Fréttir

true

„Bragðgóðar, lífrænar og hollar“

Karen Jónsdóttir, sem á og rekur verslanir Matarbúrs Kaju og kaffihúsið Café Kaja, hóf nýverið framleiðslu á lífrænum hrákökum. Eru kökurnar nú komnar í dreifingu og fáanlegar í þremur verslunum Hagkaupa, Ljómalind í Borgarnesi, Fisk kompaníinu á Akureyri og á kaffihúsinu Yogafood, sem Þorbjörg Hafsteinsdóttir á og rekur í JL húsinu í Reykjavík. „Tegundirnar eru…Lesa meira

true

Verkfall sjómanna hefur haft alvarleg áhrif

„Bæjarráð Akraness lýsir yfir þungum áhyggjum af yfirstandandi sjómannaverkfalli og hvetur samningsaðila til að ná sáttum án tafar,“ segir í ályktun sem bæjarráð samþykkti á fundi í gær. „Verkfallið hefur þegar haft alvarleg áhrif á einstaklinga, heimili og fyrirtæki á Akranesi og á íslenskt samfélag í heild sinni.“Lesa meira

true

Samþykkja að setja ferjusiglingar í auglýsingaferli

Nú hafa bæði bæjarráð Akraneskaupstaðar og borgarráð Reykjavíkur samþykkt að auglýsa tilraunaverkefni um beinar siglingar 50 til 100 manna ferju milli Reykjavíkur og Akraness. Ef áhugasamir útgerðaraðilar finnast er stefnt að sigling 50 til 100 manna ferju gæti hafist í sumar. Ekki verður um bílferju að ræða. Í bókun bæjarráðs Akraneskaupstaðar kemur fram að gert…Lesa meira

true

Opið hús á 112 deginum

Á morgun, laugardaginn 11. febrúar, frá klukkan 12-15 verður opið hús hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjararsveitar á Kalmansvöllum 2 á Akranesi. Þar munu slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn ásamt lögreglu og starfsfólki RKÍ vera á staðnum. Hægt verður að fá að skoða búnað og tæki og kynnast starfsemi þessara lífsnauðsynlegu viðbragðsaðila. Íbúar eru hvattir til að mæta.Lesa meira

true

Tveir vestlenskir markverðir í U17

Tilkynnt hefur verið um landsliðshóp U17 ára landsliðs kvenna í knattspyrnu sem tekur þátt í undirbúningsmóti UEFA í Edinborg í Skotlandi vikuna 19.-25. febrúar næstkomandi. Í hópinn hafa verið valdar tvær ungar og efnilegar knattspyrnustúlkur af Vesturlandi, þær Birta Guðlaugsdóttir, markvörður Víkings Ó. og Katrín María Óskarsdóttir, markvörður ÍA. Hópurinn kemur saman föstudaginn 17. febrúar…Lesa meira

true

Hrútavinafélagið Hreðjar á faraldsfæti

Hrútavinafélagið Hreðjar á Hvanneyri brá sér nýverið á bæjaflakk. Fyrsti viðkomustaður var Sámsstaðir í Hvítársíðu, næst var farið að Sigmundarstöðum í Þverárhlíð og endað í Hrísum í Flókadal. Rölt var um fjárhús og spjallað við húsráðendur. Á ferðinni var hresst og áhugasamt ungt fólk úr öllum landshlutum en í hópnum voru 38 að meðtöldum bílstjóranum…Lesa meira

true

Regína Ásvaldsdóttir er nýr sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar

Borgarráð hefur samþykkt ráðningu Regínu Ásvaldsdóttur, bæjarstjóra á Akranesi, í stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjarvíkurborgar. Greint er frá þessu á heimasíðu Reykjavíkurborgar en starfið var auglýst þann 7. janúar og sóttu 11 manns um stöðuna. “Það var samdóma álit valnefndar sem fór yfir umsóknir og tók viðtöl við umsækjendur að Regína Ásvaldsdóttir uppfyllti best umsækjenda þær…Lesa meira

true

Fjórir Skagamenn í U21

Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs karla, hefur valið leikmenn til úrtaksæfinga sem fram fara um helgina. Æfingarnar fara fram í Kórnum og eru einungis leikmenn frá íslenskum félagsliðum í úrtakshópnum sem telur 33 leikmenn frá 16 félögum. Í æfingahópnum að þessu sinni eru fjórir leikmenn meistaraflokks ÍA. Þetta eru þeir Albert Hafsteinsson, Aron Ingi…Lesa meira

true

Björgunarsveitir taka dróna í þjónustu sína

Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á sunnanverðu Vesturlandi, Svæði-4, hafa tekið sig saman og stofnað drónahóp. Starfar hópurinn saman að æfingum og skipulagi en hver björgunarsveit hefur keypt sinn dróna og þjálfar nú mannskap til að stýra þeim við leit og björgun. Þetta eru björgunarsveitirnar Heiðar, Ok, Brák og Björgunarfélag Akraness. Björgunarsveitirnar leituðu tilboða og keyptu…Lesa meira

true

Þrír af fjórum leikskólum lokaðir í fimm vikur

Á fundi í skóla- og frístundaráði Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag var samþykkt að þrír leikskólar af fjórum verði lokaðir í fimm vikur í sumar en að einn leikskóli taki að sér að reka sumarskóla leikskólanna í tvær af þessum fimm vikum. Ekki kom fram í fundargerð hvaða leikskóli það verður sem tekur að sér þessa tveggja…Lesa meira