Fréttir

true

Naglaframleiðslan heyrir brátt sögunni til í Borgarnesi

Í Límtré Vírneti í Borgarnesi er hin fræga naglaframleiðsla til húsa. Framleiðsla á nöglum var einmitt upphafið að rekstri Vírnets árið 1956 og fagnaði þessi hluti starfseminnar því 60 ára afmæli á síðasta ári. Stefán Logi Haraldsson framkvæmdastjóri segir að senn verði þessi framleiðsla nagla aflögð og marki það vissulega tímamót í sögu fyrirtækisins. „Það…Lesa meira

true

Tveggja daga Vesturlandsorrusta í körfunni

Keppni í Domino‘s deildum karla og kvenna hefst á ný eftir bikarviku í dag og á morgun. Í kvöld tekur Skallagrímur á móti Val í Domino‘s deild kvenna en Snæfell sækir nýkrýnda bikarmeistara Keflavíkur heim. Karlamegin tekur Snæfell á móti Tindastóli á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar og Skallagrímsmenn heimsækja Keflvíkinga. Sömuleiðis er keppt í 1.…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið valið utanvegahlaup ársins

Snæfellsjökulshlaupið fékk góða viðurkenningu á dögunum þegar það var valið utanvegahlaup ársins af hlaup.is og lesendum vefjarins. Verðlaunin voru afhent síðastliðinn sunnudag. Þetta var í áttunda skipti sem verðlaun þessi eru afhent. Fjögurra skóga hlaupið varð í öðru sæti og Gullspretturinn í þriðja. Í flokki götuhlaupa var Vestmannaeyjahlaupið valið besta hlaupið, í öðru sæti Fossvogshlaupið…Lesa meira

true

Leggja til að loðnukvótinn verði 300 þúsund tonn

Í ljósi þess að mikið magn kynþroska loðnu fannst í loðnuleit norður og austur af landinu dagana 3.-11. febrúar sl. hefur Hafrannsóknastofnun nú lagt til í dag að aflamark á vertíðinni verði fimmfaldað, eða aukið í 299 þúsund tonn. Áður hafði stofnunin lagt til að heildaraflamark á vertíðinni yrði 57 þúsund tonn. Um 815 þúsund…Lesa meira

true

Frumkvöðull heimsækir átthagana og miðlar af reynslu sinni

Hjálmar Gíslason frumkvöðull flytur í kvöld klukkan 20:30 fyrirlestur í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Heimsókn Hjálmars er samvinnuverkefni Snorrastofu og Framfarafélags Borgfirðinga og er fyrsti fyrirlestur ársins í röðinni, Fyrirlestrar í héraði.  Hjálmar er Hvanneyringur að uppruna og hefur frá unglingsaldri fengist við nýsköpun á sviði upplýsingatækni og stofnað allnokkur fyrirtæki, sem öll hafa vakið…Lesa meira

true

Rippa og flokka efni í Ólafsvíkurenni

Mikið er um að vera í austanverðu Ólafsvíkurenni. Þar hefur á undanförnum árum verið tekið talsvert af efni. Tvær beltagröfur frá B.Vigfússon hafa að undanförnu verið notaðar til að rippa og flokka efni sem á að fara í þekjuna í höfninni í Rifi. Þurfti að flokka stórgrýtið frá og koma efninu niður þar sem því…Lesa meira

true

Breytt skipulag á öskudag

Öskudagurinn verður miðvikudaginn 1. mars. Hann verður með breyttu sniði í grunnskólum á Akranesi að þessu sinni. „Fram að þessu hefur öskudagur verið frídagur í skólunum en þetta skólaárið verður prófað nýtt fyrirkomulag sem felst í því að börnin verða í skólanum frá klukkan 8:00-12:30. Dagskráin þennan dag mun miða að því að gera öskudaginn…Lesa meira

true

Kynna áætlanir um tvö svæði

Akraneskaupstaður hefur boðað til opins kynningarfundar á skipulagslýsingum fyrir Sementsreit annars vegar og Dalbraut – Þjóðbraut hins vegar. Fundurinn verður fimmtudaginn 16. febrúar í sal Grundaskóla og áætlað að hann standi yfir frá klukkan 18:00 til 20:00.Lesa meira

true

Guðmundur heiðursgestur á bikarúrslitaleik

Guðmundur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi var sérstakur heiðursgestur körfuknattleiksdeildar Skallagríms á úrslitaleik Keflavíkur og Skallagríms í Maltbikarnum á laugardaginn. Guðmundur er upphafsmaður körfuboltans í Borgarnesi en hann hóf að skipuleggja æfingar innan Skallagríms skömmu eftir að hafa flutt í Borgarnes árið 1958. Síðan hefur körfubolti ætíð verð stundaður innan félagsins. Guðmundur hafði kynnst…Lesa meira

true

Lundey seld til Noregs

HB Grandi hefur selt uppsjávarveiðiskipið Lundey NS til Noregs. Söluverðið er 124 milljónir króna. Kaupandi er norska útgerðarfélagið Partrediet Karolös ANS í Bekkjarvik og staðgreiðir það skipið. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri fyrirtækisins segir að kaupandi Lundeyjar hafi fengið tilraunaveiðileyfi hjá norskum stjórnvöldum á laxsíld, m.a. á gulldeplu, sem íslensk skip veiddu um hríð. Verður skipið notað…Lesa meira