Fréttir

true

Stækkun stendur yfir á Hótel Húsafelli

Hótel Húsafell var opnað með formlegum hætti 15. júlí á síðasta ári þegar tekið var á móti fyrstu gestunum. Nú þegar hefur verið ráðist í stækkun hótelsins úr 36 herbergjum í 48. Framkvæmdir hófust í marsmánuði og ganga vel. „Platan var steypt í byrjun apríl og verkinu á að vera að fullu lokið um miðjan…Lesa meira

true

Frumleg áritun sendibréfs en dugði þó

Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld bóndi á Hólum í Hvammssveit fékk skemmtilega póstsendingu í lok marsmánaðar. Henni barst umslag með frumlegustu áletrun sem henni hefur borist fram til þessa. Nokkrir erlendir ferðamenn sem höfðu átt viðdvöl í sveitinni á Hólum gerðu tilraun til að senda Rebeccu og fjölskyldu póstkort án heimilisfangs. Á umslagið var þó ritað…Lesa meira

true

Vill að byggð verði heimavist fyrir ungmenni af landsbyggðinni

Í grein í Fréttablaðinu 17. maí síðastliðinn vekur Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, framhaldsskólanemi frá Bakkakoti í Borgarfirði, máls á húsnæðisvanda námsfólks af landsbyggðinni þegar það sækir nám á höfuðborgarsvæðið. Greinin ber fyrirsögnina „Heimilislausir námsmenn af landsbyggðinni.“ Þar segir Lilja meðal annars: „Stöðug umræða er um húsnæðisvandamál stúdenta og barnafjölskyldna, enda er staða þeirra grafalvarleg. En á…Lesa meira

true

Íslandshótel stórauka umsvif sín á Vesturlandi

Íslandshótel hafa keypt Hótel Stykkishólm og tóku við rekstrinum um síðustu mánaðamót. Hótel Stykkishólmur er vel búið 79 herbergja hótel. Að sögn Davíðs Ólafssonar framkvæmdastjóra Íslandshótela verður Hótel Stykkishólmur framvegis hluti af Fosshótel keðjunni. Íslandshótel reka alls 17 hótel á Íslandi eftir að Hótel Hnappavellir bætast við í sumar. Þá segir Davíð að átjánda hótelið…Lesa meira

true

Berglind Axelsdóttir verður skólastjóri Grunnskólans í Stykkishólmi

Berglind Axelsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskólans í Stykkishólms. Tillaga um ráðningu hennar var samþykkt í bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar síðastliðinn þriðjudag með öllum greiddum atkvæðum. Tekur hún við stöðu skólastjóra í haust af Gunnari Svanlaugssyni, sem gengt hefur starfinu frá árinu 1994. Segir í rökstuðningi að hún mæti öllum þeim kröfum sem gerðar hafi verið um…Lesa meira

true

Flosi ráðinn aðstoðarskólastjóri Grundaskóla

Flosi Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Grundaskóla á Akranesi frá og með 1. ágúst næstkomandi. Tekur hann við af Sigurði Arnari Sigurðssyni sem nýverið var ráðinn skólastjóri skólans. Alls bárust fjórar umsóknir um stöðu aðstoðarskólameistaraa. Flosi hefur starfað í Grundaskóla frá árinu 1986 sem kennari, stigstjóri, verkefnastjóri og deildarstjóri á unglingastigi. Hann hefur setið lengi…Lesa meira

true

Alþýðusambandið gagnrýnir forgangsröðun í ríkisfjármálum

Miðstjórn Alþýðusambandsins gagnrýnir harðlega forgangsröðun í ríkisfjármálum sem fram kemur í þingsályktun um fjármálaætlun fyrir árin 2017-2021. „Í áætluninni er hvorki að finna merki þess að efnahagsstefna stjórnvalda til næstu ára muni treysta efnahagslegan stöðugleika né undirbyggja félagslega velferð og aukinn jöfnuð í samfélaginu,“ segir í tilkynningu ASÍ. „Slaki í ríkisfjármálum samhliða vaxandi spennu í…Lesa meira

true

Fimm daga lokun vegna útfarar bakarahjóna

Í bæjarblaðinu Jökli sem gefið er út í Ólafsvík er í dag auglýsing þar sem segir frá fimm daga lokun bakarísins á staðnum; Brauðgerð Ólafsvíkur. Þar segir að lokað verði dagana 21. – 25. maí 2016 vegna „út-farar“ bakarahjónanna. Gæsalappir og broskall á viðeigandi stöðum bendir þó til að bakarahjónin séu við góða heilsu, en…Lesa meira

true

Með fullfermi af kolmunna á leið til Vopnafjarðar

Víkingur AK var síðdegis í gær á siglingu til Vopnafjarðar með fullfermi af kolmunna. Aflinn fékkst að mestu vestan við Færeyjar en þar er nú mikill fjöldi skipa að veiðum. Á vef HB Granda, sem gerir skipið út, er haft eftir Alberti Sveinssyni skipstjóra að ekki hafi beint verið kraftur í veiðunum en þetta hafi…Lesa meira

true

ÍA tapaði stórt fyrir norðan

Önnur umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. ÍA mætti Þór/KA á Þórsvelli. Fyrirfram var búist við því að á brattann yrði að sækja fyrir Skagakonur, Akureyringum víðast hvar spáð toppbaráttu í sumar en Skagaliðinu botnbaráttu. Fór svo að lokum að Þór/KA vann stórsigur, 4-0. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af…Lesa meira