Fréttir

true

Baráttuglaðir Borgnesingar máttu játa sig sigraða

Skallagrímur mátti játa sig sigraðan gegn toppliði Tindastóls, 89-73, þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var norður á Sauðárkróki. Tindastóll hafði heldur yfirhöndina framan af leik. Þeir byrjuðu betur og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 23-16. Skallagrímsmenn gáfu heimamönnum ekkert eftir í öðrum leikhluta og minnkuðu muninn…Lesa meira

true

Eldað yfir opnum eldi í vetrarkulda

Það er margt sem skátar taka sér fyrir hendur og oft við frumstæðar aðstæður. Á dögunum mættu vaskir skátar úr Skátafélaginu Stíganda í Dölum á fund þar sem verkefnið var að elda utandyra og yfir opnum eldi í kvöldmyrkrinu. Það vildi ekki betur til en svo að Vetur konungur bauð upp á nístingskulda en það…Lesa meira

true

Eldri borgarar héldu jólasamsæti

Árlegt jólakaffi Félags eldri borgara á Akranesi var síðastliðinn laugardag. Séra Eðvarð Ingólfsson fór með gamanmál, systurnar Auður og Lauga spiluðu og sungu en hjónin Rögnvaldur og Ragnheiður stýrðu samkomunni. Glatt var á hjalla eins og ætíð þegar þetta fólk kemur saman.Lesa meira

true

Árleg fullveldishátíð í Heiðarskóla

Fullveldishátíð er haldin í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit ár hvert. Hátíðin var að þessu sinni haldin á þriðjudegi í síðustu viku, 4. desember. Börn af yngsta stigi í Heiðarskóla auk elstu barna frá leikskólanum Skýjaborg sungu fyrir gesti og sögðu frá þeim forsetum sem hér hafa setið, auk þess sem þau fræddu áhorfendur um skjaldarmerki okkar…Lesa meira

true

Innbrot í Borgarnesi

Um klukkan 18 í kvöld var brotist inn í hús í Borgarnesi og þaðan stolið m.a. skartgripum. Lögreglan á Vesturlandi sendi strax út tilkynningu þar sem hún hvetur fólk í bænum til að vera vel á verði og tilkynna til 112 ef það verður vart við grunsamlegar mannaferðir, sérstaklega í kringum mannlaus hús. Lögregla biður…Lesa meira

true

Samtök sveitarfélaga fagna áformum um flýtingu vegabóta

Á fundi í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í gær var samþykkt ályktað um samgöngumál og fyrirhugaða flýtingu vegagerðar eins og meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur talað fyrir á Alþingi. Beinlínis er því fagnað að notuð verði veggjöld til að flýta framkvæmdum. Ályktunin er svohljóðandi: „Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fagnar áformum um að notuð…Lesa meira

true

Kynntu lög um áætlað samþykki til líffæragjafar

Kynningarfundur um lög um áætlað samþykki til líffæragjafar var haldin á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi í morgun. Kynningaátakið er með heitinu „Við gefum líf.“ Því er ætlað að kynna nýja löggjöf fyrir starfsfólki á heilbrigðisstofnunum. Kynningunni var varpað til annarra heilbrigðisstofnana á Vesturlandi í gegnum Netið. Ný lög um líffæragjafir taka gildi 1. janúar næstkomandi.…Lesa meira

true

Sjö sveitarfélög valin í tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóði bárust 33 umsóknir frá sveitarfélögum á landsbyggðinni vegna tilraunaverkefnis í húsnæðismálum. Markmið verkefnisins er að leita leiða til þes að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkir víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi íbúðarhúsnæði eins og segir á vef Íbúðalánasjóðs. Verkefnið tekur mið af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem…Lesa meira

true

Valdís Þóra og Haraldur Franklín valin kylfingar ársins

Golfsamband Íslands hefur valið kylfinga ársins 2018. Þeir eru Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Þetta er í annað skipti sem þau bæði hljóta þessa útnefningu. Valdís Þóra lék á sínu öðru tímabili í röð á LET Evrópumótaröðinni á árinu, en það er sterkasta mótaröð í…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á hluta Akraness í dag

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust á Akranesi í dag norðan Merkigerðis, vestan Kirkjubrautar/Kalmansbrautar, frá Kirkjubraut 40 til 60 og Stekkjarholti. Þá má búast við þrýstingsleysi á heitu vatni sunnan við Merkigerði og Skagabraut. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veitna. Þar er gert ráð fyrir því að heita vatnið verði komið á að nýju kl.…Lesa meira