Fréttir

true

„Ég er harðasti iðnaðarmaðurinn“

Leit stendur yfir að harðasta iðnaðarmanni Íslands. Það eru útvarpsstöðin X-ið 97.7 ásamt Würth sem standa fyrir valinu, sem nú fer fram í fjórða sinn. Undanfarnar vikur hefur hlustendum útvarpsstöðvarinnar boðist að tilnefna harðasta iðnaðarmanninn og hafa fjölmargar tilnefningar borist. Sérstök dómnefnd fór yfir tilnefningarnar og hefur valið sex iðnaðarmenn sem þóttu skara fram úr.…Lesa meira

true

Borgarbyggð hyggst fjárfesta fyrir rúma tvo milljarða

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær var framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins fyrir næstu fjögur ár lögð fram til fyrri umræðu og samþykkt að vísa henni til síðari umræðu. Samkvæmt tillögunni eru heildar fjárfestingar tímabilið 2019-2022 áætlaðar rúmir tveir milljarðar króna. Stærsta einstaka framkvæmdin er stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi sem nú er í gangi, en…Lesa meira

true

Árleg Legókeppni í Háskólabíói á morgun

Um tvö hundruð grunnskólanemendur víðs vegar af landinu taka þátt í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem fram fer í Háskólabíói á morgun, laugardaginn 10. nóvember. Að þessu sinni eru 22 lið frá 18 grunnskólum skráð til þátttöku og spreyta þau sig á forritun, rannsóknarverkefni, teymisvinnu og vélmennakappleik. Liðin hafa unnið ötullega…Lesa meira

true

Söfnun fyrir vefritið Úr vör á Karolina Fund

Söfnun stendur yfir á Karolina Fund fyrir nýtt vefrit, Úr vör, sem mun fjalla um hvernig fólk á Vestfjörðum og víðsvegar um landið notar skapandi aðferðir til að leita lausna. Stofnendur vefritsins eru hjónin Aron Ingi Guðmundsson og Julie Gasiglia sem stofnuðu og reka HÚSIÐ-Creative Space á Patreksfirði þar sem þau búa líka. „Úr vör…Lesa meira

true

Fasteignakaup á Vesturlandi í október

Á Vesturlandi var 67 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í októbermánuði samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá. Þar af voru 30 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um eignir í sérbýli og 15 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan í þessum viðskiptum var 1.850 milljónir króna og meðalupphæð á samning því 27,6 milljónir króna. Af þessum 67…Lesa meira

true

Óhapp í göngunum í gærkvöldi

Umferðaróhapp varð í Hvalfjarðargöngunum á tólfta tímanum í gærkvöldi. Fréttavefurinn ruv.is greinir frá og segir að tvær bifreiðar hafi verið óökufærar eftir óhappið. Bílstjórar komust þó nokkuð vel frá slysinu, að því er segir í dagbók lögreglu, en annar þeirra kvartaði yfir eymslum í hálsi.Lesa meira

true

Hross tekin úr vörslu eigenda

Matvælastofnun tók tvær hryssur og folöld þeirra úr vörslu hestaeiganda á Suðurlandi í vikunni sem leið. Þetta er í annað skipti á hálfu ári sem sami eigandi er sviptur sömu hrossum. Ástæða vörslusviptingarinnar er ófullnægjandi aðbúnaður hrossanna. Um folöld og mjólkandi hryssur var að ræða sem haldið var í beitarlausu gerði þar sem ekki var…Lesa meira

true

Vatnsskort í Hlíðarbæ má rekja til bilunar í dælu

Íbúar í Hlíðarbæ í Hvalfjarðarsveit gátu ekki hellt upp á kaffi í gærmorgun vegna þurrks í krönunum. Orsökin var þó ekki skortur á vatni heldur bilun í dælu sem dælir neysluvatni í geyma fyrir ofan Hlíðarbæ. Að sögn Marteins Njálssonar, umsjónarmanns fasteigna hjá Hvalfjarðarsveit, var brugðist við um leið og bilunarinnar varð vart. „Það er…Lesa meira

true

Íslenska gámafélagið selt fyrri eigendum

Félag í eigu stofnenda Íslenska gámafélagsins, stjórnarformannsins Jóns Þóris Frantzsonar og Ólafs Thordersen, hefur fest kaup á meirihluta hlutafjár í félaginu og dótturfélagi þess, Vélamiðstöðvarinnar. Kaupverðið er trúnaðarmál. Söluferli Íslenska gámafélagsins hófst í sumar þegar boðnir voru til sölu allir hlutir í félaginu í eigu eignarhaldsfélagsins Gufuness og framtakssjóðsins Auðar I slf. Hjá Íslenska gámafélaginu…Lesa meira

true

Tóku þátt í ringómóti í Mosfellsbæ

Sunnudaginn 4. nóvember fór fram að Varma í Mosfellsbæ keppni í ringói. Alls tóku fimm lið þátt í mótinu; eitt frá FaMos, eitt frá UMSB, eitt frá HSK, og tvö frá Glóðinni í Kópavogi. Þessi lið hafa hist þrisvar yfir tímabilið október til maí síðustu fjögur árin auk þess sem þau hafa verið þátttakendur á…Lesa meira