Fréttir

true

Heita auknu samstarfi í þágu barna

Fimm ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, auk Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa með undirskrift lýst yfir vilja til þess að auka samstarf milli málefnasviða ráðuneyta og undirstofnana sem snúa að velferð barna. „Markmiðið er að brjóta niður múra sem kunna að myndast á milli kerfa þegar tryggja þarf börnum heildstæða og samhæfða þjónustu. Aðilar viljayfirlýsingarinnar telja að…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur á morgun

ÍA og Víkingur Ó. mætast á Akranesvelli í Vesturlandsslag í 1. deild karla í knattspyrnu á morgun. Leikurinn er jafnframt stórleikur 20. umferðar deildarinnar. Fyrir leikinn hafa Skagamenn 43 stig í toppsæti deildarinnar en Ólafsvíkingar 38 í þriðja sætinu. Á milli þeirra er HK með 42 stig. Skagamenn fara langt með að tryggja sér sæti…Lesa meira

true

Allir þrettán draga sig úr kokkalandsliðinu

Allir kokkar í kokkalandsliði Íslands hafa dregið sig úr landsliðinu til að mótmæla ákvörðun stjórnar kokkalandsliðsins sem nýlega gerði styrktarsamning við Arnarlax sem framleiðir lax í opnu sjókvíaeldi. Í færslu sem Garðar Kára Garðarssonar deildi á Facebook, segir að slíkir framleiðsluhættir séu ógn við villta lax- og silungastofna og hafi margvísleg neikvæð umhverfisáhrif á lífríki…Lesa meira

true

Fjárrekstur í Norðurárdal í dag

Vegagerðin  bendir á að vegna fjárrekstrar verða umferðartafir á hringveginum á móts við Fornahvamm í Norðurárdal síðdegis í dag á milli klukkan 17:00 og 20:00. Göngur eru nú hafnar á Holtavörðuheiði, Snjófjöllum og svæðinu vestan við veginn og þarf safnið að þvera þjóðveginn á ferð þess í Þverárrétt, þar sem réttað verður á sunnudag og…Lesa meira

true

Endurútgáfa ævisögu Guðmundar refaskyttu

Bókaútgáfan Sæmundur hefur endurútgefið hina frægu ævisögu Guðmundar Einarssonar refaskyttu, Nú brosir nóttin. Af því tilefni er efnt til útgáfuhófs í Safnaðarheimili Grensáskirkju á morgun, laugardaginn 8. september kl. 14, þar sem afkomendur Guðmundar og velunnarar bókarinnar koma saman. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og afkomandi Guðmundar refaskyttu les kafla úr bókinni og Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur og…Lesa meira

true

Alþingi verður sett á þriðjudaginn

Alþingi verður sett þriðjudaginn 11. september og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Kristján Björnsson vígslubiskup prédikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Dómorganistinn Kári…Lesa meira

true

Náði sér ekki á strik á fyrsta hring

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, átti erfitt uppdráttar á fyrsta hringum á Lacoste Open mótinu sem hófst í Frakkland í gær. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Hún kom í hús á sjö höggum yfir pari í gærkvöldi og situr í 105. sæti mótsins. Valdís fann aldrei taktinn í gær. Hún fékk einn…Lesa meira

true

Þrjú hundruð Verslunarskólanemar komu í Grundarfjörð

Í lok síðustu viku renndu sex stórir hópferðabílar inn á bílaplanið hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Út úr bílunum komu rúmlega 300 nýnemar úr Verslunarskóla Íslands sem voru í nýnemaferð um Snæfellsnes. Ungmennin voru áberandi í bænum á föstudaginn enda var ratleikur á dagskránni þar sem leysa þurfti ýmsar þrautir til að bera sigur úr…Lesa meira

true

Reglugerð kallar á töluverðar breytingar fyrir slökkviliðin

Ný reglugerð um starfsemi slökkviliða tók gildi 1. ágúst síðastliðinn. Reglugerðin skilgreinir starfsemi slökkviliða ítarlega, til dæmis hvað varðar mannafla á stöð, skipulag, búnað, menntun og þjálfun. Einnig eru skilgreindar þarfir slökkviliða út frá áhættu á hverju svæði fyrir sig og íbúafjölda í viðkomandi sveitarfélögum. Reglugerðin skilgreinir þannig lágmarkskröfur fyrir slökkvilið á hverjum stað fyrir…Lesa meira

true

Ný almannavarnarnefnd fundaði í fyrsta sinn

Almannavarnanefnd Vesturlands kom saman síðastliðinn föstudag í Borgarnesi. Fundurinn var fyrsti fundur sameinaðrar almannavarnarnefndar, en áður voru almannavarnanefndir í landshlutanum þrjár. Nefndina skipa oddvitar, sveitar- og bæjarstjórar sveitarfélaganna á Vesturlandi auk lögreglustjóra Vesturlands, yfirlögregluþjóns og slökkviliðsstjóra. Á fundinum var Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi, kosinn formaður nefndarinnar og Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, varaformaður. Á…Lesa meira