Fréttir

true

Segir prósentur aflgjafa misskiptingar

„Það er þyngra en tárum taki að hlusta á lukkuritara forréttindahópanna tala um að lágtekjufólk hafi hækkað mest í kaupmætti og dregið hafi úr ójöfnuði og misskiptingu,“ skrifar Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og heldur áfram: „Það blasir við að allur þessi samanburður byggist á prósentuhagfræði en sú hagfræði stenst ekki nokkra skoðun enda fer…Lesa meira

true

Afleit veðurspá fyrir morgundaginn

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir hluta landsins á morgun, fimmtudag. Næstu nótt er víða spáð frosti inn til landsins, einkum í lægðum og dældum þar sem kalt loft getur safnast fyrir. Hvassviðri mun vara fram á föstudag á miðhálendinu. Á Faxaflóasvæðinu og við Breiðafjörð er spáð stífri suðaustanátt eftir hádegi á morgun með…Lesa meira

true

Margt annað en mygluostar framleiddir í Búðardal

Í frétt Skessuhorns í dag og veffrétt á skessuhorn.is í gær var sagt því að Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa sent atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti bréf þar sem samtökin lýsa sjónarmiðum sínum varðandi fyrirhugaða úttekt á áhrifum innflutningskvóta í ostum sem verndaðir eru með upprunatáknum eða landfræðilegum merkingum samkvæmt reglum Evrópusambandsins. Í fréttinni var vísað í…Lesa meira

true

Eldsneyti virðist hafa komist í frárennslislagnir

Í Búðardal hafa staðið yfir framkvæmdir við bensíntanka N1 við Vesturbraut 10. Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis við þá vinnu í ljósi þess að dæmi eru um að íbúar hafi vaknað upp í nótt við megna bensínlykt og í morgunsárið urðu starfsmenn leikskóladeildar Auðarskóla sömuleiðis varir við bensínlykt á salernum leikskólans. Íbúi við Búðarbraut, sem…Lesa meira

true

Nær tveggja milljarða gjaldfært tap Spalar vegna afskrifta

Spölur, eigandi og rekstraraðili Hvalfjarðarganganna, tapaði um 1,8 milljörðum króna eftir skatta á fyrri helmingi yfirstandandi árs. Á sama tímabili í fyrra hagnaðist félagið um liðlega 307 milljónir króna. Afskriftir jukust á sama tíma um nær 2,7 milljarða króna, sem skýrist af því að Spölur afhendir ríkinu Hvalfjarðargöngin síðar á þessu ári. Í árshlutauppgjöfi sem…Lesa meira

true

Flipar áldósa til stuðnings fötluðum á Spáni

Það eru greinilega margvísleg not fyrir flipa af áldósum. Á dögunum afhentu þau Daníel Guðmundsson og Dorothy M Breiðfjörð 15 kíló af flipum á Spáni. Flipana fengu þau hjá vinum og ættingjum á Íslandi sem hafa verið að safna og tóku þau flipana með sér til Spánar. Daníel bjó um tíma í Snæfellsbæ og nýtti…Lesa meira

true

Kalla eftir sjónarmiðum hagsmunaaðila um póstdreifingu

Með ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) nr. 2/2018, var það niðurstaða stofnunarinnar að ekki væru skilyrði til þess að breyta ákvörðun Íslandspósts ohf. um fækkun dreifingardaga sem tók gildi þann 1. febrúar sl. Ákvörðunin kvað hins vegar einnig á um það að Íslandspóstur skyldi endurskoða gjaldskrá fyrirtækisins fyrir 1. júní 2018. Um þetta sagði m.a.…Lesa meira

true

Tollkvóti í myglyosti gæti ógnað stærsta vinnustað Dalanna

Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa sent atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bréf þar sem samtökin lýsa sjónarmiðum sínum varðandi fyrirhugaða úttekt á áhrifum innflutningskvóta í ostum sem verndaðir eru með upprunatáknum eða landfræðilegum merkingum samkvæmt reglum Evrópusambandsins. Vefur Bændablaðsins; bbl.is, greinir frá því í dag að í bréfi SAM komi fram að verði tollkvótar til innflutnings á…Lesa meira

true

Gengi hlutabréfa í Icelandair hríðféll

Allmikil viðskipti voru með hlutabréf í Icelandair group í Kauphöllinni í dag. Urðu þau í kjölfar frétta í gærkvöldi um verri afkomu félagsins en áætlað hafði verið og uppsögn Björgólfs Jóhannssonar forstjóra úr starfi. 228 viðskipti með bréf áttu sér stað og sveiflaðist gengi bréfa frá 6,43 og upp í 7,7 í viðskiptum dagsins. Lokagengi…Lesa meira

true

Segir forsætisráðherra halla réttu máli

Í Kastljósi RUV í gærkvöldi sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra að frysting launa þeirra sem áður heyrðu undir Kjararáð kæmi launum þeirra í „ákveðið samræmi“ við almennt launafólk í árslok 2018. Þessi fullyrðing er bæði röng og villandi, að mati hagfræðings Alþýðusambands Íslands.  Snorri Már Skúlason hagfræðingur segir að starfshópur um Kjararáð, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra…Lesa meira