Fréttir

true

Ný lög um þjónustu við fatlað fólk

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp að nýjum heildarlögum sem fjalla um þjónustu við fatlað fólks með þörf fyrir mikinn stuðning. Ýmis nýmæli eru í frumvarpinu sem hefur það meginmarkmið að innleiða ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í íslenska löggjöf. Samhliða leggur ráðherra fram frumvarp til breytinga…Lesa meira

true

Hagnaður af rekstri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi

Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi var haldinn sl. miðvikudag á Hótel Hamri í Borgarnesi. Rakel Óskarsdóttir formaður stjórnar fór yfir ársskýrslu samtakanna. Hún greindi m.a. frá nýrri heimasíðu SSV, sem fór í loftið á árinu, og ferð til Noregs þar sem sveitarstjórnarmenn kynntu sér sveitarstjórnarstigið þar í landi. Áhersluverkefni um fjölgun iðnnema heppnaðist vel og…Lesa meira

true

Innbrot í sumarhús og of hraður akstur

Í dagbók lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að 25 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni sem leið. Einnig voru afskipti höfð af nokkrum ökumönnum sem voru ekki með bílbeltin spennt. Einn ökumaður var tekinn úr umferð vegna gruns um ölvun við akstur og annar til reyndist sviptur ökuréttindum. Fjögur umferðaróhöpp komu inn…Lesa meira

true

Skemmtikvöld Víkings

Skemmti- og styrktarkvöld knattspyrnudeildar Víkings var haldið síðastliðið laugardagskvöld í félagsheimilinu Klifi. Gestir gæddu sér á dýrindismat sem þeir Lárus, Stefán og Hilmar útbjuggu. Leikmenn meistaraflokks sáu um að þjóna til borðs. Þeir sáu einnig um skemmtiatriði þar sem þeir könnuðu þekkingu gesta á leikmönnum og þjálfurum. Varð úr hin besta skemmtun. Einnig voru dregnir…Lesa meira

true

Jafnrétti, virðing og fjölbreytileiki verða einkunnarorð FVA

Mánudaginn 27. mars var haldinn „þjóðfundur“ í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Tilgangur fundarins var að finna út hvaða gildi FVA ætti að hafa að leiðarljósi. Fundargestum,  nemendum og starfsmönnum, var skipt niður í 40 hópa og voru um níu manns í hverjum þeirra. Á mörgum borðum skapaðist lífleg umræða um raungildi og óskagildi skólans. Hver…Lesa meira

true

Flutningur Dixon oktettsins tekinn upp fyrir sjónvarp

Lokahátíð Nótunnar 2017 fór fram í Eldborgarsal Hörpu síðastliðinn sunnudag. Þar voru 24 atriði flutt, en þau höfðu öll unnið sér þátttökurétt í undankeppnum heima í héraði. Á lokahátíðinni fengu síðan tíu framúrskarandi atriði sérstakar viðurkenningar og verðlaunagrip Nótunnar 2017. Framlag Vesturlands var Dixon-oktettinn frá Tónlistarskólanum á Akranesi. Flytjendur stóðu sig með prýði og uppskáru…Lesa meira

true

Hálka og snjóþekja á vegum

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vesturlandi. Hálka er á Holtavörðuheiði en snjóþekja á Bröttubrekku, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka. Þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi en þæfingsfærð og skafrenningur á Kleifarheiði. Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru lokaðar. Því er spáð að framan af degi snúist til hvassrar…Lesa meira

true

Vesturlandsmótið í tvímenningi hefst í næstu viku

Briddsfélag Borgarfjarðar lauk í gær tveggja kvölda páskatvímenningi í Logalandi. Með sigur af hólmi fóru ungstirnin Heiðar Árni og Logi eftir ævintýralegt skor síðara keppniskvöldið, eða um 70%. Töldu menn að eftir að þeir sáu verðlaunin hafi þeir orðið hungraðir í sigur eins og börn við nammibar stórverslunar. Eftir fyrra kvöldið voru þeir töluvert neðan…Lesa meira

true

Sumaropnunartími Snorrastofu hafinn

Snorrastofa í Reykholti hefur um árabil rekið þjónustu við gesti staðarins og í gestastofu hennar er leitast við að koma sem best til móts við þarfir þeirra fjölmörgu sem heimsækja staðinn. Undanfarin ár hefur Snorrastofa skipt úr vetraropnunartíma yfir í sumartíma við mánaðamótin apríl og maí en nú hefur verið ákveðið að færa hann fram…Lesa meira

true

Trausti sæmdur gullmerki Sundsambands Íslands

Á Sundþingi sem fram fór helgina 23.-24 mars síðastliðinn var Trausti Gylfason formaður Sundfélags Akranes sæmdur Gullmerki Sundsambands Íslands. Það fær hann fyrir faglega mótsstjórn á Smáþjóðaleikum á Íslandi árið 2015 og störf í þágu sundíþróttarinnar á Íslandi. Trausti hefur gegnt starfi formanns SA síðan 2013.Lesa meira