Fréttir

true

Skallagrímur sigraði Íslandsmeistarana

Skallagrímur vann góðan baráttusigur á Íslandsmeisturum Hauka í Borgarnesi í gærkvöldi. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik náðu Skallagrímskonur undirtökunum og sigruðu að lokum með 67 stigum gegn 53. Liðin skiptust á að leiða í upphafi leiks. Skallagrímskonur náðu síðan góðum kafla seinna hluta fyrsta leikhluta og leiddu að honum loknum, 21-12. En þær áttu erfitt uppdráttar…Lesa meira

true

Tvær milljónir ferðamanna á tíu mánuðum

Brottfarir erlendra farþega frá Leifsstöð í október síðastliðnum voru um 200 þúsund samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Þetta voru 17.700 fleiri en í október á síðasta ári. Fjölgunin í mánuðinum nam 9,7% milli ára en hún hefur einungis mælst hærri tvo mánuði ársins, í maí og september. Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir í október og fjölgaði þeim verulega…Lesa meira

true

Hálkublettir á fjallvegum

Nú eru hálkublettir á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á Laxárdalsheiði, en auk þess er þoka á Holtavörðuheiði. Hlýrra er á láglendi og því ekki hálka þar.Lesa meira

true

Kaldar kveðjur inn í kjarasamningsviðræður

„Miðstjórn ASÍ lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að hækka stýrivexti í dag og mun þessi ákvörðun ekki auðvelda að sátt náist í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins,” segir í yfirlýsingu frá ASÍ í dag. “Nú þegar eru stýrivextir hér á landi margfalt hærri en í nágrannalöndunum og vaxtastigið hefur veruleg…Lesa meira

true

Vilja styrkja stöðu ungmenna í stjórnsýslunni

Um liðna helgi var hópur ungmenna á aldrinum 14-25 ára saman kominn á Laugum í Sælingsdal á Ungmennaþingi Vesturlands. Það voru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem stóðu fyrir viðburðinum en honum var ætlað að efla þátttöku ungmenna í stjórnsýslunni sem og að efla starf ungmennaráða sem eru þegar starfandi í mörgum sveitarfélögum. Ungmennin deildu sín…Lesa meira

true

Ætla að kalla fram nýjar hugmyndir til að auka verðmæti sauðfjár

„Ég veit að það er fullt af fólki þarna úti sem er með hugmyndir. Þetta verður vonandi hvatning fyrir fólk að taka þær lengra,“ segir Eva Margrét Jónudóttir, sérfræðingur hjá Matís og einn skipuleggjenda Lambaþons sem verður haldið um næstu helgi, dagana 9.-10. nóvember. Lambaþonið verður sett í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og er ætlað að…Lesa meira

true

Þyrlan biluð og má ekki fljúga blindflug

Bilun kom nýlega upp í flugleiðsögubúnaði einnar þriggja þyrlna Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF. Þyrlan má því ekki fara í blindflug. Komi upp neyðarástand úti á sjó að nóttu til getur Landhelgisgæslan því ekki brugðist við. Haft er eftir Sigurði Heiðari Wiium, yfirflugstjóra Landhelgisgæslunnar, í Morgunblaðinu í dag, að nauðsynlegt sé að hafa þyrlu sem sé hæf í…Lesa meira

true

Seðlabankinn hækkar stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lýsti í morgun þeirri ákvörðun sinni að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4,5% í stað 4,25%. „Hagvöxtur á síðasta ári og á fyrri hluta þessa árs var meiri en fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Þrátt fyrir vísbendingar um hægari vöxt…Lesa meira

true

Umsóknir í lokahnykk ljósleiðaraverkefnis

Fjarskiptasjóður hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki í átaksverkefninu Ísland ljóstengt fyrir árið 2019. Umsóknarferli vegna ársins 2019 skiptist í A, B og C-hluta. Stefnt er að undirritun síðustu samninga á grundvelli verkefnisins vorið 2020 og er tekið á móti umsögnum vegna A- hluta til 23. nóvember nk. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að…Lesa meira

true

Mikill vindur á Breiðafirðinum

Gul viðvörun sökum hvassviðris er fyrir Vestfirði fyrir morguninn og eitthvað fram eftir degi. Hvasst verður á Breiðafirðinum, eða 12-18 m/s. Útlit er fyrir að það lægi með kvöldinu.Lesa meira