Fréttir

true

Jón Þór mun taka sæti á Alþingi á morgun

Jón Þór Þorvaldsson, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, mun taka sæti Bergþórs Ólasonar á þingi á morgun. Þetta staðfesti hann í samtali við Skessuhorn nú rétt í þessu. Eins og sagt var frá í frétt hér á vefnum fyrr í dag, hugðist Jón Þór taka ákvörðum um hvort hann þægi þingsætið af loknum viðræðum við…Lesa meira

true

Mun ræða við forystu flokksins áður en þingseta verður ákveðin

Jón Þór Þorvaldsson flugstjóri hjá Icelandair er 1. varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi. Nú hefur Bergþór Ólason þingmaður tekið sér ótímasett leyfi frá þingstörfum og því þarf að kalla inn varamann. Skessuhorn hafði samband við Jón Þór og spurði hvort hann hygðist leggja flugmannshúfuna á hilluna og taka sæti á þingi. „Ég get ekki svarað því…Lesa meira

true

Aðventan er gengin í garð

Fyrsti sunnudagur í aðventu er í dag, sunnudaginn 2. desember. Aðventa er orð úr latínu og merkin: Adventus – „koman“ eða „sá sem kemur“. Í Kristni er aðventan fjórir síðustu sunnudagarnir fyrir jóladag. Að þessu sinni er fjórði sunnudagur í aðventu því Þorláksmessa.Lesa meira

true

Töluverð röskun á leikjaplani KKÍ

Vegna veðurs og færðar síðustu daga hefur orðið að gera talsverðar breytingar á leikjum í íslenska körfuboltanum. Tilkynning KKÍ er eftirfarandi: Domino´s deild kvenna: Frestaður leikur Skallagríms og Keflavíkur verður mánudaginn 3. desember kl. 19:15. Keflavík-Haukar sem var settur 5. desember verður nú 6. desember kl. 19:15. Snæfell-KR sem er settur 8. desember verður kl.…Lesa meira

true

Þæfingur og hálka á fjallvegum

Eftir daglega yfirferð starfsmanna Vegagerðarinnar um vegi í landshlutanum, var það niðurstaða þeirra í morgun að nú er snjóþekja og éljagangur á Bröttubrekku og þæfingur á Fróðárheiði og allt að Arnarstapa. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Víðast eru þó aðeins hálkublettir eða alveg autt. Ekki hafa fengist upplýsingar um Svínadal.Lesa meira

true

Útvarp Akranes komið í loftið

Útsendingar Útvarps Akraness hófust í dag kl. 13:00 með þætti Ólafs Páls Gunnarssonar, Takið ykkur stöðu. Útsendingar standa þar til síðdegis á sunnudaginn með fjölbreyttri dagskrá þar sem er að finna allt frá sögulegu efni til tónlistar, barnaþátta, gríns og gamans. Að vanda er það Sundfélag Akraness sem stendur fyrir útsendingum Útvarps Akraness. Hafa þær…Lesa meira

true

Opið fyrir umsóknir fram á mánudag í viðskiptahraðal á sviði ferðaþjónustu

Startup Tourism er viðskiptahraðall sem sérsniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að veita viðskiptahugmyndum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn til mánudagsins 3. desember á www.startuptourism.is. „Startup Tourism hefst þann 14. janúar 2019…Lesa meira

true

Reglugerðir er lúta að þjónustu við fatlað fólk

Birtar hafa verið fimm nýjar reglugerðir félags- og jafnréttismálaráðherra sem allar snúa að því að bæta þjónustu við fatlað fólk og efla eftirlit með aðbúnaði á heimilum og stofnunum sem þjóna fötluðum. Reglugerðirnar eru settar með stoð í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sem tóku gildi 1. október síðastliðinn. Í fyrsta…Lesa meira

true

Þórdís Kolbrún talin ein af leiðtogum framtíðarinnar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, er ein af hundrað stjórnmálaleiðtogum framtíðarinnar að mati tímaritsins Apolitical. Tímaritið sendi á miðvikudag frá sér listann „100 Future Leaders: The World‘s Most Influental Young People in Government“ eða „100 leiðtogar framtíðarinnar; áhrifamesta unga fólkið í ríkisstjórnum“ ef snara ætti heiti listans yfir á íslensku. Í inngangi…Lesa meira