Fréttir

true

Mál gegn Hval fellt niður að kröfu VLFA

Mál Verkalýðsfélags Akraness gegn Hval ehf. fyrir Félagsdómi hefur verið fellt niður að kröfu verkalýðsfélagsins. Málskostnaðaður féll niður. Morgunblaðið greindi frá. Forsaga málsins eru deilur VLFA við Hval á liðnu sumri sem áður hefur verið greint frá í Skessuhorni. Verkalýðsfélagið stefndi Hval fyrir félagsdóm og krafðist þess að viðurkennt yrði að gildandi kjarasamningur Starfsgreinasambandsins og…Lesa meira

true

Góð dekk margborga sig

Tími vetrardekkja er kominn víða um land, sér í lagi á heiðum. Hjá mörgum er það fastur liður að skipta um dekk tvisvar á ári á meðan aðrir eru á dekkjum sem notuð eru bæði sumar og vetur. Hvaða gerð sem notuð er, skiptir öllu að dekkin séu góð. Á veturna á mynstursdýptin að vera…Lesa meira

true

Kynntu aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess

Á fundi ríkisstjórnar Íslands í morgun var kynnt tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Áætlunin nær til til næstu fjögurra ára og verður unnið í samstarfi fjögurra ráðuneyta. Stýrihópur með fulltrúum hlutaðeigandi ráðuneyta hefur unnið að áætluninni í samstarfi við fjölda aðila á síðustu misserum. Áætlunin tekur til ofbeldis í ólíkum…Lesa meira

true

Villi býður sig fram til varaforseta ASÍ

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness tilkynnti í gærkvöld að hann sækist eftir embætti eins af varaforsetum Alþýðusambands Íslands. Þing ASÍ hefst á morgun. „Ástæðan fyrir þessari ákvörðun minni er ákall frá hinum almenna félagsmanni um að breytingar verði gerðar á æðstu forystu ASÍ. Ég tel mig svo sannarlega geta lagt mín lóð á vogarskálarnar til…Lesa meira

true

Telja vinnu fanga brot á lögum um fullnustu refsinga

„Alþýðusambandi Íslands hefur ítrekað borist ábendingar vegna vinnu fanga af Kvíabryggju á almennum vinnumarkaði. Þar má nefna vinnu við fjölbýli sem verið er að gera upp fyrir langtímaleigu, uppgerð sveitabýlis fyrir gistiþjónustu og vinnu hjá flutningafyrirtæki,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Tekið er fram að ekki eru gerðar athugasemdir við betrunarvinnu sem slíka enda fari…Lesa meira

true

Þjóðminjasafn kannar loftslagsbreytingar og framtíðina

Þjóðminjasafn Íslands sendir nú út spurningaskrá með heitinu „Loftslagsbreytingar og framtíðin“ í samvinnu við þjóðháttasöfn í Noregi og í Svíþjóð. Með spurningaskránni óskar Þjóðminjasafnið eftir liðsinni almennings við að safna upplýsingum um afstöðu fólks til loftslagsbreytinga af mannavöldum, hvaða áhrif þær hafa á líf þess og hvernig það ímyndar sér framtíð með eða án loftslagsbreytinga.…Lesa meira

true

Kynningarfundur um vindorkugarð í Garpsdal

Fyrirtækið EM Orka mun standa fyrir kynningarfundi vegna fyrirhugaðs vindorkugarðs í landi Garpsdals í Gilsfirði annað kvöld, miðvikudaginn 24. október. Þar verður verkefnið kynnt, farið yfir hvernig það mun birtast íbúum í nágrenninu og hver ávinningur Reykhólahrepps mun verða af því. Þá munu fulltrúar verkfræðistofunnar Mannvits kynna umhverfismats verkefnisins. Fundurinn verður haldinn í Nesheimum, gamla…Lesa meira

true

Kynningarfundur á morgun um næsta Startup Tourism

Startup Tourism er viðskiptahraðall sem sérsniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að veita viðskiptahugmyndum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn til 3. desember næstkomandi.  Næsti Startup Tourism áfangi hefst 14. janúar 2019 og…Lesa meira

true

Brynhildur náði lágmarki á NM í sundi

Brynhildur Traustadóttir sundkona úr ÍA náði um helgina lágmarki á Norðurlandameisraramót sem fram fer í Finnlandi í desember. Þessum árangri náði hún á Extra-móti SH sem haldið var í Ásvallalaug. Sundfélag Akraness átti níu sundmenn á mótinu. Árangur Skagakrakkanna var góður og náðu þau öll að bæta fyrri árangur. Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti sig meðal…Lesa meira

true

Fyrsta tilfelli kúariðu í Skotlandi í áratug

Kúariða hefur greinst á nautgripabúi í Skotlandi. Þetta er fyrsta tilfelli hefðbundinnar kúariðu í landinu í tíu ár. Fáein tilfelli hafa komið upp í Evrópu á undanförnum árum en lítil hætta er á að sjúkdómurinn komi upp á Íslandi, samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun. Dreifingarbann hefur verið sett á nautgripi frá búi í Aberdeenshire í Skotlandi…Lesa meira