Fréttir

true

Leystur úr varðhaldi

Landsréttur felldi á þriðjudaginn úr gildi úrskurð Héraðsdóms Vesturlands þess efnis að maður sem grunaður er um að hafa stungið bróður sinn með hnífi á Akranesi aðfararnótt 23. júlí sl. skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 29. ágúst. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að sökum atvika málsins teljist ekki nauðsynlegt, með tilliti til almannahagsmuna, að maðurinn sæti…Lesa meira

true

Ginframleiðandi vill leigja Grímshúsið

Svo virðist sem hinu sögufræga Grímshúsi við Borgarneshöfn verði brátt fengið nýtt hlutverk. Breski ginframleiðandinn Martins Millers Gin vill gera langtíma leigusamning um húsið, ljúka endurgerð þess og stækka. Það var eins og kunnugt er hópur Borgnesinga sem beitti sér fyrir endurgerð hússins fyrir um átta árum og stofnaði í þeim tilgangi Grímshússfélagið sem aflaði…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskip nú í Akraneshöfn

Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal lagðist að bryggju á Akranesi klukkan 8 í morgun. Um borð eru 264 farþegar. Flestir fóru þeir um borð í vel búna fjallajeppa sem óku áleiðis á Langjökul. Nokkrir gesta spóka sig hins vegar um í veðurblíðunni sem nú er á Akranesi. Þetta sama skip var einnig á ferðinni á Akranesi…Lesa meira

true

Jafntefli á Ólafsvíkurvelli

Víkingur Ó. og Haukar gerðu 2-2 jafntefli þegar liðin mættust í 15. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í hægviðri í Ólafsvík í gærkvöldi. Heimamenn voru sterkari framan af leiknum og sóttu stíft án þess að ná að ógna marki gestanna verulega. Það var því algerlega gegn gagni leiksins þegar Haukar komust…Lesa meira

true

UMSB góð fyrirmynd á Landsmóti UMFÍ

Á unglingalandsmóti UMFÍ hlaut Ungmennasamband Borgarfjarðar Fyrirmyndarbikar UMFÍ við mótsslit. Sú viðurkenning hefur verið veitt sambandsaðila á hverju ári síðan 1992. Þá er meðal annars horft til inngöngu keppnisaðila og stuðningsfólks við setningu móts, framkoma liðsfélaga og fylgdarliðs, háttvísi öll og stemning fjölskyldna á tjaldsvæðinu. Mikil fagnaðarlæti brutust út á meðal stuðningsmanna þegar tilkynnt var…Lesa meira

true

Skoða stækkun steypuskála

Hugmyndir eru uppi um stækkun á steypuskála álvers Norðuráls á Grundartanga. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, ritar á heimasíðu félagsins, eftir fund með framkvæmdastjóra og mannauðsstjóra Norðuráls, að framkvæmdin gæti kostað allt að 12 milljarða króna og tekið allt að tvö ár. Gæti starfsmönnum myndi fyrirtækisins fjölgað um 30 til 40 við stækkunina. Sólveig Kr.…Lesa meira

true

Fjölgun nýnema við Háskólann á Bifröst og umsóknir enn skoðaðar

Umsóknir í nám við Háskólann á Bifröst eru nú um fjórðungi fleiri en á síðasta ári. Fjölgunin er fyrst og fremst í umsóknum um grunnnám við skólann, en þær eru rúmlega 50% fleiri en í fyrra.  Umsóknum um meistaranám hefur fjölgað um 5% frá fyrra ári en það nám hefur verið í miklum vexti undanfarin…Lesa meira

true

Erik Hamrén tekur við íslenska landsliðinu

Sænski knattspyrnuþjálfarinn Erik Hamrén hefur verið ráðinn þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu. Hann tekur við starfinu af Heimi Hallgrímssyni sem lét af störfum eftir HM í Rússlandi fyrr í sumar. Formlega var tilkynnt um ráðningu Hamréns í dag. Á sama tíma var Freyr Alexandersson kynntur sem aðstoðarmaður hans. Samið var við báða til tveggja ára.…Lesa meira

true

VLFA stefnir Norðuráli fyrir félagsdóm

Verkalýðsfélag Akraness mun stefna Norðuráli fyrir félagsdóm vegna ágreinings félagsins og fyrirtækisins um túlkun á grein í kjarasamningi VLFA við Norðurál. Grein þessi lýtur að svokölluðum vikulegum frídegi, það er að segja rétti starfsmanna til frítöku sem nemur átta tímum á dagvinnulaunum ef starfsmenn vinna í samfellt sjö daga eða meira. „Fyrirtækið telur að þessi…Lesa meira

true

Keyrði fullur á ferðamenn í Borgarnesi

Á tíunda tímanum að morgni frídags verslunarmanna handtóku lögreglumenn í Borgarnesi ölvaðan ökumann. Maðurinn hafði áður misst stjórn á lítilli jeppabifreið á Brúartorgi, ekið inn á bílastæði og á tvo erlenda ferðamenn. För mannsins stöðvaðist loks þegar hann ók á ljósastaur. Við áreksturinn steig hann út úr bílnum og gekk burt af vettvangi en vegfarendur…Lesa meira