Fréttir

true

Tjaldur við tjaldstæðið í Ólafsvík

Það eru ekki öll hreiður sem njóta lögregluverndar. Þó er svo farið hjá þessu tjaldspari sem á hreiður sitt rétt hjá tjaldstæðinu í Ólafsvík. Hreiðurgerðin hefur átt sér stað á miðju bílastæði skammt frá þjóðveginum og er því mikil umferð þar um. Settar voru upp merkingar til að hreiðrið sæist betur, fengi frið og bætti…Lesa meira

true

Samfélagsbanki í undirbúningi

Í undirbúning er íslenskur samfélagsbanki; Heimilisbankinn. Kynningarfundur hefur verið boðaður þriðjudaginn 24. maí næstkomandi en honum hefur enn ekki verið fundinn staður. Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV. Þar er haft eftir Hólmsteini Brekkan, framkvæmdastjóra Samtaka leigjenda á Íslandi, sem á sæti í undirbúningshópi verkefnisins, að hugmyndin um samfélagsbanka hafi legið í dvala…Lesa meira

true

Landsbankinn í fjörutíu ár í Snæfellsbæ

Það var mikið um að vera í útibúi Landsbankans í Snæfellsbæ á síðasta föstudag. Þá var íbúum boðið að fagna með starfsfólki bankans þeim áfanga að 40 ár voru liðin frá því bankinn opnaði fyrst útibú í Snæfellsbæ. Gestum var boðið upp á veitingar og tónlistarveislu en nemendur Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fluttu tónlistaratriði. Einnig sungu þær…Lesa meira

true

Ný vefsíða Borgarbyggðar tekin í notkun

„Vinna við nýju vefsíðuna hjá Borgarbyggð hófst i haust, þar sem við hófum samstarf við vefsmíðiþjónustu Tækniborgar, sem er starfandi þjónustufyrirtæki hér í Borgarnesi,“ segir Gestur Andrés Grjetarsson, tölvuumsjónarmaður Borgarbyggðar, en ný vefsíða sveitarfélagsins var tekin í notkun í dag, miðvikudaginn 18. maí. Vefsíðan er unnin í WordPress af Aroni Hallssyni vefhönnuði hjá Tækniborg. „Við…Lesa meira

true

Breiðarmálið afgreitt í bæjarstjórn á þriðjudag

Tillaga um breytt skipulag á Breiðarsvæðinu á Akranesi hefur sem kunnugt er verið til umfjöllunar hjá skipulagsyfirvöldum í nokkra mánuði. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns snýst málið um fyrirhugaða uppbyggingu nýrrar fiskþurrkunarverksmiðju HB Granda á Breið. Málið er sem stendur til umfjöllunar hjá skipulags- og umhverfisráði, sem fundað hefur í þessari viku.…Lesa meira

true

Stunda óheimila eggjatöku í Þormóðsskeri og fleiri eyjum

Bændur sem eiga og nytja varp á Álftanesi og Straumfirði á Mýrum segjast langþreyttir á óheimilli eggjatöku í eyjunum. Svanur Steinarsson í Straumfirði segir að um síðustu helgi hafi keyrt um þverbak þegar farið var í Þormóðssker og egg hreinsuð þar úr öllum hreiðrum. „Þessir menn eru ekki að virða nytjarétt bænda og okkar landeigenda…Lesa meira

true

Litahlaupið og Alvogen styrkja góðgerðarfélög

Samfélagssjóður The Color Run og lyfjafyrirtækisins Alvogen veitir tveimur íslenskum góðgerðarfélögum styrk í tengslum við litahlaupið sem haldið verður í miðbæ Reykjavíkur 11. júní næstkomandi. Sex milljónum króna verður úthlutað til Rauða krossins og Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra vegna verkefna sem tengjast réttindum og velferð barna á Íslandi. Samfélagssjóðurinn var stofnaður á síðasta ári þegar…Lesa meira

true

Urðunarstaður fyrir óvirkan úrgang við Borgarnes

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að endurnýja starfsleyfi fyrir urðunarstaðinn í Bjarnhólum við Borgarnes. Á vefsíðu Borgarbyggðar er greint frá því að deiliskipulag hafi verið samþykkt fyrir svæðið og 6. apríl síðastliðinn hafi Umhverfisstofnun gefið út starfsleyfi fyrir meðhöndlun úrgangs á svæðinu. „Einungis er um að ræða urðun úrgangs sem telst tækur á…Lesa meira

true

Umferðaróhapp sem rekja má til kattar í bílnum

Alls urðu átta umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Þar af tvö þar sem meiðsl urðu á fólki. Íslenskur ökumaður sem ók Vesturlandsveg til norðurs við Hafnarfjall, missti bíl sinn yfir á öfugan vegarhelming þegar hann var að reyna að handsama kött sem slapp úr búri sem var í bílnum. Lenti bíll hans utan…Lesa meira

true

Sérblað í tilefni afmælis Landmælinga Íslands

Í tilefni þess að Landmælingar Íslands verða 60 ára á þessu ári verður haldin afmælisráðstefna næstkomandi föstudag kl. 9:00 – 12:00. Ráðstefnan verður haldin í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness. Umfjöllunarefnið verður mikilvægi góðra korta og landupplýsinga í samfélaginu m.a. í tengslum við örnefni, leit og björgun, náttúruvá og ferðaþjónustu. Eftir hádegið sama dag verður svo opið hús…Lesa meira