskrar tungu og nauðsyn þess að tryggja að tungumálið verði áfram notað á öllum sviðum íslensks samfélags og að unnin verði aðgerðaráætlun á því sviði í víðtæku samráði. Þingsályktunin er…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu gegn Fjölni

Snæfell tók á móti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi þar til gestirnir sigu fram úr seint í leiknum og sigruðu að lokum með 17 stigum, 67-84. Fjölnir byrjaði leikinn betur og komst í 6-17 um miðjan upphafsfjórðunginn. Snæfell náði þá góðri rispu og minnkaði muninn í…Lesa meira