Fréttir

true

Húsbíll fauk á hliðina

Húsbíll fauk á hliðina þar sem honum var ekið um Borgarfjarðarbraut í morgun. Leiðindaveður var á staðnum þegar óhappið varð, eins og reyndar víðar í landshlutanum, rigning og hvasst. Fjórir voru í bílnum þegar hann fauk á hliðina en allir sluppu þeir án meiðsla, að því er fram kemur á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Vegfarendur…Lesa meira

true

Óveður um vestanvert landið

Á Vesturlandi og Vestfjörðum eru hálkublettir á Hrafnseyrarheiði en snjóþekja á Þorskafjarðarheiði og Dynjandisheiði. Óveður er á Holtavörðuheiði, í Kolgrafarfirði, á Hálfdán og á Mikladal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Rakel og Bjarni kosin í stjórn stjórn SÍS

Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem nú stendur yfir á Akureyri var kosin ný stjórn samtakanna. Í henni eiga sæti ellefu fulltrúar og aðrir ellefu til vara. Fyrir Norðvesturkjördæmi voru kjörin í aðalstjórn þau Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi og Bjarni Jónsson sem sæti á í sveitarstjórn Skagafjarðar. Til vara verða þau Daníel Jakobsson á…Lesa meira

true

Þurfa 120 þúsund króna hærri laun en aðrir Norðurlandabúar

Greiðslubyrði af 35 milljóna króna húsnæðisláni á Íslandi er 72 þúsund krónum hærri á mánuði en á hinum Norðurlöndunum, sé miðað við óverðtryggð lán til 30 ára. Þetta má sjá í umfjöllun í nýjasta Efnahagsyfirliti VR. Laun á Íslandi þurfa að vera umtalsvert hærri en í samanburðarlöndunum til að standa undir hárri greiðslubyrði lána. Í…Lesa meira

true

Leyfi til laxeldis felld úr gildi í Patreksfirði og Tálknafirði

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í gær tvo úrskurði þar sem felld er úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um að veita Fjarðarlaxi ehf. og Arctic Sea Farm rekstrarleyfi fyrir 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Niðurstaða nefndarinnar byggir á að umhverfismatsskýrsla fyrirtækjanna og álit Skipulagsstofnunar á skýrslunni geti ekki verið lögmætur…Lesa meira

true

Um eða uppúr klukkan 13 lýkur gjaldtöku

Eftir hádegið í dag verður slökkt á þeim búnaði við Hvalfjarðargöngin sem haft hefur það hlutverk síðan í júlí 1998 að skrá umferð og bókfæra gjald af vegfarendum. Jafnframt hættir sala veggjalda í skýlinu. Af þessu tilefni mæta á svæðið forsvarsmenn Spalar auk samgönguráðherra. Að sögn Gísla Gíslasonar stjórnarformanns Spalar er áætlað að klukkan 13:15…Lesa meira

true

Frumvarp um þungunarrof til umsagnar

Velferðarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra laga um þungunarrof. Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um þungunarrof. Markmið þeirra er að tryggja að sjálfsforræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heilbrigðisþjónustu fyrir þær konur sem óska eftir þungunarrofi. Lagt er til að konu verði veitt…Lesa meira

true

Hollvinasamtök Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi stofnuð

Hollvinasamtök Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi voru stofnuð 20. september síðastliðinn. Agnar Jónasson, formaður hollvinasamtakanna, segir að samtökin hafi verið stofnuð í þeim tilgangi að hlúa að fólkinu ekki síður en byggingunni. „Okkur er annt um fólkið og heimilið.“ Segir hann að hlutverk félagsins verði að skipuleggja sjálfboðavinnu, hvort sem það er með vinnuframlagi, heimsóknum til…Lesa meira

true

Perlað í Stykkishólmi til styrktar Krafti

Starfsmannafélag sjúkrahússins í Stykkishólmi stóð fyrir fimm daga góðgerðarviku í síðustu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem góðgerðarvika er haldin og að þessu sinni var valið að styrkja Kraft – stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein. „Okkur fannst við hæfi að styrkja Kraft. Við sinnum mörgum sjúklingum með krabbamein og nýlega greindist ung kona…Lesa meira

true

„Réttara væri að kalla þetta brottfall en endurnýjun“

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, var gestur Haustþings Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem haldið var á Bifröst í síðustu viku. Hann vakti í ávarpi sínu máls á mikilli endurnýjun sveitarstjórnarfulltrúa eftir kosningarnar í vor. Vísaði hann til rannsókna Evu Maríu Finnsdóttir, en þær sýndu að 58% þeirra sem kjörnir voru til setu í sveitarstjórnum…Lesa meira