Fréttir

true

Egill kominn heim í Borgarnes

Í liðnum mánuði keypti Eðalfiskur í Borgarnesi þrotabú Egils sjávarafurða á Siglufirði. Innifalið í kaupum voru vélar, tæki og vörumerkið Egils síld. „Meginhluti starfsemi Egils var reyktur lax sem seldur var á Bandaríkjamarkað og með kaupunum erum við hjá Eðalfiski að styrkja stöðu okkar með útflutningi. Nú má segja að Egill sé kominn heim í…Lesa meira

true

Fyrsti sigurinn í meira en ár

ÍA bar sigurorð af liði Stál-úlfs á útivelli, 91-108, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Sigurinn var fyrsti sigur Skagamanna í Íslandsmótinu í körfuknattleik í meira en ár, en liðið tapaði öllum leikjum sínum í 1. deildinni á síðasta keppnistímabili. Eftir tvo leiki hafa Skagamenn því tvö stig í sjötta…Lesa meira

true

Grunnskólabörn í varðskipinu Þór í Stykkishólmi

Varðskipið Þór kom í fyrsta sinn til hafnar í Stykkishólmi síðastliðinn fimmtudag. Nemendum í þriðja bekk í Grunnskólanum í Stykkishólmi var boðið um borð í varðskipið og fengu þeir bæði höfðinglegar móttökur og leiðsögn hjá sjálfum forstjóra Gæslunnar; Georg Lárussyni. Börnin í þriðja bekk eru um tuttugu talsins. Þau voru að vonum glöð með þetta…Lesa meira

true

Kartöfluuppskeran fremur rýr að þessu sinni

Vætutíð framan af sumri var ekki hagfeld til kartöfluræktunar, ef marka má uppskeruna víða. Þó eru að sjálfsögðu undantekningar á því þar sem aðstæður hafa hentað veðráttu sumarsins. Þá eru sumir sem einfaldlega geta ræktað kartöflur, sama hvernig viðrað, hafa það í blóðinu. Meðfylgjandi myndir voru teknar við kartföflugarðana á Akranesi um þarsíðustu helgi. Þar…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður um helgina

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 verður haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 12. til 14. október næstkomandi. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra sýningarinnar, verður þetta stærsta landbúnaðarsýning sem haldin hefur verið í Laugardalshöll. Þegar hafa um eitt hundrað sýningaraðilar pantað bása bæði á úti- og innisvæði sýningarinnar og er uppselt. Jafnframt er haft eftir Ólafi…Lesa meira

true

Hreystigarður fyrir fullorðna á döfinni á Akranesi

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að settur yrði upp hreystigarður fyrir fullorna á Langasandssvæðinu. Verður garðurinn fyrir neðan Akraneshöllina. Hreystigarðurinn verður útbúinn átta líkamsræktartækjum með gervigras sem undirlag og gróður í kring til skjól- og rýmismyndunar. Sömuleiðis verða sett upp upplýsingaskilti sem sýna m.a. hvernig nota megi tækin til fjölbreyttar líkamsræktar. Tækin…Lesa meira

true

Snæfell steinlá gegn Vestra

Snæfell tapaði stórt gegn Vestra, 80-47, þegar liðin mættust á Ísafirði í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar skoruðu fyrstu stig leiksins, sem fór rólega af stað, en ekki leið á löngu þar til heimamenn í Vestra náðu undirtökunum og leiddu með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta, 14-8. Snæfellingar héldu…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Íslandsmeistarana

Snæfellskonur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Keflavíkur, 87-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Leikurinn var jafnframt fyrsti heimaleikur Stykkishólmsliðsins í vetur. Snæfellskonur byrjuðu af krafti og komust í 10-0 áður en gestirnir komust á blað. Þær höfðu yfirhöndina allan fyrsta leikhlutann og höfðu afgerandi forystu að honum loknum, 34-18.…Lesa meira

true

Námskeið fyrir grunnskólabörn á Vesturlandi í skapandi skrifum

Menntamálastofnun og Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda (SÍUNG) bjóða upp á námskeið í skapandi skrifum í völdum skólum á Vesturlandi. Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, stýrir námskeiðinu sem er ætlað til að auka áhuga barna á lestri bóka og ritun. Allir skólar á Vesturlandi sem var boðið var upp á námskeiðið hafa þegið boðið.…Lesa meira