Fréttir

true

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í Skallagrím

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur verið meðal bestu körfuknattleikskvenna á Íslandi undanfarin ár. Hún hefur nú skrifað undir samning um að spila með gamla uppeldisfélaginu á næstu leiktíð í efstu deild. Sigrún Sjöfn spilaði á síðustu leiktíð með Grindavík í Domino‘s deild kvenna en hún lék tvo leiki með Skallagrími í fyrstu deild kvenna í upphafi…Lesa meira

true

Guðmundur Óli ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi

Guðmundur Óli Gunnarsson hefur verið ráðinn í stöðu skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi. Hann tekur við af Lárusi Sighvatssyni sem lætur af störfum eftir að hafa gegnt því í þrjá áratugi. Guðmundur Óli hefur komið víða við á sínum starfsferli. Hann lauk námi í hljómsveitarstjórn við Utrechts Conservatorium í Hollandi en nam einnig um tíma hjá…Lesa meira

true

Hreppslaug opnuð á morgun eftir endurbætur

Liðin eru 88 ár frá því Hreppslaug í Skorradal var byggð en hún er næstelsta 25 metra steinsteypta laug á landinu. Nú í byrjun sumars hafa staðið yfir framkvæmdir við laugina en eftir að hún var friðuð árið 2014 fékkst styrkur frá Minjastofnun til að laga laugarkerið sjálft. Þá var ákveðið að ráðast í frekari…Lesa meira

true

Ganga á Snæfellsjökul á sumarsólstöðum

Hjónin Jón Jóel Einarsson og Þuríður Maggý Magnúsdóttir reka á Arnarstapa ferðaþjónustufyrirtækið Go West, eða „Út og vestur“ eins og það kallast á íslensku. Undanfarin ár hafa þau boðið upp á svokallaða sólstöðugöngu í júní, þar sem gengið er upp á Snæfellsjökul á sumarsólstöðum og niður aftur. Að sögn Jóns Jóels er það Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull…Lesa meira

true

Könnuðu ástandið í sjónum við landið

Árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunar lauk 1. júní síðastliðinn. Farið var á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn var liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðinu við Ísland. Í samantekt um niðurstöðu leiðangursins segir; „að hiti í efri sjávarlögum í hlýsjónum sunnan við landið, líkt og var vorið 2015, hafi verið nokkuð lægri en…Lesa meira

true

Tónlistarskólafólk langþreytt á samningsleysi

Tónlistarkennarar fjölmargra tónlistarskóla hafa síðustu daga sent frá sér ályktanir og yfirlýsingar þar sem þeir lýsa furðu yfir þeirri stöðu sem upp er komin í samningaviðræðum þeirra við Samband íslenskra sveitarfélaga. Tónlistarskólakennarar innan Félags kennara og stjórnenda tónlistarskóla (FT) hafa nú verið samningslausir í rúmt hálft ár og engin lausn virðist í sjónmáli í deilunni.…Lesa meira

true

Inga María stefnir að plötuútgáfu í desember

Inga María Hjartardóttir er 22 ára Skagakona sem vinnur nú að útgáfu sinnar fyrstu plötu. Inga stundar nám í Boston í Bandaríkjunum við Berklee College of Music. Hún hefur verið við nám í Berklee síðan haustið 2013 en á nú aðeins eina önn eftir og verður plötuútgáfan hennar fyrsta verk eftir útskrift. „Ég hef lengi…Lesa meira

true

Vinstri grænir ákveða forval í NV kjördæmi

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi fór fram á Hvanneyri síðastliðinn laugardag. Þar var samþykkt að fram færi forval vegna komandi alþingiskosninga. Kosið verður um sex efstu sæti á framboðslistanum. Jafnframt var kosin kjörstjórn til að sjá um framkvæmd forvalsins og gera tillögu til kjördæmisráðs um uppröðun á framboðslista. Segja má að þetta…Lesa meira

true

Búið að ráða skipulags- og byggingafulltrúa í Borgarbyggð

Gunnar Sigurgeir Ragnarsson hefur ráðinn sem skipulags- og byggingafulltrúi Borgarbyggðar. Gunnar er með BSc gráðu í byggingafræði frá Vitusbering Horsens í Danmörku og með sveinspróf í húsasmíði frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hann hefur starfað í byggingaiðnaði í um aldarfjórðung og sem skipulags- og byggingafulltrúi Grundarfjarðarbæjar síðasta árið. Alls sóttu fjórir um starfið. Aðrir umsækjendur voru Berglind…Lesa meira

true

Eftirlit með matjurtum flyst til sveitarfélaga

Um síðustu mánaðamót tók gildi breyting á lögum um matvæli nr. 93/1995. Með breytingunni flyst eftirlit með framleiðslu matjurta frá Matvælastofnun til heilbrigðisnefnda (heilbrigðiseftirlits) sveitarfélaga en framleiðsla matjurta telst til frumframleiðslu.  Breytingin er gerð að ósk opinberra eftirlitsaðila. „Lagabreytingin mun einfalda aðstæður fyrir framleiðendur matjurta sem munu eingöngu vera undir eftirliti eins aðila, þ.e. hlutaðeigandi…Lesa meira