Fréttir

true

Markalaust í toppslagnum

Víkingur Ó. gerði markalaust jafntefli við HK í toppslag 1. deilar karla á Ólafsvíkurvelli í gærkvöldi. Ólafsvíkingar voru heilt yfir sterkari en tókst ekki að skapa sér nein alvöru marktækifæri. Sterkur varnarleikur var enda aðalsmerki beggja liða í leiknum og helsta ástæða þess að ekkert mark var skorað. Heimamenn voru sterkari framan af fyrri hálfleik,…Lesa meira

true

Skaginn 3X gerir milljarðasamning í Rússlandi

Skaginn 3X hefur skrifað undir samning um heildarlausn í nýja verksmiðju sem fyrirtækið Lenin Kolkhoz er að byggja í Petropavlosk á Kamtsjatka-skaganum í Austur-Rússlandi. Skrifað var undir við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Moskvu á miðvikudag, 25. júlí. Kælismiðjan Frost mun sjá um allt kælikerfi verksmiðjunnar. Verður það að fullkomnustu gerð og mun standast…Lesa meira

true

Borgarbyggð birtir upplýsingar um fjárréttir í haust

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur birt upplýsingar um fyrirhugaðar fjárréttir í sveitarfélaginu í haust. Fyrst verður réttað í Kaldárbakkarétt 2. september og Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal 5. september. Annars er listinn svona:   Fyrstu réttir Seinni réttir Oddsstaðarétt 5. sept. 30. sept. Rauðsgilsrétt 16. sept. 30. sept. Fljótstungurétt 9. sept. 22. sept. Nesmelsrétt 8. sept. Þverárrétt 10. sept.…Lesa meira

true

Byrjað að setja þak á nýtt fiskvinnsluhús G.Run

Framkvæmdir við nýtt fiskvinnsluhús Guðmundar Runólfssonar hf ganga vel en nú er komin mynd á bygginguna og byrjað að setja þakið. Skip útgerðarinnar; Helgi SH og Hringur SH fara á sjó á næstu dögum en vinnsla á að hefjast á mánudaginn. Það verður því væntanlega mikill hamagangur í öskjunni þegar vinnsla hefst með allar þessar…Lesa meira

true

Feðgar njóta góða veðursins

Einn besti dagur sumarsins veðurfarslega séð var á fimmtudaginn í liðinni viku. Þá þornaði um og glaðnaði til. Hér eiga feðgarnir Helgi Eyleifur Þorvaldsson í Brekkukoti og Þorlákur Hugberg sjö vikna sonur hans gæðastund saman skammt frá Paradísarlaut í Norðurárdal. Helgi var þá búinn með fyrri slátt á búinu og ákvað fjölskyldan að fara í…Lesa meira

true

Hótel í anda Kirkjufells á teikniborðinu

Landeigandi Skerðingstaða, sem er eyðibýli rétt vestan við Grundarfjörð, hefur látið frumteikna hótel á jörðinni sem er í anda Kirkjufells. Það eru Zeppelin arkitektar sem hafa hannað hótelbygginguna og hafa gefið út glæsilegt myndband til kynningar á verkefninu. Hótelið á að verða með 60 til 80 herbergjum og allt hið glæsilegasta. Bærinn Skerðingsstaðir er á…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá á Reykhóladögum um helgina

Reykhóladagar verða haldnir um næstu helgi og venju samkvæmt er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá framundan alla helgina. Fyrsti dagskrárliður verður bátabíó á Báta- og hlunnindasýningunni á morgun, föstudag, klukkan 12. Þá taka við landbúnaðarleikarnir í Hvannagarðabrekkunni og þarabolti við Álftaland. Um kvöldið verður unglingapartý á Báta- og hlunnindasýningunni frá klukkan 19-21 þegar Halldóra Kristín Unnarsdóttir…Lesa meira

true

Flutti að Reykhólum og var orðinn oddviti tæpu ári síðar

Hann kveðst vera Gaflari, fæddur og uppalinn í Hafnarfirði, en flutti búferlum síðastliðið sumar og settist að á Reykhólum. Þar kennir hann börnum að spila á hljóðfæri, er organisti í sjö kirkjum og nú oddviti Reykhólahrepps auk þess að vera eiginmaður Silvíu Kristjánsdóttur og pabbi Skarphéðins, Ingibjargar og Melkorku. Ingimar Ingimarsson tók vel á móti…Lesa meira

true

Kristján Sturluson ráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar

Kristján Sturluson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Dalabyggðar. Ráðning hans var samþykkt á fundi byggðarráðs í dag, að því er fram kemur á heimasíðu sveitarfélagsins. Hann hefur störf 1. september næstkomandi. Kristján er félagsráðgjafi og sálfræðingur að mennt en hefur einnig lokið MBA prófi frá Háskóla Íslands. Þá hefur hann einnig verið stundarkennari við HÍ. Hann…Lesa meira

true

Háuppskerutími jarðarberjanna

Nú er tími íslensku jarðarberjanna og garðyrkjubændur í landinu vinna hörðum höndum við að tína ber, vigta í öskjur og koma þeim til neytanda við fyrsta tækifæri. Á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði búa hjónin og garðyrkjubændurnir Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir sem reka garðyrkjustöðina Sólbyrgi sem er á um tíu hektara landi. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í…Lesa meira