Fréttir

true

Randi sigraði í fimmgangskeppninni

Randi Holaker á Skáney hafði sigur í hnífjöfnum fimmgangsúrslitum Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum, en keppt var á föstudaginn í Faxaborg. Lið Leiknis/Skáneyjar hafði sigur í liðakeppninni þriðja mótið í röð og bætir því enn við forystu sína.   Í einstaklingskeppninni urðu úrslit þessi: Randi Holaker – Þytur frá Skáney – 6,38 Konráð Valur Sveinsson – Þeldökk…Lesa meira

true

Slitnir Strengir gefa út nýjan disk

Þjóðlagasveitin Slitnir Strengir undir stjórn Skúla Ragnars Skúlasonar hefur unnið hörðum höndum að útgáfu nýs geisladisks undanfarið ár. Diskurinn kemur út föstudaginn 17. mars og mun sveitin halda tvenna útgáfutónleika á Akranesi helgina 17. – 18. mars á Akranesi. Verkefnið var fjármagnað með styrkjum í gegnum styrktarsíðuna Karolinafund, ásamt styrki frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Almenningur tók…Lesa meira

true

Frumsýna Hafið í Brautartungu á föstudagskvöldið

Leikdeild Ungmennafélagsins Dagrenningar í Lundarreykjadal hefur frá því um áramótin æft leikverkið Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson. Æfingar og sýningar fara fram í félagsheimilinu Brautartungu og verður verkið frumsýnt næstkomandi föstudagskvöld. Leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir. Í uppfærslunni taka þátt sautján leikarar en alls er á fjórða tug sem kemur að uppfærslunni með einum eða…Lesa meira

true

Minnist Gullaldarliðsins – Íslandsmeistaranna 1951 sem ruddu brautina

“Árið 1951 er á ýmsan hátt tímamótaár í íslenskri knattspyrnu. Þar komu Akurnesingar mikið við sögu. Knattspyrnan á Íslandi breyttist. Nýr leikstíll var innleiddur af Akurnesingum. Á þessu ári vann íslenska landsliðið einn sinn fræknasta sigur þegar það lagði sænska landsliðið 4 – 3. Í liðinu voru tveir Akurnesingar, þeir Ríkharður Jónsson og Þórður Þórðarson.…Lesa meira

true

Stykkishólmur í samtökum gamalla Hansabæja

Nú hafa 187 bæjarfélög í 16 löndum myndað samtök gamalla Hansabæja. Sveitarfélög þessi eiga þann sameiginlega menningarsögulega bakgrunn að hafa verið Hansabæir á miðöldum. Hansasambandið var bandalag verslunarborga, aðallega í Norður-Þýskalandi, sem tókst að koma á einokun í verslun á Eystrasalti og um alla Norður-Evrópu. Í byrjun 15. aldar fóru þýskir Hansa kaupmenn að versla…Lesa meira

true

Fimmtíu ára björgunarsveit

Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði varð 50 ára í liðnum mánuði, en stofnfundur sveitarinnar var haldinn í Logalandi 18. febrúar 1967 og voru um 50 skráðir stofnfélagar. Starfssvæðið er nú sem fyrr sveitirnar norðan Skarðsheiðar ásamt Hvítársíðu. Það mun hafa verið síðsumars 1966 að fólk í uppsveitum Borgarfjarðar fór að ræða það í fullri alvöru að…Lesa meira

true

Sóttu eyjafé

Um liðna helgi fór vaskur hópur smala í sjóferð út í eyjuna Sellón á Breiðafirði. Þangað voru sóttar tæplega fimmtíu kindur frá Ögri og fluttar í land. Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari slóst með í för og má nánar lesa um ferðina í Skessuhorni sem kom út í dag.Lesa meira

true

Gullaldarliðið sem markaði sporin

Á liðnum dögum og vikum hafa síðustu liðsmenn Íslandsmeistara ÍA í knattspyrnu árið 1951 fallið frá. Með andláti þeirra Ríkharðs Jónssonar, Guðjóns Finnbogasonar og nú síðast Sveins Teitssonar eru horfnir af sjónarsviðinu síðustu mennirnir sem skópu upphaf Gullaldarliðs Skagamanna í knattspyrnu. Árið 1951 markaði spor í knattspyrnusögunni hér á landi. Í fyrsta skipti var spilað…Lesa meira

true

Beðið eftir niðurstöðum heitavatnsmælinga

Um miðjan síðasta mánuð lauk mælingum á heitavatnsholunum á Reykhólum. Það voru Íslenskar orkurannsóknir sem unnu að mælingunum og nutu til þess aðstoðar starfsmanna Orkubús Vestfjarða. Mælt var rennsli úr öllum heitavatnsholunum á Reykhólum, sem og hitastig vatnsins og þrýstingur. Slík heildarmæling á öllum holum þorpsins hefur ekki verið gerð áður. Mælingunum er ætlað að…Lesa meira

true

Vesturlandsdeild í körfunni!

Eins og greint er frá í Skessuhorni vikunnar er lið Skallagríms fallið úr Domino‘s deild karla í körfuknattleik eftir tap gegn Þór Þ. í næstsíðasta leik vetrarins á sunnudaginn. Þegar ein umferð er eftir er Skallagrímur í 11. sæti með 14 stig, tveimur stigum á eftir Haukum en geta ekki farið uppfyrir þá jafnvel þótt…Lesa meira