Fréttir

true

Mikil eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Hvanneyri

Mikil eftirspurn er eftir íbúðarhúsnæði á Hvanneyri í Borgarfirði þessa dagana. Nýlega voru tvö hús; einbýlishús og parhússíbúð, sett á sölu og seldust báðar eignirnar á örfáum dögum. Í annað húsið bárust a.m.k. fimm tilboð og endaði það á að seljast á hærra en uppsettu verði. Þá munu samkvæmt heimildum Skessuhorns a.m.k. fjórar fjölskyldur á…Lesa meira

true

Vegagerðin hyggst auka vetrarþjónustu

Vegagerðin hefur svarað erindi byggðarráðs Borgarbyggðar þar sem farið var fram á að vetrarþjónustu í uppsveitum Borgarfjarðar verði aukin og hún aðlöguð að aukinni umferð, meðal annars ferðafólks. Fram kemur að Vegagerðin mun vinna að tillögum um breyttar reglur um snjómokstur og leggja fyrir samgönguráðuneytið fyrir næsta vetur til samþykktar. Þar mun verða lagt mat…Lesa meira

true

Skotfélag Snæfellsness byggir skothús

Það er mikið um að vera hjá Skotfélagi Snæfellsness þessa dagana en nú er verið að hefjast handa við byggingu á 75 fermetra skothúsi með sex riffilborðum. Hús af þessu tagi hefur verið í umræðunni hjá félaginu frá stofnun þess fyrir þrjátíu árum. Undirbúningur fyrir framkvæmdina hefur verið í gangi síðustu 5-6 ár. Þetta hús…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Líf og fjör á Öskudegi á skrifstofu Skessuhorns

Mikill gestafjöldi hefur í dag átt viðkomu á ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns. Sleikipinnavísitalan gefur til kynna að krakkar á Akranesi hafi verið í duglegri kantinum að heimsækja fyrirtæki að þessu sinni; syngja og þiggja gott að launum. Veðrið lék við krakkana og gömul munnmælasaga, að öskudagur eigi sér átján bræður, á vonandi eftir að rætast. Dagskrá öskudagsins…Lesa meira

true

Beðið eftir niðurstöðum heitavatnsmælinga

Um miðjan febrúar lauk mælingum á heitavatnsholunum á Reykhólum. Það voru Íslenskar orkurannsóknir sem unnu að mælingunum og nutu til þess aðstoðar starfsmanna Orkubús Vestfjarða. Mælt var rennsli úr öllum heitavatnsholunum á Reykhólum, sem og hitastig vatnsins og þrýstingur. Slík heildarmæling á öllum holum þorpsins hefur ekki verið gerð áður. Mælingunum er ætlað að leiða…Lesa meira

true

Ráðstefnuhlé Vitbrigða Vesturlands

Ráðstefnuhlé Vitbrigða Vesturlands verður haldið á Hótel Bifröst laugardaginn 11. mars næstkomandi. Félagið hefur að markmiði að efla fólk í skapandi greinum og gera því auðveldara að starfa á þeim vettvangi innan landshlutans. Á Ráðstefnuhléi á Bifröst verða skapandi greinar og sköpun almennt einmitt til umfjöllunar. „Áherslan á þessari ráðstefnu verður ekki síst á viðburði…Lesa meira

true

Bjarni Þór varð Íslandsmeistari í hnefaleikum

Skagamaðurinn Bjarni Þór Benediktsson úr Hnefaleikafélagi Akraness varð Íslandsmeistari í ólympískum hnefaleikum á Íslandsmótinu sem fram fór í Reykjavík um síðustu helgi. Bjarni Þór keppti í -64 kg flokki ungmenna og bar sigurorð af Sólon Ísfeld frá hnefaleikafélaginu Æsi í úrslitaviðureigninni á sunnudag. Sú viðureign var mjög spennandi og tæknileg og fengu þeir félagar sérstaka…Lesa meira

true

Fundað með hestamönnum

Félag hrossabænda og Fagráð í hrossarækt byrjar í dag fundaferð um landið þar sem málefni hestamanna verða rædd. Á fundunum verður meðal annars rætt um félagskerfi hrossabænda, markaðsmál, þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt og dómskala, nýjungar í skýrsluhaldi og fleira. Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi…Lesa meira

true

Keppt í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni á föstudaginn

Þriðja mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum verður föstudagskvöldið 3. mars í Faxaborg, Borgarnesi. Keppnisgrein kvöldsins verður fimmgangur og er kvöldið styrkt af Leikni Hestakerrum. Sem fyrr verður húsið opnað kl. 18.00 og keppni hefst á slaginu 19.00. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni en 24 knapar mynda sex, fjögurra manna lið sem etja kappi í fimm greinum…Lesa meira

true

„Fórum að blómstra eftir að við tókum við kaffihúsinu“

Síðastliðið vor tók Olga Sædís Aðalsteinsdóttir við rekstri kaffihússins Kaffi Emil í Grundarfirði ásamt dóttur sinni, Elsu Fanneyju Grétarsdóttur. Þær standa saman að rekstri fyrirtækisins Svansskála ehf., sem heldur utan um rekstur Kaffi Emils. Kaffihúsið er staðsett í Sögumiðstöðinni sem einnig hýsir sögusafn, upplýsingamiðstöð og bókasafn. Samhliða kaffihúsarekstrinum hafa þær mæðgur sinnt upplýsingagjöf til ferðamanna.…Lesa meira