Fréttir

true

Háskólalestin á leið um Stykkishólm

Háskólalest Háskóla Íslands er nú í Stykkishólmi sem er þriðji áfangastaður lestarinnar þetta vorið. Í dag sátu um 90 nemendur í 6.-10. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi námskeið úr Háskóla unga fólksins á vegum Háskólalestarinnar en kennslan var í höndum nemenda og kennara við Háskóla Íslands. Nemendur gátu valið á milli námskeiða í efnafræði, japönsku, eðlisfræði,…Lesa meira

true

Vinnu lokið við uppfærslu dreifikerfis á Akranesi

Starfsfólk Veitna hefur nú lokið tengivinnu við uppfærslu dreifikerfis rafmagns á Akranesi. Um var að ræða aðgerð sem framkvæmd var í um 50 áföngum á tveggja vikna tímabili. Að sögn Eiríks Hjálmarssonar upplýsingafulltrúa Veitna gekk verkið vel og í góðu samstarfi við íbúa og fyrirtæki í bænum. „Með uppfærslunni er rafdreifikerfið nú rekið á 11…Lesa meira

true

Guðni Th með fund á Akranesi á laugardag

Guðni Th. Jóhannesson heldur sinn fyrsta opna fund í forsetaframboði sínu í Tónlistarskólanum á Akranesi á morgun laugardag, 21. maí klukkan 14.00. „Áður mun Guðni heimsækja hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða á Akranesi. Fundurinn markar upphaf ferða Guðna um landið allt til að kynna sig og stefnumál sín. Fundurinn er opinn öllum og verður einnig sendur…Lesa meira

true

Útibú Arion banka í Búðardal opnað í nýju húsnæði

Í gær var nýtt útibú Arion banka opnað við Miðbraut 13 í Búðardal. Framkvæmdir á nýja húsnæðinu hafa staðið yfir síðustu mánuði og deilir bankinn nú húsnæði með Íslandspósti. „Starfsfólkið hefur staðið sig gríðarlega vel í undirbúningnum og íbúar eru jákvæðir. Hér er góð stemning og allir mjög ánægðir með nýju húsakynnin,” sagði Svala Svavarsdóttir, þjónustustjóri…Lesa meira

true

Nýr eigandi tekinn við Hótel Framnesi

Eigendaskipti hafa orðið á Hótel Framnesi í Grundarfirði. Gísli Ólafsson hefur selt hótelið sem hann hefur rekið undanfarin ár. Hann mun þó áfram reka kaffihúsið Láka Kaffi ásamt hvalaskoðunarbunum Láka I og Láka II sem hann gerir út frá Grundarfirði og Ólafsvík. Rætt verður við Sigurkarl Bjart Rúnarsson eiganda fyrirtækisins sem tekur við rekstrinum í…Lesa meira

true

Listakona sem gerir óvenjuleg náttúrulistaverk

Franska myndlistarkonan Josée Conan er stödd í Grundarfirði þessa dagana. Hefur hún aðsetur og vinnustofu í Grunnskóla Grundarfjarðar. Hún sækir innblástur sinn í hafið og lífríki þess og er aðallega að mála ýmist sjávarfang. Hún fær nýveiddan fisk og aðrar sjávarafurðir eins og rækju, skel og þang sem hún þvær upp úr ediki og málar…Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir framundan á Akranesi

Talsverðar framkvæmdir eru framundan á vegum Akraneskaupstaðar á þessu ári. Um er að ræða ýmis verkefni, bæði lítil og stór. Má þar nefna aðgerðir við götur og gangstéttar, sundlaugarsvæðið við Jaðarsbakka, Sementsreitinn og fleira. Nú þegar hefur verið byrjað á framkvæmdum við Vesturgötu þar sem bæði er búið að fræsa götuna og var neðsti hluti…Lesa meira

true

Afmælisráðstefna og opið hús hjá LMÍ

Þessa stundina stendur yfir ráðstefnan Kortin vísa veginn í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi. Er hún haldin í tilefni af 60 ára afmæli Landmælinga Íslands. Ráðstefnan hófst í morgun og lýkur nú á hádegi. Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra ávarpaði gesti við upphaf ráðstefnunnar sjálfrar sem og Magnús Guðmundsson, forstjóri LMÍ. Síðan tóku við erindi fyrirlesara um…Lesa meira

true

Jákvæður rekstur Eyja- og Miklaholtshrepps

Ársreikningur Eyja- og Miklaholtshrepps fyrir árið 2015 var samþykktur til seinni umræðu á fundi hreppsnefndar 5. maí síðastliðinn. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins, samkvæmt ársreikningi A og B hluta, var jákvæð um 7,5 milljónir króna, en þar af var rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 8,3 milljónir. Eigið fé sveitarfélagsins í lok árs 2015 var 198,4 milljónir samkvæmt efnahagsreikningi…Lesa meira

true

Handavinnuhúsið flutt í Hyrnutorg

Um liðna helgi var Handavinnuhúsið flutt um set í Borgarnesi. Verslunin hefur fram að þessu verið til húsa á Brákarbraut 3 en hefur nú flutt í Hyrnutorg þar sem Knapinn var síðast til húsa. Sigríður Karlsdóttir sagði í samtali við blaðamann Skessuhorns að verslunin hafi verið opnuð í nýju húsnæði strax í gærmorgun, þriðjudag. „Við…Lesa meira