Fréttir

true

Víða komið saman á kvennafrídeginum

Konur komu víða um land saman í gær í tilefni kvennafrídagsins. Víða lögðu þær niður störf klukkan 14:55, en eftir þá mínútu vinna konur kauplaust miðað við kynbundinn launamun. Stærsta samkoman á landsvísu var á Arnarhóli í Reykjavík þar sem baráttufundur var haldinn og ávörp flutt. Þeim fundi var sjónvarpað beint og var víða sest…Lesa meira

true

Ásmundi veitt menningarverðlaun Akraneskaupstaðar

Ólafur Páll Gunnarsson, formaður menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar setti menningarhátíðina Vökudaga við upphaf tónleikanna Af fingrum fram sem fram fóru í Tónbergi í gærkvöldi. Við það tilefni veitti hann jafnframt Ásmundi Ólafssyni Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2018. Verðlaunin eru veitt árlega í tengslum við Vökudaga, nú í tólfta skipti. Menningarverðlaun Akraness eru almennt veitt þeim…Lesa meira

true

Vestlendingar margir á faraldsfæti

Á íþróttasíðum Skessuhorns í vikunni er m.a. greint frá því að þátttaka á einmenningsmót i boccia sem íþróttafélög eldri borgara halda reglulega á Vesturlandi, hafi verið með dræmara móti að þessu sinni. Ástæðan var sögð að um helmingur reglulegra þátttakenda á mótunum var staddur á erlendri grundu. Undanfarna daga stóðu auk þess vetrarfrí yfir víða…Lesa meira

true

Sækir í ríkulegan reynslubanka í bókinni Heiður

Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur, er alin upp í Galtarholti í Hvalfjarðarsveit. Hennar hlutur í jólabókaflóðinu að þessu sinni er bókin Heiður. Í henni fær lesandinn að kynnast eftirköstum þjóðernisátakanna á Norður-Írlandi. Sagan er um togstreituna á milli þess að berjast fyrir réttindum heillar þjóðar eða hamingju eigin fjölskyldu. Í bakgrunni eru átökin sem áratugum saman héldu…Lesa meira

true

Indland bætist við útflutningslönd dilkakjöts

Matvælastofnun hefur undanfarin tvö ár ásamt hagsmunaaðilum og sendiráði Íslands í Indlandi unnið að öflun leyfis til útflutnings á lambakjöti frá Íslandi til Indlands. Samningaviðræðum er nú lokið og er útflutningurinn orðinn að veruleika, en þó með takmörkunum. Þetta er annar stóri erlendi markaðurinn sem opnast fyrir íslenskt lambakjöt í haust, en núverið var undirritaður…Lesa meira

true

Vetrarstarf Rauða krossins í Borgarbyggð skipulagt

Stjórn Borgarfjarðardeildar Rauða krossins hélt fund síðastliðinn mánudag þar sem starfsemi komandi vetrar var skipulögð. Blaðamaður heyrði í Guðrúnu Völu Elísdóttur formanni Borgarfjarðardeildar Rauða krossins eftir fundinn og rædd við hana um áherslur vetrarins. Eitt af stærri verkefnum RKÍ í Borgarfirði er fataverslun sem deildin hefur rekið í Borgarnesi um nokkurra ára skeið. Þar er…Lesa meira

true

Skagaleikflokkurinn skemmtir gestum á Vökudögum

Skagaleikflokkurinn ætlar að kitla hláturtaugar gesta menningarhátíðarinnar Vökudaga, sem hefst á Akranesi á morgun. Færðir verða á fjalirnar fjórir gríneinþáttungar, sem spunnir hafa verið saman í eina sýningu. Þessa dagana eru leikfélagar í Skagaleikflokknum önnum kafnir við æfingar á Gamla Kaupfélaginu, þar sem sýningarnar verða. Frumsýnt verður næstkomandi laugardagskvöld, 27. október. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson.…Lesa meira

true

Skipuleggjendur ánægðir með fyrstu REKO afhendingarnar

Skessuhorn hefur undanfarnar vikur sagt frá nýrri tegund dreifileiðar sem er að ryðja sér til rúms hér á landi og gengur undir nafninu REKO. Fyrsta afhending Facebook hópanna REKO Vesturland og REKO Reykjavík var laugardaginn 13. október síðastliðinn og gengu báðar vonum framar að sögn skipuleggjenda. Á annan tug framleiðenda á Suðvesturlandi afhentu neytendum vörur…Lesa meira

true

Segir að búa þurfi betur að eldri borgurum

Þórunn Kristinsdóttir flutti í Grundarfjörð með manni sínum og börnum árið 1975 og hefur búið þar síðan. „Maður flutti þangað sem var húsnæði og vinnu að fá,“ segir Þórunn sem hefur alla sína starfsævi var við fiskvinnslu og önnur tilfallandi störf. Hún starfaði til margra ára fyrir Verkalýðsfélagið Stjörnuna í Grundarfirði og gegndi þar formennsku.…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í Hólminum í kvöld

Fjórir leikir fara fram í kvöld klukkan 19:15 í fimmtu umferð Domino´s deildar kvenna í körfubolta. Meðal viðureigna kvöldsins er Vesturlandsslagur, en Skallagrímur heimsækir Snæfell í Hólminn. Fyrirfram er búist við hörkuleik enda staðan í deildinni býsna jöfn þegar fjórar umferðir eru búnar. Þannig munar einungis tveimur stigum á fyrsta og sjöunda sæti í deildinni.…Lesa meira