Fréttir

true

„Hin lögin“ flutt á Bítlaheiðurstónleikum á Gamla kaupfélaginu

Laugardaginn 22. apríl verða Bítlaheiðurstónleikar haldnir í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi. Sveitin Helter Skelter mun þar skapa kvöldstund sem engin alvöru Bítlaaðdáandi ætti að missa af, eins og segir í tilkynnningu. Á dagskrá verða perlur áranna 1966-1970, sem fólk elskar af plötunum en fór stundum minna fyrir á topplistunum. Einnig fá nokkrar vel valdar sögur…Lesa meira

true

Samið við Sæferðir um Flóasiglingar

Tvö tilboð bárust ferjusiglingar milli Akraness og Reykjavíkur. Hagstæðara tilboðið áttu Sæferðir og var gengið að því. Stefnir fyrirtækið að því að hefja siglingar seinni hlutann í maí, en skv. útboðsgögnum skulu siglingar hefjast eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Um er að ræða tilraunaverkefni til sex mánaða með stuðningi sveitarfélaganna tveggja, Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar.…Lesa meira

true

Nýr veitingastaður opnaður í Ólafsvík

Síðastliðinn laugardag opnuðu hjónin Justyna Ondycz og Mikolaj Ondycz veitingastaðinn Matarlist við Ólafsbraut í Ólafsvík. Þar var áður veitingastaðurinn Hobbitinn. Justyna segir í samtali við Skessuhorn að eigin veitingarrekstur hafi verið draumur hennar í mörg ár og þarna væri kjörinn staður til þess að láta draum sinn rætast. „Við hjónin höfum verið lengi í þessum…Lesa meira

true

Snæfell komið með bakið upp við vegg

Snæfellskonur urðu að játa sig sigraðar gegn Keflavík í gærkvöldi, í öðrum leik liðanna í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Keflavík hefur því tvo sigra gegn engum og getur tryggt sér titilinn með sigri í Stykkishólmi næstkomandi sunnudag. Leikurinn fór fjörlega af stað og það voru Keflavíkingar sem voru sterkari í upphafi. Eftir aðeins fjögurra mínútna leik…Lesa meira

true

Óhöpp í umferðinni að kvöldi síðasta vetrardags

Að kvöldi síðasta vetrardags voru afar erfiðar aðstæður til aksturs á fjallvegum á norðvestanverðu landinu. Á Holtavörðuheiði þurfti til að mynda fjöldi björgunarsveitarmanna að aðstoða vegfarendur. Þar fór flutningabíll útaf veginum. Var heiðinni að endingu lokað fyrir umferð og ökumönnum beint að aka um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. Síðar þetta sama kvöld fór svo fólksbíll útaf…Lesa meira

true

Sauma sauðburðartuskur

Starfsmenn Öldunnar í Brákarey í Borgarnesi hafa að undanförnu framleitt sérstakar sauðburðartuskur fyrir bændur. Um nýjung er að ræða en tuskur eru saumaðar úr gömlum handklæðum og öðru hentugu efni sem safnast hefur í söfnunargámum Rauða krossins víða um land. Tuskurnar eru seldar í eins kílóa pokum ásamt tíu snærisspottum til að nota við bindingu.…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Brák selur Pétursborg og setur stefnuna á nýbyggingu

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi samþykkti á aðalfundi sveitarinnar í síðustu viku að taka kauptilboði í Pétursborg, húsnæði félagsins í Brákarey. Kaupandinn er ekki gefinn upp að svo stöddu en samkvæmt heimildum Skessuhorns vinnur hann að því að kaupa fleiri rými í húsalengjunni Brákarbraut 18-20, sem Pétursborg tilheyrir. Þar var í áratugi húsnæði Bifreiða- og trésmiðju…Lesa meira

true

Sólarlag er fyrsta myndlistarsýning Brynjars Mars

Brynjar Mar Guðmundsson, ungur listamaður á Akranesi, opnar sína fyrstu myndlistarsýningu í Galleríi Bjarna Þórs á morgun, laugardaginn 22. apríl kl. 14:00. Sýningin ber heitið Sólarlag og tileinkar Brynjar hana ömmu sinni, Brynju Einarsdóttur. „Ég er skírður í höfuðið á henni og það var hún sem kveikti áhuga minn fyrir listinni. Hún rétti mér blað…Lesa meira

true

Ber afar hlýjan hug til lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi greinir á vefsíðu sinni frá fallegu atviki sem gerðist síðastliðinn mánudag. Vegfarandi átti leið um Vesturlandsveg og kom að umferðaróhappi þar sem lögreglumenn voru við störf. Var veður vont á vettvangi, um 40 m/s í vindhviðum og lofthitinn um 3 gráður. Tók vegfarandinn eftir lögreglumanni sem var að stjórna umferð á veginum.…Lesa meira