Fréttir

true

Akstursbann á hálendisvegum

Nú er byrjað að hlána til fjalla og jarðvegur víða orðinn mjög gljúpur, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Vegslóðar á hálendinu eru afar viðkvæmir á meðan frost er að fara úr jörðu og í ver  ndarskyni er akstursbann nú þegar á mörgum hálendisvegum. Þeir sem hafa hug á hálendisferðum eru beðnir að kynna sér vel hvert…Lesa meira

true

Ekki verður grafið á Gufuskálum í sumar

Enn er unnið að endurmati á munum sem fundist hafa við uppgröft á Gufuskálum síðustu árin og mun Minjastofnun Íslands ekki veita frekari uppgraftarleyfi á staðnum fyrr en þeirri vinnu lýkur. Á Gufuskálum hefur Lilja Pálsdóttir fornleifafræðingur við Fornleifastofnun á síðustu árum stýrt uppgreftri á aldagömlum minjum um útræði, verslun og verbúðir. Skessuhorn hefur fjallað…Lesa meira

true

Lektor í hagfræði á Bifröst

Francesco Macheda tók í byrjun maí við stöðu lektors í hagfræði við Háskólann á Bifröst. Starfið felur í sér skyldur á sviði kennslu og rannsókna, einkum á sviði alþjóðahagfræði, þróunarhagfræði og stjórnmálahagfræði með sérstakri áherslu á fjármálastofnanir og vinnumarkaðsmál. Francesco lauk doktorsgráðu í stjórnmálahagfræði frá Marche Polytechnic University á Ítalíu árið 2014. Hann fluttist sama…Lesa meira

true

Bláa lónið kostar meðferðarúrræði við psoriasis

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Bláa Lónið hf. hafa gert með sér samning sem felur í sér að hér eftir mun Bláa lónið veita íslenskum psoriasissjúklingum meðferð þeim að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku. Heilbrigðisráðherra staðfesti samninginn í vikunni. Bláa Lónið hefur frá árinu 1994 veitt  meðferð við psoriasis. Meðferðin er viðurkennd af íslenskum heilbrigðisyfirvöldum sem …Lesa meira

true

Gullhólmi hefur gert góða róðra

Línubáturinn Gullhólmi SH frá Stykkishólmi hefur gert góða róðra að undanförnu og á þriðjudagskvöld landaði báturinn 28 tonnum af fallegum þorski sem fer allur í salt hjá Agustson sem á og rekur bátinn. Pétur Erlingsson skipstjóri var að vonum ánægður þegar fréttaritari Skessuhorns hitti hann við löndun. „Þetta er stærsti róðurinn hjá okkur. Við lögðum…Lesa meira

true

Fyrsti sigur ÍA kominn í hús

Eftir tvo útileiki í röð lék ÍA fyrsta heimaleik sinn í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld. Skagamenn tóku á móti Fjölni og fóru með sigur af hólmi, 1-0. Jafnt var á með liðunum í upphafi og bæði lið náðu að skapa sér hálffæri snemma leiks. Eftir það datt botninn aðeins úr leiknum og…Lesa meira

true

Víkingar sóttu stig til Eyja

Víkingur Ólafsvík fór til Vestmannaeyja og mætti ÍBV í Pepsi deild karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Leiknum lyktaði með jafntefli, liðin gerðu eitt mark hvort og hlutu bæði eitt stig að launum. Fyrri hálfleikur var fremur bragðdaufur og fátt markvert gerðist. Hvorugt lið náði að ógna marki andstæðingana með afgerandi hætti, ef frá er…Lesa meira

true

Frambjóðendur þurfa að skila meðmælendalistum í fyrramálið

  Yfirkjörstjórnir á landinu munu á morgun föstudaginn 13. maí veita undirskriftum væntanlegra forsetaframbjóðenda viðtöku, hver í sínu kjördæmi. Yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi óskar eftir því að frambjóðendur skili frumriti meðmælalista með nöfnum úr kjördæminu í dómssal Héraðsdóms Vesturlands, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, milli klukkan 10 og 12 á morgun. Þá verður hægt að undirbúa vottorðsgjöf.…Lesa meira

true

Boða til stofnfundur Viðreisnar

Stofnfundur stjórnmálaflokksins Viðreisnar hefur verið boðaður þriðjudaginn 24. maí, frá kl. 17:00 til 18:00, í Silfurbergi í Hörpu. Kosin verður stjórn og stefnuyfirlýsing samþykkt. „Viðreisn er flokkur allra þeirra sem vilja að unnið sé að almannahagsmunum og gegnsæi í pólitísku starfi. Markmiðin eru réttlátt samfélag, stöðugt efnahagslíf og fjölbreytt tækifæri. Áhersla er lögð á markaðslausnir,…Lesa meira

true

Gunnhildur verður áfram hjá Snæfelli

Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við Snæfell og mun því leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna næsta vetur. Gunnhildur var fyrirliði Snæfells á nýliðnu keppnistímabili og lyfti með því bæði Íslands- og bikarmeistaratitlinum. Hún var að tímabilinu loknu valin í úrvalslið Domino‘s deildarinnar auk þess sem hún var útnefnd besti varnarmaður deildarinnar. Í…Lesa meira