Fréttir

true

Fór síðustu ferð Akraborgarinnar og beint á fyrstu vaktina í göngunum

Leiða má að því líkum að stór hluti þjóðarinnar, að minnsta kosti þeir sem hafa aldur til að stjórna ökutækjum, hafi kastað kveðju á Þórarinn Helgason eftir að hann hefur boðið þeim góðan dag í gjaldskýli Spalar við Hvalfjarðargöng. Þar hefur hann starfað í hartnær 19 ár, eða allt frá því göngin voru opnuð fyrir…Lesa meira

true

Ákvað að verða ljósmóðir ellefu ára gömul

Ljósmóðirin Helga Ragnheiður Höskuldsdóttir á Akranesi stendur á tímamótum. Hún fagnaði sjötíu ára afmæli sínu síðastliðinn fimmtudag og nú á morgun mun hún formlega ljúka störfum sínum eftir tæp 47 farsæl ár í starfi. Blaðamaður Skessuhorns leit í heimsókn til Helgu og spjallaði við hana um ljósmóðurstarfið, ráðskonustörf fyrir Ásgeir Ásgeirsson forseta á Bessastöðum og…Lesa meira

true

Bræður opna Kaffihúsið Kaldalæk í Ólafsvík

Kaffihúsið Kaldilækur verður opnað á næstunni í Snæfellsbæ. Það er staðsett í Sjómannagarðinum í Ólafsvík og verður rekið af þeim bræðrum Antoni Jónasi og Ólafi Hlyni Illugasonum. Aðspurður um hugmyndina sagði Anton Jónas: „Ég hef lengi velt því fyrir mér hvað lítið að gera fyrir ungt fólk hérna í Snæfellsbæ, eða í það minnsta hefur…Lesa meira

true

Skaginn 3X selur búnað um borð í Drangey

Í dag var á sjávarútvegssýningunni í Brussel undirritaður samningur milli Skaginn 3X og FISK Seafood á Sauðárkróki um kaup þess síðarnefna á vinnslu- og lestarbúnaði fyrir nýsmíði fyrirtækisins Drangey SK2 sem sjósett var í Tyrklandi í síðustu viku. Skipið er væntanlegt til landsins síðla sumars. Vinnslubúnaðurinn byggir á SUB-CHILLING™ tækni þeirri er Skaginn 3X hefur…Lesa meira

true

Vesturlandssýning 2017 í Faxaborg

Hestamannafélögin Faxi og Skuggi standa fyrir Vesturlandssýningunni 2017 sem verður haldin í Faxaborg í Borgarnesi föstudaginn 28. apríl klukkan 20:00. Þar munu ræktunarbú af svæðinu koma fram. Börn og unglingar sýna hesta sína, FT verður með atriði, Íslandsmeistari frá 2016 kemur fram á gæðingi sínum og nokkrir glæsilegir stóðhestar munu mæta á svæðið. Þeirra á…Lesa meira

true

Héldu almannavarnaæfingu í Hvalfjarðargöngum

Umfangsmikil almannavarnaæfing var í Hvalfjarðargöngum í gærkvöldi og fram eftir nóttu. Æfingin markaði jafnframt fyrstu næturlokun í göngunum í þessari viku vegna vorhreingerninga, en lokað verður fyrir umferð næstu nætur frá miðnætti og til og með aðfararnótt föstudags. Í gærkvöldi var göngunum hins vegar lokað klukkan 22 og blásið til umfangsmikillar æfingar. Sviðsett var alvarlegt…Lesa meira

true

Hikstuðu af stað að afloknu hrygningarstoppi

Síðastliðinn föstudag lauk hrygningarstoppinu og máttu bátar setja út veiðarfæri klukkan 10 að morgni þess dags. Voru bátar að tínast úr höfnum Snæfellsbæjar fram eftir morgni. Þeirra á meðal var Brynja SH. Ekki vildi betur til en svo þegar Brynja var kominn rétt út fyrir höfnina í Ólafsvík að aðalvél bátsins stöðvaðist og þurftu skipverjar…Lesa meira

true

Göngur og réttir verða sumsstaðar færðar fram um viku

Bændur víða um land undirbúa nú að flýta göngum og réttum í haust. Það er gert að ósk sláturleyfishafa sem mælast til þess að geta byrjað sláturtíð fyrr í haust en tíðkast hefur. Ástæður þessa er mikil birgðastöða lambakjöts og sú staðreynd að kjöt, einkum læri, af stærstu dilkunum er það sem helst myndar birgðirnar.…Lesa meira

true

Hillir undir samning um endurbyggingu hjúkrunardeildar í Stykkishólmi

Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í Stykkishólmi segir að allt frá ársbyrjun 2010, þegar Heilbrigðisstofnun Vesturlands var stofnuð og St.Franciskusspítalinn var settur undir yfirstjórn HVE, hafi mikil þrautarganga staðið við að koma af stað endurbyggingu hjúkrunardeildar sjúkrahússins. Þeirri hjúkrunardeild er ætlað að leysa Dvalarheimili Stykkishólms af hólmi með sérinnréttuðu húsnæði. „Allan þennan tíma hafa bæjaryfirvöld átt í…Lesa meira

true

Skeifudagurinn er uppskeruhátíð reiðmennsku við LbhÍ

Skeifudagurinn, keppni nemenda í hrossarækt III við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, fór fram á Mið-Fossum fyrsta dag sumars. Að hátíðinni stendur sem fyrr Hestamannafélagið Grani á Hvanneyri og fór dagurinn vel fram í alla staði. Að lokinni keppni var kaffihlaðboð í Ásgarði á Hvanneyri þar sem hið vinsæla folatollahappdrætti fór fram. Þar er í vinninga…Lesa meira