
Í dag, mánudaginn 24. september, hefst viðgerð á brú yfir Vesturlandsveg við Leirvogstungu í Mosfellssveit og verður umferð af Vesturlandsvegi færð á hjáleið á meðan viðgerð stendur. Viðgerðin mun standa yfir í fjóra daga. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira








