Fréttir

true

Veðrið háir ekki starfseminni í Gleym mér ei

Á hverju vori þegar næturfrostin eru liðin þá opnar Sædís Guðlaugsdóttir hliðið fyrir viðskiptavini sína að Gróðrarstöðinni Gleym-mér-ei við Sólbakka 18-22 í Borgarnesi. Sædís hefur þjónað fólki á Vesturlandi og víðar um sumarblóm og fjölæringa ásamt öðrum plöntum í hartnær 32 ár og segir sjálf að nú sé Gleym-mér-ei komin á draumastað. Blaðamaður kíkti í…Lesa meira

true

Mikil spenna á Íslandsmeistaramótinu í torfæru

Fjórða og fimmta umferð Íslandsmeistaramótsins í torfæru fór fram á Fellsenda við Akrafjall um síðustu helgi. Var það Torfæruklúbbur Suðulands sem hélt keppnina. Það rættist úr veðrinu báða mótsdaga en skipuleggjendur höfðu áhyggjur af mikilli rigningu sem hafði verið spáð. „Það er frekar mikil mold á þessu svæði svo við höfðum áhyggjur af því að…Lesa meira

true

Valdís Þóra keppir á Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni hefur tryggt sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi 2.-5. ágúst næstkomandi. Hún er í 17. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar en efstu 25 kylfingarnir á þeim lista fá keppnisrétt á Opna breska. Mótið er eitt af fimm risamótum kvenna sem haldið er á ári hverju. Að þessu sinni…Lesa meira

true

Dalamenn verðlaunaðir fyrir snyrtimennsku og ljósmyndun

Á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal, sem haldin var um miðjan júlí, voru veittar umhverfisviðurkenningar í þremur flokkum; snyrtilegasta bændabýlið, snyrtilegasta fyrirtækið og snyrtilegasti garðurinn. Skúli Hreinn Guðbjartsson, formaður byggðarráðs Dalabyggðar, greindi frá niðurstöðum dómnefndar og veitti viðurkenningarnar. Viðurkenningu fyrir snyrtilegasta býlið hlutu Sigurbjörn Sigurðarson og Melkorka Benediktsdóttir á Vígholtsstöðum í Laxárdal. Horfði dómnefnd til þess…Lesa meira

true

Rafmagnsbilanir í Borgarfirði

Í nótt og morgun var rafmagnslaust í Borgarnesi, á Hvanneyrarsvæði og í Skorradal. Hjá Rarik fengust upplýsingar um að búið væri að koma rafmagni á að nýju en nánari upplýsingar um orsök bilunar liggja ekki fyrir og ekki næst í bilanavakt Rarik á Vesturlandi. Samkvæmt óstaðfestum heimildum Skessuhorns er ástæða bilunarinnar sú að teinrofi gaf…Lesa meira

true

Upphaf vélvæðingar í íslenskum landbúnaði

Í ár eru liðin 100 ár síðan fyrsti traktorinn kom til landsins. Þar með var brotið blað í búnaðarsögu landsins. Dráttarvélinni var landað úr Gullfossi þann 12. ágúst 1918. Kaupendur voru tveir áhugamenn um íslenskan landbúnað, þeir Þórður Ásmundsson kaupmaður og útgerðarmaður og Bjarni Ólafsson, skipstjóri, báðir á Akranesi. Dráttarvélin, var amerísk af AVERY gerð, 16…Lesa meira

true

Ferðafólki komið til aðstoðar

Björgunarsveitir Landsbjargar á vestanverðu Snæfellsnesi fóru í gær að Rauðfeldsgjá til að liðsinna ferðamanni. Sá hafði hringt á Neyðarlínu eftir að hafa hrasað og taldi sig mögulega ökklabrotinn. Bratt var og erfitt yfirferðar á staðnum en bera þurfti viðkomandi að bílastæði og í sjúkrabíl. Björgunarsveitarmenn og aðrir viðbragðsaðilar þekkja aðstæður við Rauðfeldsgjá vel þar sem…Lesa meira

true

Á fornbílum í reisu um Borgarfjörð

Fornbílaklúbbur Íslands efndi í sunnudagsbíltúr síðastliðinn sunnudag og var stefnan tekin í Borgarfjörðinn að þessu sinni. Fyrst á dagskrá var heimsókn í Samgöngusafnið í Brákarey þar sem félagar í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar tóku á móti gestunum.  Eftir dágóða viðdvöl á safninu var svo lagt í hann fram í Hálsasveit að Hraunfossum og höfðu þá bæzt við…Lesa meira

true

Veitingavagninn The Secret Spot við Breiðablik

Svangir vegfarendur á Snæfellsnesi geta nú numið staðar við Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi til að seðja hungrið. Auk upplýsingamiðstöðvar sem þar er rekin hafa þau Kolbrún Þóra Ólafsdóttir og Víðir Haraldsson opnað veitingavagninn The Secret Spot á hlaðinu við félagsheimilið. Þar er hægt að fá sér fisk og franskar, fiskisúpu, pylsur eða vöfflur og…Lesa meira

true

Fræðin fléttast við Reykholtshátíð

Samkvæmt venju verður árleg Reykholtshátíð haldin síðustu helgina í júlí, sem nú er framundan. Saman fléttast þá og blómstra sterkir þræðir staðarins, tónlist í sögulegu umhverfi, fræðastarf Snorrastofu og helgihald Reykholtskirkju. Fyrirlestur Snorrastofu á hátíðinni er í höndum dr. Ólínu Þorvarðardóttur þjóðfræðings, laugardaginn 28. júlí kl. 13, Nefnist hann: “Fyrsti blaðamaðurinn – fyrstur til margs.…Lesa meira