Fréttir

true

Bæjarstjórn Akraness mótmælir áfengisfrumvarpinu

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag, með sex atkvæðum og hjásetu þriggja bæjarfulltrúa, áskorun til þingmanna um að fella frumvarp um afnám einkaleyfis ÁTVR á smásölu áfengis og að heimila áfengisauglýsingar. Tillöguna fluttu Valgarður L Jónsson og Ingibjörg Valdimarsson frá Samfylkingunni. Við afgreiðslu málsins sátu hjá þrír bæjarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn, þau…Lesa meira

true

Ekki verður kjallari undir fimleikahúsi

Ekki verður gert ráð fyrir kjallara undir nýju fimleikahúsi sem til stendur að byggja við Vesturgötu á Akranesi. Bæjarráð Akraneskaupstaðar svaraði á fundi sínum í gær fyrirspurn frá Hnefaleikafélagi Akraness þar sem félagið falaðist eftir afnotum af kjallara undir fimleikahúsinu ef til kemur að það verði byggt. Bæjarráð svaraði erindi félagsins með þeim hætti að…Lesa meira

true

Sönghópurinn Hljómeyki á Akranesi

„Yfir vorgrænan völl…“ er yfirskrift tónleika sem sönghópurinn Hljómeyki heldur í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi mánudagskvöldið 20. mars kl. 20.30.  Á efnisskránni er m.a. tónlist eftir Emil Thoroddsen og Hildigunni Rúnarsdóttur auk verka eftir ítalska tónskáldið Bruno Bettinelli og Englendinginn Ralph Vaughan Williams. Þá verða fluttar þjóðlagaútsetningar eftir Snorra Sigfús Birgisson og Ungverjann György Ligeti…Lesa meira

true

Boða til íbúafundar um stækkun Grunnskólans í Borgarnesi

Mánudaginn 20. mars klukkan 20 stendur Borgarbyggð fyrir íbúafundi í Hjálmakletti. Þar verða kynntar tillögur hönnuðar um viðbyggingu við Grunnskólann í Borgarnesi og tillögur um lagfæringar á eldri mannvirkjum. Á undanförnum mánuðum hefur veirð unnið að útfærslu hönnunar á viðbyggingu við skólann, skipulagsmálum á byggingarreit og öðru sem tengist þessu stóra verkefni. Hér er um…Lesa meira

true

Sumarskóli Háskólans á Bifröst eftirsóttur

„Við erum búin að fá 22 gildar umsóknir, en yfir 50 hafa borist í heildina,“ segir Karl Eiríksson alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst um aðsókn að sumarskóla háskólans. Sumarskólinn felst í námskeiðinu „Sustainable Future: Creative Leadership in the 21st Century,“ sem útleggst á íslensku sem Sjálfbær framtíð: Skapandi forysta á 21. öldinni. Skólinn fer fram 8.…Lesa meira

true

Gleðin sem gjöf nefnist sýning Steinu Matt í Gerðubergi

Steinunn Matthíasdóttir í Búðardal sýnir glaðleg portrett af eldri borgurum á sýningu sem opnuð verður í Gerðubergi um helgina. Í kynningu segir að sýningunni sé ætlað að draga athygli að virðingu fyrir þeim sem eldri eru og lífsgæðum þeirra, mikilvægi þess að finna gleðina sama hvernig lífið leikur okkur og vekja fólk til umhugsunar um hvernig…Lesa meira

true

Biggest Loser fluttur í Borgarfjörðinn

Framleiðendur sjónvarpsþáttaraðarinnar Biggest Loser hafa ákveðið að næsta þáttaröð verði tekin upp í Borgarfirði og verður heimili keppenda á Bifröst. Þetta er í fjórða skipti sem upptökur fara fram en hingað til hafa þættirnir verið teknir upp á Ásbrú í Reykjanesbæ. Að sögn Jóns Hauks Jenssonar leikstjóra hjá Saga Film, sem framleiðir þættina, eru bundnar…Lesa meira

true

Siggi stóðst áskorunina: „Þetta kemur bara vel út“

Skessuhorn greindi frá því í desember síðastliðnum að sjúkraflutningamenn á Akranesi finna sér ýmislegt skemmtilegt að bardúsa á vöktum þegar blessunarlega er lítið að gera í vinnunni. Fannar Sólbjartsson skoraði á vinnufélaga sinn, Skarphéðinn Magnússon, að safna hári í þrjá mánuði. Þar sem Skarpi er sköllóttur og hársöfnun því ekki hans sterkasta hlið ákvað hann…Lesa meira

true

Sæljós komið að landi í Rifi

Nú rétt í þessu var Sæljósi GK-2 siglt að bryggju í Rifi, en leki kom að bátnum um eittleitið í dag þar sem hann var staddur um sjö sjómílur norðvestan við Rif. Mikill viðbúnaður björgunaraðila var vegna útkallsins og fór m.a. þyrla Landhelgisgæslunnar í loftið. Þyrlunni var snúið við þar sem nærliggjandi bátar komu fljótlega…Lesa meira

true

Farið verður yfir vankanta við framkvæmd samræmdra prófa

Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur ákveðið að kalla saman fulltrúa allra helstu aðila skólastarfs í grunnskólum til að fara yfir framkvæmd samræmdu könnunarprófanna sem nemendur 9. og 10. bekkjar þreyttu í síðustu viku. Mikil umræða hefur að undanförnu verið um framkvæmd prófanna og gremja, ekki síst nemenda sjálfra, vegna ýmissa þátta við framkvæmdina,…Lesa meira