Fréttir

true

Slasaðist við Glym

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Ungur karlmaður hafði hrasað og dottið illa í brattlendi á gönguleiðinni að fossinum Glymi í botni Hvalfjarðar. Björgunarsveitafólk ásamt sjúkraflutningamönnum og lækni fóru á vettvang og hlúðu að manninum. Þyrla sótti hinn slasaða og flutti á sjúkrahús í Reykjavík.Lesa meira

true

Sumarsmellur frá Kajak

Raftónlistardúettinn Kajak hefur sent frá sér nýtt lag. Ber það nafnið Shine og er að sögn dúettsins sólríkur sumarslagari. „Shine er sólríkt sumarlag með jákvæðum og einföldum boðskap; láttu ljós þitt skína. Sólskinið kallaði á okkur og nú er því tilvalinn tími til útgáfu. Við erum búnir að setja í fimmta gír í útgáfumálum og…Lesa meira

true

Gufudalskirkja á tímamótum

Gufudalskirkja verður 110 ára nú í haust. Kirkjan er listasmíð, teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni en yfirsmiður var Jón Ólafsson bróðir hans. Ríkissjóður kostaði kirkjusmíðina og átti kirkjuna alla tíð, en hún er nú í eigu og vörslu Minjastofnunar. Efnið í kirkjuna kom tilöggvið og númerað frá Noregi. Tryggvi Pálsson var þá bóndi í Gufudal og…Lesa meira

true

Ísfiskur vonast til að hefja vinnslu að nýju um næstu mánaðamót

Þessa dagana er unnið að því að flytja starfsemi fyrirtækisins Ísfisks hf. alfarið upp á Akranes frá Kópavogi. Sem kunnugt er keypti fyrirtækið bolfiskvinnsluhús HB Granda síðastliðið haust, auk hluta fiskvinnslubúnaðar. Vinnsla Ísfisks hófst síðan á Akranesi um miðjan febrúar, samhliða starfsemi fyrirtækisins í Kópavogi. Nú er húsnæði fyrirtækisins við Kársnesbraut í Kópavogi í söluferli…Lesa meira

true

Kaffi Nú er nýtt kaffihús í Stykkishólmi

Kaffihúsið Kaffi Nú var opnað í Stykkishólmi seinni hluta júlímánaðar. Er það staðsett í húsnæði Harbour Hostel við Hafnargötu 4 þar í bæ og heyrir undir hostelið. Allan daglegan rekstur Kaffi Nú annast þau Ania Kobierowska, Halszka Wierzbicka og Seweryn Wójcikowski, en þau eru jafnframt starfsmenn Harbour Hostel. Blaðamaður hitti þau á kaffihúsinu síðastliðinn föstudag…Lesa meira

true

Modulus mun byggja fyrir Bjarg á Akranesi

Fyrirtækið Modulus ehf. mun taka að sér byggingu 33 íbúða fyrir Bjarg íbúðafélag við Asparskóga Akranesi. Samningar þess efnis voru undirritaðir sl. fimmtudag. Frá þessu er greint á heimasíðu Bjargs. Íbúðurnar 33 verða í þremur húsum, við Asparskóga 12, 14 og 16 og hvert hús verður á tveimur hæðum. Framkvæmdir munu hefjast nú í haust…Lesa meira

true

Jafntefli Skallagríms á heimavelli

Skallagrímur gerði jafntefli við Reyni Sandgerði í 13. umferð B-riðils fjórðu deildar í gær. Leikurinn fór fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Gestirnir af Reykjanesinu skoruðu fyrsta mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks þar sem markaskorarinn Magnús Þórir Matthíasson kom sínum mönnum yfir. Magnús Þórir hefur verið drjúgur á tímabilinu fyrir Reynismenn og er kominn með…Lesa meira

true

Talar, hugsar og dreymir á spænsku

Í lok júlí snéri hin 17 ára gamla Íris Líf Stefánsdóttir aftur heim til Íslands eftir ellefu mánaða dvöl sem skiptinemi í Ekvador í Suður-Ameríku. Á þessum ellefu mánuðum dvaldi hún hjá þremur fjölskyldum, lærði að tala reiprennandi spænsku og ferðaðist djúpt inn í frumskóga Amazon svo eitthvað sé nefnt. Íris Líf segir hér frá…Lesa meira

true

Jermelle Fraser verður spilandi þjálfari ÍA

Körfuknattleiksfélag ÍA hefur samið við Bandaríkjamanninn Jermelle Fraser um að taka að sér að leika með og þjálfa lið Skagamanna í 1. deild karla í körfuknattleik næsta vetur. Greint var frá þessu á Facebook-síðu körfuknattleiksfélagsins í gær. Jermelle er 31 árs gamall og leikur stöðu bakvarðar. Hann býr yfir töluverðri reynslu bæði sem leikmaður og…Lesa meira

true

Víkingur Ó. leikur í undanúrslitum bikarsins í kvöld

Seinni undanúrslitaleikur Mjólkurbikars karla í knattspyrnu fer fram í kvöld, fimmtudaginn 16. ágúst. Þá mætast Víkingur Ó. og Breiðablik í Kópavogi. Þar ræðst hvort liðanna mætir Stjörnunni í úrslitaleiknum sem fram fer á Laugardalsvelli laugardaginn 15. september. Ólafsvíkingar hafa átt góðu gengi að fagna í Íslandsmótinu í sumar og hafa aðeins tapað tveimur leikjum í…Lesa meira