Fréttir

true

Dalamenn verðlaunaðir fyrir snyrtimennsku og ljósmyndun

Á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal, sem haldin var um miðjan júlí, voru veittar umhverfisviðurkenningar í þremur flokkum; snyrtilegasta bændabýlið, snyrtilegasta fyrirtækið og snyrtilegasti garðurinn. Skúli Hreinn Guðbjartsson, formaður byggðarráðs Dalabyggðar, greindi frá niðurstöðum dómnefndar og veitti viðurkenningarnar. Viðurkenningu fyrir snyrtilegasta býlið hlutu Sigurbjörn Sigurðarson og Melkorka Benediktsdóttir á Vígholtsstöðum í Laxárdal. Horfði dómnefnd til þess…Lesa meira

true

Rafmagnsbilanir í Borgarfirði

Í nótt og morgun var rafmagnslaust í Borgarnesi, á Hvanneyrarsvæði og í Skorradal. Hjá Rarik fengust upplýsingar um að búið væri að koma rafmagni á að nýju en nánari upplýsingar um orsök bilunar liggja ekki fyrir og ekki næst í bilanavakt Rarik á Vesturlandi. Samkvæmt óstaðfestum heimildum Skessuhorns er ástæða bilunarinnar sú að teinrofi gaf…Lesa meira

true

Upphaf vélvæðingar í íslenskum landbúnaði

Í ár eru liðin 100 ár síðan fyrsti traktorinn kom til landsins. Þar með var brotið blað í búnaðarsögu landsins. Dráttarvélinni var landað úr Gullfossi þann 12. ágúst 1918. Kaupendur voru tveir áhugamenn um íslenskan landbúnað, þeir Þórður Ásmundsson kaupmaður og útgerðarmaður og Bjarni Ólafsson, skipstjóri, báðir á Akranesi. Dráttarvélin, var amerísk af AVERY gerð, 16…Lesa meira

true

Ferðafólki komið til aðstoðar

Björgunarsveitir Landsbjargar á vestanverðu Snæfellsnesi fóru í gær að Rauðfeldsgjá til að liðsinna ferðamanni. Sá hafði hringt á Neyðarlínu eftir að hafa hrasað og taldi sig mögulega ökklabrotinn. Bratt var og erfitt yfirferðar á staðnum en bera þurfti viðkomandi að bílastæði og í sjúkrabíl. Björgunarsveitarmenn og aðrir viðbragðsaðilar þekkja aðstæður við Rauðfeldsgjá vel þar sem…Lesa meira

true

Á fornbílum í reisu um Borgarfjörð

Fornbílaklúbbur Íslands efndi í sunnudagsbíltúr síðastliðinn sunnudag og var stefnan tekin í Borgarfjörðinn að þessu sinni. Fyrst á dagskrá var heimsókn í Samgöngusafnið í Brákarey þar sem félagar í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar tóku á móti gestunum.  Eftir dágóða viðdvöl á safninu var svo lagt í hann fram í Hálsasveit að Hraunfossum og höfðu þá bæzt við…Lesa meira

true

Veitingavagninn The Secret Spot við Breiðablik

Svangir vegfarendur á Snæfellsnesi geta nú numið staðar við Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi til að seðja hungrið. Auk upplýsingamiðstöðvar sem þar er rekin hafa þau Kolbrún Þóra Ólafsdóttir og Víðir Haraldsson opnað veitingavagninn The Secret Spot á hlaðinu við félagsheimilið. Þar er hægt að fá sér fisk og franskar, fiskisúpu, pylsur eða vöfflur og…Lesa meira

true

Fræðin fléttast við Reykholtshátíð

Samkvæmt venju verður árleg Reykholtshátíð haldin síðustu helgina í júlí, sem nú er framundan. Saman fléttast þá og blómstra sterkir þræðir staðarins, tónlist í sögulegu umhverfi, fræðastarf Snorrastofu og helgihald Reykholtskirkju. Fyrirlestur Snorrastofu á hátíðinni er í höndum dr. Ólínu Þorvarðardóttur þjóðfræðings, laugardaginn 28. júlí kl. 13, Nefnist hann: “Fyrsti blaðamaðurinn – fyrstur til margs.…Lesa meira

true

Varð vélarvana um tíma

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 varð vélarvana út af höfninni á Grundartanga í Hvalfirði eftir hádegið í dag. Mikill viðbúnaður björgunaraðila af Akranesi og höfuðborgarsvæðinu var vegna bilunarinnar, enda sagt í fyrstu boðum að skipið stefndi í land. Aðstæður voru engu að síður góðar á firðinum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, lítill vindur og reyndist…Lesa meira

true

Vélarvana skipi komið til aðstoðar

Björgunarskip og bátar Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Reykjavík og Akranesi voru kölluð út laust fyrir klukkan 14 í dag vegna vélarvana skips á Hvalfirði. Stillt og gott veður er á staðnum svo skipið rekur hægt og ekki er talinn bráð hætta á strandi. Reiknað er með að fyrstu björgunarhópar komi á staðinn innan tíðar og verður…Lesa meira

true

Vestlendingar náðu góðum árangri á Íslandsmóti í hestaíþróttum

Íslandsmót í hestaíþróttum var haldið í Víðidal í Reykjavík dagana 18. – 22. júlí og stóðu Vestlendingar sig vel á mótinu. Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey urðu Íslandsmeistarar í tölti fullorðinna en þau voru einnig samanlagðir sigurvegarar í fjórgangi. Í 100 m skeiði ungmenna varð Þorgeir Ólafsson Íslandsmeistari á Ögrun frá Leirulæk. Siguroddur…Lesa meira