Fréttir

true

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Grundarfirði

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins sleppti ankerum á ytri Grundarfjarðarhöfn í morgun. Það var skipið Albatros sem gerir stutt stoppen alls hafa 27 skemmtiferðaskip boðað komu sína á fjörðinn í sumar. Albatros er um 28 þúsund tonn og hefur um 900 farþega innanborðs. Farþegum stóðu til boða ýmsar ferðir með rútum, gönguferð með leiðsögumanni eða bara rölt um…Lesa meira

true

Tækniframfarir hafa breytt miklu hjá lögreglunni

Margt hefur breyst í þjóðfélaginu á 37 árum og er starf lögreglunnar ekki þar undanskilið. Kristvin Ómar Jónsson hefur starfað við löggæslu síðustu 37 ár eða allt þar til hann lét af störfum í lok síðasta mánaðar, 65 ára að aldri. „Það sem hefur helst breyst hjá okkur í löggunni á þessum árum er tæknin…Lesa meira

true

Skógræktarsumarið hafið á Vesturlandi

Fyrstu plöntur vorsins voru afhentar á dreifingarstöðvar Vesturlandsskóga á Lágafelli og Erpsstöðum síðastliðinn fimmtudag. Að sögn Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur hjá Vesturlandsskógum voru fyrstu plöntur óvenju snemma á ferðinni í ár og þykir það jákvætt. „Yfirleitt erum við að fá fyrstu plönturnar í lok maí og alveg fram í miðjan júní. Þá eru oft komnir þurrkar…Lesa meira

true

Kvenfélagskonur í 19. júní færðu íþróttamiðstöðinni stórgjöf

Síðdegis í gær var athöfn þar sem Kvenfélagið 19. júní í Borgarfirði færði Borgarbyggð stórgjöf. Íþróttamiðstöðin fékk afhenta lyftu til að auðvelda fólki að komast í og úr sundi eða heitum pottum. Lyftan er færanleg og nýtist því á fleiri en einum stað í Íþróttamiðstöðinni. Lyftan er valin með því að leita ráðgjafar hjá Reykjalundi…Lesa meira

true

Úr markmannshönskum í sjóhanska

Það var ekki á Einari Hjörleifssyni, markmanni Víkings Ólafsvíkur, að sjá að hann hafi munað um að verja vítaspyrnu frá Garðari Gunnlaugssyni í 3-0 sigri Víkings gegn ÍA í Vesturlandsslag Pepsi deildar karla í gærkvöldi. Markmaðurinn knái er áhafnarmaður á aflaskipinu Guðmundi Jenssyni SH. Á hádegi í dag, þriðjudag, var skipið komið til Ólafsvíkurhafnar með 20…Lesa meira

true

Kári vann stórsigur í fyrsta leik

Keppni í 3. deild karla í knattspyrnu hófst nú um hvítasunnuhelgina. Knattspyrnufélag Kára frá Akranesi leikur þar undir stjórn Sigurðar Jónssonar þjálfara, líkt og í fyrra. Káramenn léku sinn fyrsta leik á öðrum í hvítasunnu síðastliðinn mánudag þegar KFS úr Vestmannaeyjum kom í heimsókn. Leikið var í Akraneshöllinni. Úrslit leiksins urðu þau að Kári vann…Lesa meira

true

Slökkvistarf gekk hratt og vel í Húsafelli

Búið er að ráða niðurlögum gróðurelds sem kom upp í Stuttárbotnum í Húsafelli fyrr í dag. Eldur kviknaði og náði að læsa sig í þurran trjágróður og því var mikill viðbúnaður. Að sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf hratt og vel. Bæði var fólk í Húsafelli sem kom að slökkvistari og svo mættu slökkviliðsmenn…Lesa meira

true

Gróðureldur í Húsafelli

Slökkvilið Borgarbyggðar hefur verið kallað út vegna elds sem kviknað hefur í gróðri og þar á meðal kjarri í Húsafelli. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er eldurinn að breiðast út og er við Stuttárbotna, ekki langt frá flugvellinum. Meðfylgjandi er skjáskot úr vefmyndavél sem staðsett er talsvert fjarri eldinum. Rauður hringur afmarkar reyk sem leggur upp af…Lesa meira

true

Ólöf ráðin upplýsingafulltrúi Veitna

Orkuveita Reykjavíkur hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf upplýsingafulltrúa. Ólöf var ein 125 umsækjenda um starfið og mun hún einkum starfa fyrir Veitur, dótturfyrirtæki OR. Rekstur Veitna er umfangsmikill. Hitaveitur Veitna þjóna um þremur af hverjum fjórum landsmönnum og Veitur reka einnig rafveitur, vatnsveitur og fráveitur víða á sunnan- og vestanverðu landinu. Ólöf hefur…Lesa meira

true

Farid Zato genginn til liðs við Víking

Víkingur Ólafsvík hefur náð samkomulagi við Farid Zato sem er stuðningsmönnum liðsins kunnugur. Farid kemur í Ólafsvík frá Sigma Olomouc í tékknesku úrvalsdeildinni þar sem hann spilaði síðast. Farid spilaði með Víkingi árið 2013 þegar liðið var síðast í Pepsi deildinni en kvaddi það og fór að spila með KR sumarið 2014.    Lesa meira