Fréttir

true

Frumvarp sem styðja á við íslenska bókaútgáfu

Með frumvarpi um stuðning við bókaútgáfu er lagt til að komið verði á fót nýju stuðningskerfi sem heimilar endurgreiðslu 25% beins kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær en það er liður í heildstæðum aðgerðum stjórnvalda til stuðnings íslenskri tungu sem ráðherra kynnti fyrr…Lesa meira

true

Eftirspurn eftir slátrun er umfram væntingar

Eins og greint var frá í Skessuhorni í september tók hópur áhugafólks um rekstur sláturhúss í Borgarnesi sláturhúsið í Brákarey á leigu í haust og stendur þar fyrir slátrun. Að sögn Þorvaldar T Jónssonar forsvarsmanns hópsins hefur eftirspurn eftir slátrun verið umfram væntingar í haust. „Það er næstum uppbókað í október svo við ætlum að…Lesa meira

true

„Allir geta unnið sínu umhverfi eitthvað gott“

Halla Margrét Jónsdóttir er einn nemenda í stjórnmálafræðiáfanga sem kenndur er við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Á dögunum fengu nemendur það verkefni að taka viðtal við stjórnmálamann, núverandi eða fyrrverandi. Halla Margrét og Hanna Louisa tóku viðtal við reynsluboltann Ingibjörgu Pálmadóttur á Akranesi. Halla vann síðan texta upp úr viðtalinu og fékk góða endurgjöf frá…Lesa meira

true

Bæta kynheilbrigðisþjónustu

Bæta á aðgengi kvenna, einkum ungra kvenna, að kynheilbrigðisþjónustu og nýta betur fagþekkingu hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra samkvæmt frumvarpi til breytinga á lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja fram á Alþingi. Samkvæmt því verður ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum heimilað að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum. Ráðherra kynnti frumvarpið á fundi…Lesa meira

true

Vegagerðin mælir áfram með leið Þ-H um Reykhólasveit

Telur Þ-H leið ódýrari kost, öruggari og styttri Vegagerðin hefur birt niðurstöðu frumathugunar á vænleika þess að leggja Vestfjarðaveg um Reykhóla og með brú yfir utanverðan Þorskafjörð, en að öðrum kosti að fara svokallaða Þ-H leið um Teigsskóg. „Niðurstaða könnunar Vegagerðarinnar á svokallaðri R-leið um Reykjanes og utanverðan Þorskafjörð er að hún er töluvert dýrari…Lesa meira

true

Styrkja fótboltann vegna góðs árangurs

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í liðinni viku var samþykkt tillaga Rakelar Óskarsdóttur bæjarfulltrúa um að veita KFÍA styrk að fjárhæð ein milljón króna vegna árangurs meistaraflokks og annars flokks karla í knattspyrnu í sumar. Meistaraflokkur karla sigraði eins og kunnugt er í Inkasso deildinni og fer sem sigurvegari í Pepsí deildina að ári.  Annar flokkur…Lesa meira

true

Ísland án sigurs í Þjóðadeildinni

Ísland er enn án sigurs í A deild Þjóðadeildar UEFA eftir 2-1 tap gegn Sviss á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og lítið um opnanir. Staðan í hléinu var því 0-0 en Svisslendingar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti. Þeir komust yfir á 52. mínútu þegar Haris Seferovic skoraði með skalla af stuttu…Lesa meira

true

VR samþykkir kröfugerð sína

Á fundi trúnaðarráðs VR í gærkvöldi var kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamningaviðræður samþykkt. „Í kröfugerðinni kemur fram að markmið með gerð kjarasamninga nú verði að rétta hlut þeirra lægst launuðu og auka ráðstöfunartekjur allra félagsmanna VR. Það sé því mikilvægt að bregðast við því misræmi sem sjá má í launaþróun þeirra hæst launuðu í þjóðfélaginu…Lesa meira

true

Fjallað um hrossahald á fræðslukvöldi Borgfirðings

Annað kvöld, miðvikudaginn 17. október klukkan 20, verður Guðlaugur V Antonsson með fyrirlestur um hrossahald, aðbúnað og eftirlit. „Fjallað verður meðal annars um innréttingar i hesthúsum og þær reglugerðir sem þeim fylgja. Fyrirlesturinn verður í félagsheimili Borgfirðings, frítt inn og allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Borgfirðings.Lesa meira

true

Bleikur himinn á bleikum föstudegi

Föstudagurinn 12. október var Bleiki dagurinn. Hann hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og hápunktur bleika októbermánuðarins. Þennan dag eru landsmenn hvattir til að sýna samstöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi. Dagurinn er tileinkaður vakningu fyrir brjóstakrabbameini. Meðfylgjandi mynd var tekin úr blokkinni á Sólmundarhöfða yfir Langasand og byggðina á Akranesi. Síðdegis þennan…Lesa meira