Fréttir

true

Baráttugleði Snæfells dugði ekki til

Snæfell mætti Stjörnunni í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Garðabæ og það voru heimamenn sem höfðu að lokum betur gegn baráttuglöðum Hólmurum, 101-77. Leikmenn Snæfells léku með sorgarbönd á búningum sínum í leiknum, í minningu um Birgi Pétursson, ungan manns úr Stykkishólmi sem lést þegar snjóflóð féll í Esjuhlíðum á…Lesa meira

true

Bjóða samstarf um fjármögnum og uppbyggingu ferðamannastaða

Félagið Bergrisi og Verkís verkfræðistofa standa saman að stofnun fyrirtækisins Sannir Landvættir. Markmiðið með stofnun félagsins er stuðla að uppbyggingu á ferðamannastöðum um land allt í samvinnu við fyrirtæki, landeigendur, sveitarfélög og ríki. Sannir Landvættir bjóða upp á fjármögnun, hönnun og framkvæmd við uppbyggingu ferðamannastaða án kostnaðar eða útgjalda fyrir landeigendur. Íslandsbanki er bakhjarl verkefnisins…Lesa meira

true

Tillaga um breytt nýtingarhlutfall lóða

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi í gær að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022 – Miðsvæði. Í bókun frá fundinum segir að tillagan sé sett fram á uppdrætti og greinagerð dags. 31.1.2017 og feli í sér breytingu fyrir götureit innan miðsvæðis Borgarness M. „Innan miðsvæðis verður skilgreindur götureitur þannig að úr…Lesa meira

true

Telja brýnt að auka landvörslu á friðlýstum svæðum

Byggðarráð Borgarbyggðar telur brýnt að Umhverfisstofnun bregðist við aukinni umferð um friðlýst og viðkvæm svæði í sveitarfélaginu og vill að ráðinn verði landvörður í fullt starf til að gæta þeirra. Nefnd eru sérstaklega átta friðlýst svæði í héraðinu, þ.e. Eldborg, Einkunnir, Andakíll búsvæði, Grábrókargígar, Hraunfossar, Húsafellsskógur, Geitland og Kalmanshellir. „Því fylgir mikil ábyrgð að bera…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í seinni undanúrslitaleiknum

Seinni undanúrslitaleikur í bikarkeppni kvenna í körfuknattleik, Maltbikarnum, verður spilaður í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 8. febrúar næstkomandi. Þar verður um hreinan Vesturlandsslag að ræða þar sem Snæfell og Skallgrímur eigast við. Í fyrri leiknum spila til úrslita Haukar og Keflavík og fer sá leikur fram á sama stað og sama dag klukkan 17. Bæði Skallagrímur og…Lesa meira

true

Tillaga að skipulagi Dalbrautarreits í auglýsingaferli

Bæjarstjórn Akraness samþykkti í lok janúar að auglýsa lýsingu vegna breytinga á gildandi aðalskipulagi sem snertir miðbæinn. Þar er gert ráð fyrir endurhönnun svokallaðs miðsvæðis M4, sem er milli Dalbrautar og Þjóðbrautar. Um umfangsmikla breytingu er að ræða sem gerir ráð fyrir að svæðið verði stækkað lítið eitt til norðurs og muni í framtíðinni rúma…Lesa meira

true

Útför Birnu Brjánsdóttur gerð í dag

Útför Birnu Brjánsdóttur, tvítugrar reykvískrar stúlku, verður gerð frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Þjóðin fylgdist grannt með umfangsmikilli leit að Birnu sem hófst fljótlega eftir að hennar var saknað 14. janúar síðastliðinn. Fljótlega var málið rannsakað sem mannsrán og loks sem morð. Lík Birnu fannst í fjöru við sunnanvert Reykjanes 22. janúar. Einn maður…Lesa meira

true

Hálka og snjóþekja á vegum

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Vesturlandi og verið að hreinsa þar sem þess þarf, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Vestfjörðum er sums staðar hálka eða snjóþekja, einkum á fjallvegum, en á láglendi eru þó víðast aðeins hálkublettir eða jafnvel alveg autt.Lesa meira

true

Dregur í efa að farsímamæling gefi óháða mynd

Vegna fréttar í Skessuhorni í vikunni, þar sem sagt var frá hraða farsímatenginga Símans, vill Guðfinnur Sigurvinsson verkefnastjóri í samskiptum og kynningarmálum hjá Vodafone koma því á framfæri að fyrirtækið Ookla Speedtest bauð Vodafone að mæla og kynna hraða tenginga símafyrirtækisins. Guðfinnur segir að Vodafone hafi verið boðið slík þjónusta fyrir að jafnvirði tugi milljóna…Lesa meira

true

Nýir eigendur Loftorku í Borgarnesi blása til sóknar

Um áramótin urðu eigendaskipti að Loforku Borgarnesi ehf. þegar feðgarnir Óli Jón Gunnarsson og Bergþór Ólason seldu fyrirtækinu nýju dótturfyrirtæki Steypustöðvarinnar í Reykjavík. Andrés Konráðsson fyrrum framkvæmdastjóri Loftorku, og sonur stofnandans Konráðs Andréssonar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Loftorku Borgarnesi og tekið til starfa. Starfandi stjórnarformaður í hálfu starfi til vors er Ólafur Sveinsson hagverkfræðingur. Ólafur…Lesa meira